Heiðruð fyrir framlag til samstarfs og nýsköpunar

F.v. Þór Sigfússon stofnandi Íslenska Sjávarklasans, Kristján Þórarinsson, Bryndís Thelma …
F.v. Þór Sigfússon stofnandi Íslenska Sjávarklasans, Kristján Þórarinsson, Bryndís Thelma Jónasdóttir sem tók við viðurkenningunni fyrir hönd Co/Plus, Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Ólöf Tryggvadóttir og Ólafur Jón Arnbjörnsson. LJósmynd/Sjávarklasinn

Fjórar viðurkenningar fyrir framlag til aukins samstarfs og nýsköpunar innan bláa hagkerfisins eða eflingu hringrásarhagkerfisins voru afhentar í gær við hátíðlega athöfn í Húsi Sjávarklasans.

Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis, -orku og loftslagsráðherra veitti viðurkenningarnar og einkennir þau sem hlutu þær að þessu sinni að þau hafa öll stuðlað að eflingu nýsköpunar og samstarfs, opnað fleiri möguleika fyrir nýsköpunarfyrirtæki eða styrkt samkeppnisstöðu þeirra á innlendum og alþjóðlegum vettvangi, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.

Ólöf Tryggvadóttir hlaut viðurkenningu fyrir að nýta fjölbreytt íslensk hráefni í vörur sínar hjá frumkvöðlafyrirtækinu Eylíf. Þannig hefur Ólöf búið til tækifæri fyrir ýmsa aðra framleiðendur á einstökum hráefnum úr náttúruauðlindum Íslands. Þá hefur Ólöf  verið afar áhugasöm um að deila reynslu sinni og þekkingu til annarra frumkvöðla í klasanum og þannig hefur hún verið góð fyrirmynd um samstarf og samvinnu í Sjávarklasanum.

Kristján Þórarinsson stofnvistfræðingur hefur áratuga reynslu á sviði sjávarútvegs og á alþjóðavettvangi fiskimála. Þegar Kristján flutti skrifstofu sína í Hús sjávarklasans urðu frumkvöðlar í klasanum þess fljótt varir að með honum kom mikið tengslanet og víðtæk þekking. Kristján hlýtur viðurkenningu klasans fyrir að hafa liðsinnt frumkvöðlum í klasanum við að koma hugmyndum í framkvæmd. Tengsl rótgróinna sjávarútvegsfyrirtækja og frumkvöðla hafa eflst enn frekar með tilkomu Kristjáns í Hús sjávarklasans. 

Danska markaðs- og almannatengslafyrirtækið Coplus hlýtur viðurkenningu Sjávarklasans fyrir að reynast afar traustur bakhjarl frumkvöðla. Coplus hefur boðið frumkvöðlum í Sjávarklasanum aðstoð án endurgjalds við að koma sér betur á framfæri á innlendum og erlendum mörkuðum. Þetta hefur reynst frumkvöðlum ómetanlegt. Coplus hefur aðstoðað mörg af öflugustu framleiðslufyrirtækjum landsins í markaðssetningu og ímyndarvinnu á alþjóðlegum mörkuðum en hefur um leið sýnt frumkvöðlum einstakan áhuga og liðsinnt þeim við að feta sín fyrstu skref á alþjóðamarkað. 

Ólafur Jón Arnbjörnsson skólastjóri Fisktækniskólans hlaut viðurkenningu klasans fyrir ómetanlegt starf í uppbyggingu náms í fiskeldi og eflingu tengsla klasans við Fisktækniskólann. Allt frá því Ólafur Jón hóf starfsemi Fisktækniskólans hefur hann verið ótrauður við að kynna ungu fólki tækifærin í sjávarútvegi og eflt áhuga og þekkingu á því sviði, ekki síst í fiskeldi. Samstarf klasans og Fisktækniskólans hefur verið einstakt og haft mikla þýðingu fyrir uppbyggingarstarf Íslenska sjávarklasans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 27.2.25 545,80 kr/kg
Þorskur, slægður 27.2.25 467,40 kr/kg
Ýsa, óslægð 27.2.25 320,95 kr/kg
Ýsa, slægð 27.2.25 250,18 kr/kg
Ufsi, óslægður 27.2.25 246,10 kr/kg
Ufsi, slægður 27.2.25 258,51 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 30.1.25 16,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 19.2.25 170,00 kr/kg
Gullkarfi 27.2.25 157,65 kr/kg

Fleiri tegundir »

28.2.25 Dagur ÞH 110 Línutrekt
Þorskur 3.581 kg
Ýsa 655 kg
Keila 136 kg
Ufsi 24 kg
Steinbítur 17 kg
Samtals 4.413 kg
28.2.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 12.530 kg
Steinbítur 3.743 kg
Skarkoli 431 kg
Ýsa 257 kg
Samtals 16.961 kg
27.2.25 Jóhanna Gísladóttir GK 357 Botnvarpa
Karfi 18.507 kg
Ýsa 14.570 kg
Samtals 33.077 kg
27.2.25 Hafrafell SU 65 Lína
Ýsa 3.736 kg
Þorskur 965 kg
Langa 88 kg
Steinbítur 54 kg
Ufsi 37 kg
Keila 24 kg
Samtals 4.904 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 27.2.25 545,80 kr/kg
Þorskur, slægður 27.2.25 467,40 kr/kg
Ýsa, óslægð 27.2.25 320,95 kr/kg
Ýsa, slægð 27.2.25 250,18 kr/kg
Ufsi, óslægður 27.2.25 246,10 kr/kg
Ufsi, slægður 27.2.25 258,51 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 30.1.25 16,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 19.2.25 170,00 kr/kg
Gullkarfi 27.2.25 157,65 kr/kg

Fleiri tegundir »

28.2.25 Dagur ÞH 110 Línutrekt
Þorskur 3.581 kg
Ýsa 655 kg
Keila 136 kg
Ufsi 24 kg
Steinbítur 17 kg
Samtals 4.413 kg
28.2.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 12.530 kg
Steinbítur 3.743 kg
Skarkoli 431 kg
Ýsa 257 kg
Samtals 16.961 kg
27.2.25 Jóhanna Gísladóttir GK 357 Botnvarpa
Karfi 18.507 kg
Ýsa 14.570 kg
Samtals 33.077 kg
27.2.25 Hafrafell SU 65 Lína
Ýsa 3.736 kg
Þorskur 965 kg
Langa 88 kg
Steinbítur 54 kg
Ufsi 37 kg
Keila 24 kg
Samtals 4.904 kg

Skoða allar landanir »