Byrja tveimur árum áður að undirbúa getnað

Verðandi foreldrar þurfa stundum að gera breytingar á lífstíl.
Verðandi foreldrar þurfa stundum að gera breytingar á lífstíl. Ljósmynd/colourbox.dk

Áður en ákveðið er að eignast barn mæla sérfræðingar með því að gera ákveðnar lífsstílsbreytingar. Nú er ekki nóg að byrja að taka ákveðin vítamín þremur mánuðum áður en barnið má verða til heldur þarf að byrja að undirbúa líkama verðandi foreldra allt að tveimur árum fyrir mögulegan getnað. Þetta kemur fram í máli frjósemissérfræðingsins Grace Dugdale á vef Women's Health

Dugdale segir mikilvægt að bæði verðandi feður og mæður breyti lífstíl sínum. Í þessari lífstílsbreytingu er meðal annars átt við að hætta að drekka áfengi og taka mataræðið í gegn. Heldur hún því fram að það taki heilt ár fyrir líkamann að aðlagast nýjum lífstíl. 

Hún segir mörg pör gifta sig og bíða svo eftir því að reka sig á vegg hvað varðar frjósemi og ekki fyrr en þá breyta þau um lífstíl. „Það er sorglegt ef þau síðan enda með frjósemisvanda sem hefði verið hægt að leysa fyrr,“ segir Dugdale sem mælir einnig með því að fólk láti athuga D-vítamín í líkama sínum. 

Dugdale segir að þyngd kvenna á þeim tíma og rétt áður en barn er getið geti haft áhrif á heilsu barna. 

Ljósmynd/www.colourbox.dk
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál