Ísfélag Vestmannaeyja og Rammi stefna að sameiningu

Ísfélag Vestmannaeyja og Rammi hf. stefna að sameiningu.
Ísfélag Vestmannaeyja og Rammi hf. stefna að sameiningu. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Stjórn­ir Ísfé­lags Vest­manna­eyja hf. og Ramma hf. í Fjalla­byggð hafa skrifað und­ir sam­komu­lag um samruna fé­lag­anna. Sam­einað fé­lag mun heita Ísfé­lagið hf.

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu sem fé­lög­in sendu frá sér nú í kvöld. Þar seg­ir m.a. að for­svars­menn fé­lag­anna tveggja séu sam­mála um að mörg tæki­færi séu fólg­in í sam­ein­ingu þeirra, meðal ann­ars til sókn­ar­færa og til að styrkja rekstr­ar­grund­völl þeirra til framtíðar.

Þar seg­ir jafn­framt að heild­arafla­hlut­deild sam­einaðs fé­lags verði tæp­lega 8% af út­hlutuðu afla­marki. Sam­an­lögð velta fé­lag­anna var um 28 millj­arðar króna á ár­inu 2021.

„Sam­einað fyr­ir­tæki verður bet­ur í stakk búið til að tak­ast á við áskor­an­ir og tæki­færi í rekstri og styrk­ir sam­keppn­is­stöðu þess á alþjóðleg­um mörkuðum. Stjórn­ir fé­lag­anna eru sam­mála um að stefnt skuli að því að skrá sam­einað fé­lag, Ísfé­lagið hf., á hluta­bréfa­markað sem veit­ir tæki­færi til frek­ari vaxt­ar,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

Reka sam­tals ell­efu skip

Ísfé­lag Vest­manna­eyja hf. ger­ir út fjög­ur upp­sjáv­ar­skip, tvö bol­fisk­skip og einn króka­bát. Fé­lagið er með starfs­stöðvar í Vest­manna­eyj­um og á Þórs­höfn og rek­ur frysti­hús og fiski­mjöls­verk­smiðju á báðum stöðum.

Rammi hf. ger­ir út fjög­ur fiski­skip frá Fjalla­byggð og Þor­láks­höfn og starf­ræk­ir fisk­vinnslu í Þor­láks­höfn og rækju­verk­smiðju í Fjalla­byggð. Dótt­ur­fé­lög Ramma hf. eru sjáv­ar­líf­tækni­fé­lagið Pri­mex hf., sem rek­ur kítós­an­verk­smiðju á Sigluf­irði og Arctic Sea­food Ltd. sem er sölu­fyr­ir­tæki Ramma í Bretlandi.

Stærstu hlut­haf­ar sam­einaðs fé­lags verða: ÍV fjár­fest­ing­ar­fé­lag ehf., Marteinn Har­alds­son ehf., Gunn­ar Sig­valda­son, Svavar Berg Magnús­son og munu fara með sam­tals 83%.

Ráðgert er að Stefán Friðriks­son, nú­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Ísfé­lags Vest­manna­eyja hf., stýri hinu sam­einaða fé­lagi, með aðset­ur í Vest­manna­eyj­um og Ólaf­ur H. Marteins­son, nú­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Ramma hf., verði aðstoðarfram­kvæmda­stjóri með aðset­ur í Fjalla­byggð.

Skrifað er und­ir sam­komu­lagið með fyr­ir­vara um samþykki Sam­keppnis­eft­ir­lits­ins og hlut­hafa­funda fé­lag­anna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.6.25 464,11 kr/kg
Þorskur, slægður 26.6.25 518,75 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.6.25 424,21 kr/kg
Ýsa, slægð 26.6.25 149,54 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.6.25 177,06 kr/kg
Ufsi, slægður 26.6.25 251,41 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.5.25 99,00 kr/kg
Djúpkarfi 16.6.25 30,00 kr/kg
Gullkarfi 26.6.25 256,08 kr/kg
Litli karfi 25.6.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.6.25 Bára HF 78 Handfæri
Þorskur 379 kg
Ufsi 16 kg
Ýsa 3 kg
Karfi 1 kg
Samtals 399 kg
26.6.25 Erla AK 52 Handfæri
Þorskur 670 kg
Ufsi 18 kg
Keila 3 kg
Karfi 1 kg
Samtals 692 kg
26.6.25 Mjallhvít KE 6 Handfæri
Þorskur 447 kg
Samtals 447 kg
26.6.25 Doddi RE 30 Handfæri
Þorskur 599 kg
Samtals 599 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.6.25 464,11 kr/kg
Þorskur, slægður 26.6.25 518,75 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.6.25 424,21 kr/kg
Ýsa, slægð 26.6.25 149,54 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.6.25 177,06 kr/kg
Ufsi, slægður 26.6.25 251,41 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.5.25 99,00 kr/kg
Djúpkarfi 16.6.25 30,00 kr/kg
Gullkarfi 26.6.25 256,08 kr/kg
Litli karfi 25.6.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.6.25 Bára HF 78 Handfæri
Þorskur 379 kg
Ufsi 16 kg
Ýsa 3 kg
Karfi 1 kg
Samtals 399 kg
26.6.25 Erla AK 52 Handfæri
Þorskur 670 kg
Ufsi 18 kg
Keila 3 kg
Karfi 1 kg
Samtals 692 kg
26.6.25 Mjallhvít KE 6 Handfæri
Þorskur 447 kg
Samtals 447 kg
26.6.25 Doddi RE 30 Handfæri
Þorskur 599 kg
Samtals 599 kg

Skoða allar landanir »