Útgerðum skylt að tryggja sjómenn

Slysin gera ekki boð á undan sér.
Slysin gera ekki boð á undan sér. mbl.is/Rax

Útgerðir eru skyldugar til að tryggja sjómenn við störf sín samkvæmt úrskurði gerðardóms frá 2001. Bótaréttur sjómanna er víðtækari en gerist og gengur meðal launþega, sem helgast kannski af því að fáar stéttir vinna í hættulegra umhverfi og eru jafnofurseldar náttúruöflunum. En í hverju liggur munurinn?

„Sjómenn eru tryggðir samkvæmt skaðabótalögunum en flestir launþegar á almennum markaði eru það ekki. Það er kannski stóri munurinn. Það má því segja að þeirra tryggingar séu víðtækari en almennt gerist og kannski sambærilegar við þær tryggingar sem gilda þegar fólk lendir í umferðarslysum,“ segir Valborg Sveinsdóttir, forstöðumaður persónutjóna hjá Sjóvá. „Útgerðir eru skyldugar til að kaupa slysatryggingar fyrir þá sjómenn sem hjá þeim starfa svo sjómenn eiga að vera að fullu slysatryggðir við sín störf um borð.“

Sjómenn eiga að vera vel tryggðir af útgerðum sínum.
Sjómenn eiga að vera vel tryggðir af útgerðum sínum. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Spurð að því hvaða rétt sjómenn eigi til bóta vegna óvinnufærni eftir vinnuslys bendir Valborg á að forsenda bótaréttar vegna slyss sé alltaf sú að tjónþoli sanni umfang og eðli tjóns síns. Takist það eiga sjómenn rétt til bóta sem samsvara fullum launum líkt og slysið hefði aldrei orðið. „Uppgjör miðast ávallt við ákvæði skaðabótalagannna. Menn eiga rétt til fullra launa í ákveðinn tíma samkvæmt samningum og síðan detta þeir kannski niður í kauptryggingu. Skaðabótalögin miðast við það að menn haldi tekjum sínum líkt og slysið hefði ekki orðið og við það er miðað þegar að kemur að upgjöri vegna slyss, svo í slíkum tilfellum þarf að skoða mismuninn sem myndast milli kauptryggingar og fullra launa viðkomandi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.10.24 496,06 kr/kg
Þorskur, slægður 18.10.24 570,51 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.10.24 260,59 kr/kg
Ýsa, slægð 18.10.24 222,79 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.10.24 230,31 kr/kg
Ufsi, slægður 18.10.24 232,43 kr/kg
Djúpkarfi 17.10.24 124,11 kr/kg
Gullkarfi 18.10.24 160,41 kr/kg
Litli karfi 25.9.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 16.10.24 127,54 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.10.24 Barði NK 120 Flotvarpa
Kolmunni 508.258 kg
Síld 3.960 kg
Samtals 512.218 kg
18.10.24 Kristján HF 100 Lína
Þorskur 83 kg
Keila 50 kg
Ýsa 46 kg
Steinbítur 25 kg
Karfi 3 kg
Skarkoli 2 kg
Samtals 209 kg
18.10.24 Sandfell SU 75 Lína
Ýsa 1.144 kg
Þorskur 748 kg
Samtals 1.892 kg
18.10.24 Særún EA 251 Þorskfisknet
Ýsa 788 kg
Þorskur 570 kg
Ufsi 462 kg
Karfi 25 kg
Samtals 1.845 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.10.24 496,06 kr/kg
Þorskur, slægður 18.10.24 570,51 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.10.24 260,59 kr/kg
Ýsa, slægð 18.10.24 222,79 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.10.24 230,31 kr/kg
Ufsi, slægður 18.10.24 232,43 kr/kg
Djúpkarfi 17.10.24 124,11 kr/kg
Gullkarfi 18.10.24 160,41 kr/kg
Litli karfi 25.9.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 16.10.24 127,54 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.10.24 Barði NK 120 Flotvarpa
Kolmunni 508.258 kg
Síld 3.960 kg
Samtals 512.218 kg
18.10.24 Kristján HF 100 Lína
Þorskur 83 kg
Keila 50 kg
Ýsa 46 kg
Steinbítur 25 kg
Karfi 3 kg
Skarkoli 2 kg
Samtals 209 kg
18.10.24 Sandfell SU 75 Lína
Ýsa 1.144 kg
Þorskur 748 kg
Samtals 1.892 kg
18.10.24 Særún EA 251 Þorskfisknet
Ýsa 788 kg
Þorskur 570 kg
Ufsi 462 kg
Karfi 25 kg
Samtals 1.845 kg

Skoða allar landanir »