Skip með mengandi hreinsunarbúnað skráð erlendis

Lagarfoss er eitt þeirra skipa sem nýta hreinsunarbúnað sem Rannsóknarnefnd …
Lagarfoss er eitt þeirra skipa sem nýta hreinsunarbúnað sem Rannsóknarnefnd samgönguslysi vill að skoðað verði hvort eigi að banna. mbl.is/Árni Sæberg

Sjö skip sem skráð eru á Íslandi eru með útblásturshreinsunarbúnað, eða svokallaðan vothreinsibúnað, sem til þess er fallinn að draga úr losun brennisteins, að því er fram kemur í svari Samgöngustofu við fyrirspurn 200 mílna. Lagt er til að skoðað verði að banna aðra af tveimur tegundum slíks búnaðar.

Rannsóknanefnd samgönguslysa hefur beint því til stjórnvalda að skoða hvort banna eigi opin kerfi, þar sem úrgangurinn er talinn ógna lífríki í hafinu. Kemur þetta fram í lokaskýrslu nefndarinnar um sótmengun í höfninni í Vestmannaeyjum sem kom til vegna hreinsunarbúnaðs Lagarfoss, flutningaskipi Eimskips.

Til eru tvær tegundir slíkra hreinsunarkerfa, annars vegar opin kerfi þar sem úrgangi sem safnast er dælt í sjóinn og hins vegar lokuð kerfi þar sem úrgangi er safnað og urðaður í landi. „Öll íslensku skipin sjö hafa afgasbúnað með lokaða hringrás. Slíkur búnaður safnar hreinsuðum efnum í gegnum síur sem síðan ber að flytja í land og farga á löglegan hátt,“ segir í svarinu. Skipin eru öll fiskiskip.

1. janúar 2020 voru settar reglur á Íslandi í samræmi við alþjóðasamning gegn mengun hafsins (MARPOL) um takmarkað brennisteinsmagn í eldsneyti skipa. það sé í mesta lagi 0,1%. Skip „uppfylla þessi skilyrði með því að nota olíu sem inniheldur mest 0,1% brennistein. Afgashreinsibúnaður í skipum er ekki lögbundinn, einungis eru til staðlar um smíði og búnað á þeim,“ segir í svari Samgöngustofu.

Búnaðurinn á 318 milljónir króna

Flutningaskip Samskipa og Eimskips eru ekki skráð á Íslandi og því er opið hreinsunarkerfi um borð í Lagarfossi ekki skráð hjá Samgöngustofu.

Bæði Lagarfoss og nýi Dettifoss eru með útblásturshreinsunarbúnað og segir í svari Eimskips vegna hreinsunarbúnaðarins að hann hafi ásamt uppsetningu í Lagarfossi kostað tvær milljónir evra, jafnvirði 318 milljóna króna og „er þannig hannaður að hægt er að breyta honum í lokað kerfi. Við fylgjumst vel með þróuninni í þessum málum og munum ávallt fylgja þeim reglum sem gilda hverju sinni,“ segir í svari Eimskips.

Fram kemur í svari Samskipa vegna fyrirspurnar 200 mílna að skipin Arnarfell og Helgafell séu með útblásturshreinsunarbúnað. „Við fylgjumst vel með nýjungum varðandi umhverfismál og sjálfbærni hjá Samskipum,“ segir í svarinu.

Uppfært: Áður sagði að ekki hafi borist svar við fyrirspurn 200 mílna um hreinsunarbúnað í skipum Samskipa. Svar frá fyrirtækinu barst í dag 12. maí og var fréttin uppfærð með tillit til þess klukkan 13:55.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 6.10.24 462,75 kr/kg
Þorskur, slægður 6.10.24 538,69 kr/kg
Ýsa, óslægð 6.10.24 295,44 kr/kg
Ýsa, slægð 6.10.24 193,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 6.10.24 242,08 kr/kg
Ufsi, slægður 6.10.24 173,68 kr/kg
Djúpkarfi 3.10.24 196,31 kr/kg
Gullkarfi 6.10.24 193,84 kr/kg
Litli karfi 25.9.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 4.10.24 19,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

5.10.24 Aðalsteinn Jónsson SU 11 Flotvarpa
Kolmunni 2.185.810 kg
Samtals 2.185.810 kg
5.10.24 Óli Á Stað GK 99 Línutrekt
Þorskur 578 kg
Keila 354 kg
Steinbítur 127 kg
Ýsa 21 kg
Hlýri 15 kg
Karfi 12 kg
Ufsi 5 kg
Skarkoli 1 kg
Samtals 1.113 kg
5.10.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Ýsa 4.374 kg
Þorskur 3.798 kg
Steinbítur 442 kg
Langa 157 kg
Hlýri 157 kg
Skarkoli 90 kg
Karfi 9 kg
Samtals 9.027 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 6.10.24 462,75 kr/kg
Þorskur, slægður 6.10.24 538,69 kr/kg
Ýsa, óslægð 6.10.24 295,44 kr/kg
Ýsa, slægð 6.10.24 193,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 6.10.24 242,08 kr/kg
Ufsi, slægður 6.10.24 173,68 kr/kg
Djúpkarfi 3.10.24 196,31 kr/kg
Gullkarfi 6.10.24 193,84 kr/kg
Litli karfi 25.9.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 4.10.24 19,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

5.10.24 Aðalsteinn Jónsson SU 11 Flotvarpa
Kolmunni 2.185.810 kg
Samtals 2.185.810 kg
5.10.24 Óli Á Stað GK 99 Línutrekt
Þorskur 578 kg
Keila 354 kg
Steinbítur 127 kg
Ýsa 21 kg
Hlýri 15 kg
Karfi 12 kg
Ufsi 5 kg
Skarkoli 1 kg
Samtals 1.113 kg
5.10.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Ýsa 4.374 kg
Þorskur 3.798 kg
Steinbítur 442 kg
Langa 157 kg
Hlýri 157 kg
Skarkoli 90 kg
Karfi 9 kg
Samtals 9.027 kg

Skoða allar landanir »