Hafa óskað eftir endurriti úr sjóprófinu

Jónas Þór Jónasson, lögmaður stéttarfélaga skipverjanna á Júlíusi Geirmundssyni, segir …
Jónas Þór Jónasson, lögmaður stéttarfélaga skipverjanna á Júlíusi Geirmundssyni, segir málaferlin vegna hópsmitsins um borð hafi dregið upp á yfirborðið brotalamir í samskiptum áhafna og útgerða. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Jónas Þór Jónasson, lögmaður stéttarfélaga skipverjanna á Júlíusi Geirmundssyni ÍS sem sýktust af kórónuveirunni um borð, hefur í dag óskað eftir endurriti úr sjóprófi sem fór fram fyrir Héraðsdómi Vestfjarða í gær. Hann segir í samtali við 200 mílur málið varpa ljósi á bresti í samskiptum útgerða við íslenska sjómenn.

„Við sendum beiðni til Héraðsdóms Vestfjarða í dag. Svo fer afhending [endurritsins] eftir því hvað þau eru snögg í héraðsdómi að rita þetta upp. Þetta voru sjö klukkutíma skýrslutökur þannig að þetta mun taka einhvern tíma en ég vænti þess að fá þetta í hendur í fyrri hluta desember. Þá tökum við félögin fund um málið og metum næstu skref,“ segir Jónas Þór og bætir við að endurritið verður afhent lögreglu og saksóknara.

Félag skipstjórnarmanna, Sjómannafélag Íslands, Sjómannasamband Íslands, Verkalýðsfélag Vestfirðinga og Félag vélstjóra og málmtæknimanna kærðu í október viðbrögð  Hraðfrystihússins Gunn­var­ar hf. viðbrögð við kórónuveirusmiti um borð í tog­ar­an­um til lög­reglu.

Jónas Þór segir ekki hafa verið annarra kosta völ en að láta framkvæma sjópróf til þess að komast að því hvernig hlutir atvikuðust þegar hópsmitið kom upp.

„Þetta var nauðsynlegt í ljósi afstöðu útgerðarinnar um að vilja ekki tjá sig og fara í vörn. Þá þurftum við að fara þessa leið til að upplýsa um það sem gerðist í raun. Svo er þetta sönnunargagn sem við höfum upp á framhaldið, því miður bendir margt til þess að einhverjir skipverjar kunna að verða fyrir varanlegu heilsutjóni útaf þessu og það þarf að sækja þær kröfur á tryggingafélag útgerðarinnar,“ útskýrir Jónas Þór.

Hann segir annan anga málsins vera að draga lærdóm af málinu sérstaklega hvað varðar samskipti útgerða við skipverja. „Þetta er búið að draga það mál á yfirborðið því þessi samskipti eru ekki alltaf nægilega góð.“

Spurður hvort skjólstæðingar hans séu vongóðir um árangur svarar hann því játandi. „Já, af sjálfsögðu. Við höfum verið að hugsa um hagsmuni sjómannanna, það er tilgangurinn með þessu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 20.2.25 571,35 kr/kg
Þorskur, slægður 20.2.25 742,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 20.2.25 312,95 kr/kg
Ýsa, slægð 20.2.25 339,46 kr/kg
Ufsi, óslægður 20.2.25 227,70 kr/kg
Ufsi, slægður 20.2.25 310,71 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 30.1.25 16,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 19.2.25 170,00 kr/kg
Gullkarfi 20.2.25 331,47 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.2.25 Hafborg EA 152 Þorskfisknet
Þorskur 12.832 kg
Ýsa 119 kg
Samtals 12.951 kg
20.2.25 Sóley ÞH 28 Grásleppunet
Grásleppa 723 kg
Þorskur 68 kg
Samtals 791 kg
20.2.25 Fengsæll HU 56 Landbeitt lína
Þorskur 614 kg
Ýsa 190 kg
Steinbítur 126 kg
Samtals 930 kg
20.2.25 Haförn ÞH 26 Dragnót
Ýsa 1.028 kg
Þorskur 670 kg
Steinbítur 541 kg
Skarkoli 272 kg
Ufsi 240 kg
Sandkoli 135 kg
Hlýri 25 kg
Samtals 2.911 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 20.2.25 571,35 kr/kg
Þorskur, slægður 20.2.25 742,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 20.2.25 312,95 kr/kg
Ýsa, slægð 20.2.25 339,46 kr/kg
Ufsi, óslægður 20.2.25 227,70 kr/kg
Ufsi, slægður 20.2.25 310,71 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 30.1.25 16,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 19.2.25 170,00 kr/kg
Gullkarfi 20.2.25 331,47 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.2.25 Hafborg EA 152 Þorskfisknet
Þorskur 12.832 kg
Ýsa 119 kg
Samtals 12.951 kg
20.2.25 Sóley ÞH 28 Grásleppunet
Grásleppa 723 kg
Þorskur 68 kg
Samtals 791 kg
20.2.25 Fengsæll HU 56 Landbeitt lína
Þorskur 614 kg
Ýsa 190 kg
Steinbítur 126 kg
Samtals 930 kg
20.2.25 Haförn ÞH 26 Dragnót
Ýsa 1.028 kg
Þorskur 670 kg
Steinbítur 541 kg
Skarkoli 272 kg
Ufsi 240 kg
Sandkoli 135 kg
Hlýri 25 kg
Samtals 2.911 kg

Skoða allar landanir »