Liverpool og Fulham gerðu 2:2 jafntefli í dramatískum leik á Anfield í 15. umferð í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu í dag.
Liverpool er með 36 stig á toppi deildarinnar og Fulham með 24 í níunda sæti.
Fulham komst 1:0 yfir eftir aðeins 11 mínútur en markið skoraði Andreas Pereira eftir stoðsendingu frá Antonee Robinson.
Andrew Robertson, varnarmaður Liverpool, komst fyrir skot Pereira en boltinn fór í hann og í þaknetið og Alisson Becker átti ekki möguleika í markinu.
Vandræði Robertson héldu áfram á 17. mínútu þegar hann missti boltann frá sér og Harry Wilson stökk á tækifærið og var að fara einn á móti markmanni. Þá fór Robertson í tæklingu sem var illa tímasett og fékk beint rautt spjald.
Fimm spjöld fóru á loft í fjörugum fyrri hálfleik og þrjú þeirra komu á fyrstu tíu mínútum leiksins.
Liverpool-menn voru manni færri og marki undir í byrjun seinni hálfleiks en komu sterkir inn og voru með öll tök á leiknum og það tók þá aðeins tvær mínútur að jafna.
Það gerði Cody Gakpo með glæsilegum skalla eftir sendingu frá Mohamed Salah á fjærstöngina og staðan 1:1.
Fulham komst aftur yfir á 76. mínútu þegar Rodrigo Muniz potaði boltanum framhjá Alison í markinu eftir fyrirgjöf frá Robinson.
Liverpool-menn voru hvergi nær hætti og Diogo Jota, sem kom inn á sem varnarmaður, skoraði jöfnunarmark Liverpool á 86. mínútu.
Darwin Nunez, sem kom einnig inn á sem varamaður, kom með sendingu á Jota sem tók snúning, lék á varnarmann og setti boltann í netið.
Níu mínútum var bætt við og Liverpool-menn lágu í sókn frá seinna jöfnunarmarkinu en náðu ekki að koma boltanum í markið.