Harðfrystihúsið Gunnvör (HG) í Hnífsdal hefur sagt upp þrettán manna áhöfn Stefnis ÍS-28 og er útgerð skipsins hætt. Fyrirtækið kveðst í tilkynningu ætla að reyna eins og unnt er að finna störf fyrir skipverjana á öðrum skipum félagsins. Ástæða uppsagnanna er sögð niðurskurður í útgefnum aflaheimildum.
„Úthlutað aflamark í þorski hefur dregist saman um 23% á síðustu tveimur fiskveiðiárum og dragast aflaheimildir H-G hf. saman um 1.200 tonn við það. Einnig hefur orðið veruleg skerðing í úthlutuðu aflamarki í gullkarfa, sem hefur verið mikilvæg tegund í útgerð Stefnis. Í ljósi þessa hefur verið ákveðið að hætta útgerð Stefnis. Með þeirri aðgerð mun rekstrargrundvöllur annarra skipa félagsins styrkjast,“ segir í tilkynningu á vef HG.
Þá segir að uppsögn þeirra 13 sem um ræðir gildir frá áramótum. „Útgerðin mun leitast við að útvega þeim sem missa vinnuna störf á öðrum skipum félagsins eins og kostur er.“
Stefnir ÍS 28 var smíðaður í Flekkefjord í Noregi árið 1976 fyrir Flateyringa og bar fyrst nafnið Gyllir ÍS 261. Skipið var keypt til Ísafjarðar í ársbyrjun 1993 og hefur verið gert út frá Ísafirði í nær 30 ár.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 9.1.25 | 583,09 kr/kg |
Þorskur, slægður | 9.1.25 | 586,50 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 9.1.25 | 339,18 kr/kg |
Ýsa, slægð | 9.1.25 | 319,88 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 9.1.25 | 261,13 kr/kg |
Ufsi, slægður | 9.1.25 | 275,16 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 18.12.24 | 42,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 6.1.25 | 90,00 kr/kg |
Gullkarfi | 9.1.25 | 230,47 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
9.1.25 Litlanes ÞH 3 Línutrekt | |
---|---|
Ýsa | 1.864 kg |
Þorskur | 854 kg |
Hlýri | 81 kg |
Ufsi | 21 kg |
Karfi | 16 kg |
Steinbítur | 2 kg |
Samtals | 2.838 kg |
9.1.25 Indriði Kristins BA 751 Lína | |
---|---|
Steinbítur | 366 kg |
Þorskur | 273 kg |
Langa | 207 kg |
Keila | 44 kg |
Ýsa | 42 kg |
Karfi | 40 kg |
Samtals | 972 kg |
9.1.25 Fjølnir GK 757 Lína | |
---|---|
Þorskur | 4.806 kg |
Ýsa | 3.266 kg |
Langa | 918 kg |
Samtals | 8.990 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 9.1.25 | 583,09 kr/kg |
Þorskur, slægður | 9.1.25 | 586,50 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 9.1.25 | 339,18 kr/kg |
Ýsa, slægð | 9.1.25 | 319,88 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 9.1.25 | 261,13 kr/kg |
Ufsi, slægður | 9.1.25 | 275,16 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 18.12.24 | 42,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 6.1.25 | 90,00 kr/kg |
Gullkarfi | 9.1.25 | 230,47 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
9.1.25 Litlanes ÞH 3 Línutrekt | |
---|---|
Ýsa | 1.864 kg |
Þorskur | 854 kg |
Hlýri | 81 kg |
Ufsi | 21 kg |
Karfi | 16 kg |
Steinbítur | 2 kg |
Samtals | 2.838 kg |
9.1.25 Indriði Kristins BA 751 Lína | |
---|---|
Steinbítur | 366 kg |
Þorskur | 273 kg |
Langa | 207 kg |
Keila | 44 kg |
Ýsa | 42 kg |
Karfi | 40 kg |
Samtals | 972 kg |
9.1.25 Fjølnir GK 757 Lína | |
---|---|
Þorskur | 4.806 kg |
Ýsa | 3.266 kg |
Langa | 918 kg |
Samtals | 8.990 kg |