Biðjast afsökunar á rangfærslum um Samherjamálið

Fjallað var um spillingu á Íslandi í febrúarútgáfu Aftenposten Innsikt. …
Fjallað var um spillingu á Íslandi í febrúarútgáfu Aftenposten Innsikt. Ritstjórnin hefur nú beðist afsökunar á fjölda rangfærslna og óvæginnar umfjöllunar. Samsett mynd

„Af­ten­posten Innsikt biðst af­sök­un­ar.“ Þannig end­ar 647 orða af­sök­un­ar­beiðni í marsút­gáfu frétta­tíma­rits­ins Af­ten­posten Innsikt vegna átta blaðsíðna um­fjöll­un­ar um spill­ingu á Íslandi. „Í grein­inni var fram­setn­ing máls­ins sem fjallað var um óvæg­in, í hana vantaði viðbrögð þess ásakaða og í henni voru fleiri rang­færsl­ur.“

Í fe­brú­ar prýddi um­fjöll­un­in forsíðu tímarist­ins, sem kem­ur út mánaðarlega, og var meðal ann­ars fjallað um Namib­íu­málið og sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið Sam­herja. Und­ir fyr­ir­sögn­inni „Spillt­asta land Norður­landa“ var ritað: „Á meðan hin Norður­lönd­in stæra sig af því að vera lönd­in með minnsta spill­ingu, hef­ur Ísland hrunið af toppi list­ans eft­ir mörg ár af eft­ir­tekt­ar­verðum hneykslis­mál­um. Sér­stak­lega er ís­lensk­ur sjáv­ar­út­veg­ur kveikj­an að spill­ing­unni, á sama tíma líta stjórn­mála­menn í aðra átt og íbú­ar yppa öxl­um.“

Nú biðst tíma­ritið „vel­v­irðing­ar á mis­tök­um og viðbragðsleysi í fe­brúar­út­gáf­unni“, en um­fjöll­un­in, sem sjálf­stætt starf­andi blaðamaður­inn Lasse Skytt ritaði, byggði aðallega á viðtali við Jó­hann­es Stef­áns­son fyrr­ver­andi starfs­mann Sam­herja í Afr­íku. Meðal ann­ars var einnig rætt við Atla Þór Fann­dal fram­kvæmda­stjóra Tran­sparency In­ternati­onal á Íslandi, Þórð Snæ Júlí­us­son ann­an tveggja rit­stjóra Heim­ild­ar­inn­ar og Sig­ríði Dögg Auðuns­dótt­ur formann Blaðamanna­fé­lags Íslands.

Umfjöllunin taldi alls átta síður.
Um­fjöll­un­in taldi alls átta síður. Skjá­skot/​Af­ten­posten Innsikt

Ekki inni­stæða fyr­ir full­yrðing­um

Rit­stjórn­in kveðst hafa brugðist og ekki tryggt að farið væri eft­ir „venj­um um góða starfs­hætti“ við birt­ingu grein­ar­inn­ar. Þetta hafi meðal ann­ars „leitt til þess að Sam­herja var ekki gef­inn kost­ur á að tjá sig um þau atriði sem sneru að þeim beint, eins og grund­vall­ar­venj­ur blaðamanna segja til um. Ekki var greint frá ár­ang­urs­lausri til­raun rit­stjórn­ar að ná í Sam­herja með tölvu­pósti. Tvær fyr­ir­spurn­ir reynd­ust ber­ast á net­fang sem ekki var til hjá Sam­herja. […] Vísað var í staðinn í yf­ir­lýs­ing­ar fé­lags­ins sjálfs um málið en ekki er ásætt­an­legt að það komi í stað viðbragða.“

Einnig er beðist vel­v­irðing­ar á fram­setn­ingu fjölda staðhæf­inga í um­fjöll­un­inni. Ekki hafi verið „nægi­lega skýrt að þetta væri út­gáfa um­rædds upp­ljóstr­ara Jó­hann­es­ar Stef­áns­son­ar af mál­inu. Ekki kom held­ur fram að rann­sókn máls­ins væri yf­ir­stand­andi á Íslandi og að niðurstaða liggi ekki fyr­ir fyrr en hún verði tek­in til úr­sk­urðar með laga­lega bind­andi dómi eða rann­sókn verði hætt. Örfá­ir ein­stak­ling­ar hafa stöðu grunaðs en eng­in ákæra hef­ur verið gef­in út á hend­ur nein­um á Íslandi. Eng­ir ein­stak­ling­ar eða fyr­ir­tæki sem tengj­ast Sam­herja eru hluti af nefndu saka­máli í Namib­íu.“

Jóhannes Stefánsson greindi frá því hvernig hann hafði borði fé …
Jó­hann­es Stef­áns­son greindi frá því hvernig hann hafði borði fé að emb­ætt­is­mönn­um í Namib­íu og sagði það gert í sam­rái við stjórn­end­ur Sam­herja. Skjá­skot/​Kveik­ur

Kveðst Af­ten­posten Innsikt ekki hafa inni­stæðu til að full­yrða að Jó­hann­es hafi aðhafst „á veg­um“ Sam­herja í tengsl­um við mútu­greiðslur til ein­stak­linga í Namib­íu og ekki held­ur að það hafi verið gerður samn­ing­ur um slík­ar greiðslur milli Sam­herja og namib­ískra aðila. „Þess­ar staðhæf­ing­ar eru [Jó­hann­es­ar] Stef­áns­son­ar og hvort hann gerði þetta á veg­um fé­lags­ins er al­farið hafnað af Sam­herja og er hluti af rann­sókn­inni sem nú fer fram. Þetta hefði átt að koma fram í grein­inni.“

Ekki var held­ur inni­stæða fyr­ir að vísa til „mútu­greiðslu­samn­ings“ í grein­inni og seg­ir Af­ten­posten Innsikt að lög­manns­stofa Sam­herja í Nor­egi, Wik­borg Rein, hafi vakið at­hygli rit­stjórn­ar á að „í skoðun sinni á mál­inu hafa ekki fund­ist nein gögn sem falla und­ir þetta. Ákæru­valdið sem rann­sak­ar málið á Íslandi hef­ur hingað til ekki fundið neinn „mútu­samn­ing“.“

Telja óná­kvæmni í um­fjöll­un­inni

Gefið var til kynna í um­fjöll­un­inni að þekkt væri að rekst­ur Sam­herja í Namib­íu hafi skilað „mikl­um hagnaði“. „Þetta er ekki skjalfest og stend­ur án staðfest­ing­ar.“

Jafn­framt var full­yrt að Sam­herji færi beint með 24,3% af út­gefn­um veiðiheim­ild­um á Íslands­miðum þrátt fyr­ir að hér­lend lög aðeins heim­iluðu 12% há­marks­hlut­deild. Af­ten­posten Innsikt seg­ir upp­lýs­ing­ar Fiski­stofu gefa til kynna að Sam­herji Ísland ehf. sé aðeins skráð fyr­ir 8,78% af afla­heim­ild­un­um. „Tal­an 24,3 var fram­sett með vill­andi hætti og byggði á út­reikn­ing­um þar sem einnig var tekið til­lit til eign­ar­hluta, stjórn­ar­setu og þess­hátt­ar í öðrum fé­lög­um.“

Þá seg­ir rit­stjórn tíma­rits­ins að yf­ir­heyrsla ís­lenskra blaðamanna hjá lög­regl­unni á Norður­landi eystra hafi „ekki tengst um­fjöll­un þess­ara blaðamanna um um­rætt mál og kem­ur þannig mál­inu ekki við“. Er þar vísað til máls sem er til rann­sókn­ar vegna kæru Páls Stein­gríms­son­ar skip­stjóra í tengsl­um við símastuld og brot gegn friðhelgi einka­lífs.

Fleiri ágall­ar

Auk of­an­nefndra ann­marka er einnig tekið fram að Jó­hann­es hafi ekki komið upp­lýs­ing­um til Wiki­leaks á meðan hann starfaði hjá Sam­herja, held­ur þrem­ur áður síðar.

Þá hafi verið rang­lega haldið fram í grein­inni að norska fjár­mála­eft­ir­litið hafi kraf­ist gjalds af norska DNB bank­an­um 2021 vegna skorts á vand­virkni í að tryggja fram­kvæmd laga um pen­ingaþvætti í tengsl­um við viðskipti bank­ans og Sam­herja. Hið rétta er að viðskipt­in við Sam­herja hafi ekki haft áhrif á þá ákvörðun eins og fram kem­ur í til­kynn­ingu norska fjár­mála­eft­ir­lits­ins (Fin­an­stil­synet). Stofn­un hafi þó gert sér­staka út­tekt í tengsl­um við mál Sam­herja, en þau viðskipti sem skoðuð voru áttu sér stað þegar önn­ur lög voru í gildi og málið einnig fyrnt.

„Einnig þegar minnst var á greiðslu frá DNB reikn­ing­um var hug­takið „mútu­pen­ing­ar“ notað án þess að slíkt væri staðfest af dóm­stól­um, en er í rann­sókn. Á sama tíma full­yrðir Sam­herji í gegn­um lög­mann sinn að hlut­fall fjár­hæðanna sem greidd­ar voru í gegn­um DNB sem fjallað er um sem vafa­sam­ar sé mun lægra en það sem er af­ritað í grein­inni og í öðrum fjöl­miðlum.“

„Af­ten­posten Innsikt biðst af­sök­un­ar. Svör Sam­herja við grein­inni verða birt í síðari út­gáfu Af­ten­posten Innsikt,“ seg­ir að lok­um í af­sök­un­ar­beiðninni.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.6.25 314,00 kr/kg
Þorskur, slægður 18.6.25 507,22 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.6.25 508,41 kr/kg
Ýsa, slægð 18.6.25 523,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.6.25 213,12 kr/kg
Ufsi, slægður 18.6.25 259,60 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.5.25 99,00 kr/kg
Djúpkarfi 16.6.25 30,00 kr/kg
Gullkarfi 18.6.25 173,37 kr/kg
Litli karfi 18.6.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.6.25 Þytur ST 14 Handfæri
Þorskur 776 kg
Samtals 776 kg
19.6.25 Ásbjörn RE 51 Handfæri
Þorskur 790 kg
Samtals 790 kg
19.6.25 Sólfaxi SK 80 Handfæri
Þorskur 800 kg
Samtals 800 kg
19.6.25 Auðbjörg NS 200 Handfæri
Þorskur 719 kg
Samtals 719 kg
19.6.25 Margrét ÍS 151 Handfæri
Þorskur 763 kg
Ufsi 8 kg
Samtals 771 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.6.25 314,00 kr/kg
Þorskur, slægður 18.6.25 507,22 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.6.25 508,41 kr/kg
Ýsa, slægð 18.6.25 523,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.6.25 213,12 kr/kg
Ufsi, slægður 18.6.25 259,60 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.5.25 99,00 kr/kg
Djúpkarfi 16.6.25 30,00 kr/kg
Gullkarfi 18.6.25 173,37 kr/kg
Litli karfi 18.6.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.6.25 Þytur ST 14 Handfæri
Þorskur 776 kg
Samtals 776 kg
19.6.25 Ásbjörn RE 51 Handfæri
Þorskur 790 kg
Samtals 790 kg
19.6.25 Sólfaxi SK 80 Handfæri
Þorskur 800 kg
Samtals 800 kg
19.6.25 Auðbjörg NS 200 Handfæri
Þorskur 719 kg
Samtals 719 kg
19.6.25 Margrét ÍS 151 Handfæri
Þorskur 763 kg
Ufsi 8 kg
Samtals 771 kg

Skoða allar landanir »