Lækka rækjuráðgjöf en aldrei meiri ýsa á svæðinu

HAfrannsóknastofnun lækkar ráðgjöf sína vgena rækju við Snæfellsnes. Athygli vekur …
HAfrannsóknastofnun lækkar ráðgjöf sína vgena rækju við Snæfellsnes. Athygli vekur að aldrei hafi fengist meiri ýsa við mælingu rækjustofnsins á svæðinu. mbl.is/Rax

Hafrannsóknastofnun leggur til í samræmi við varúðarsjónarmið að rækjuafli við Snæfellsnes á frá 1. maí síðastliðnum til 15. mars 2024 verði ekki meiri en 375 tonn. Er það 20 tonnum minni ráðlagður hámarksafli á síðasta ári. Verður þetta því fimmta árið í röð þar sem r‘aðgjöf er innan við 500 tonn.

Fram kemur á vef Hafrannsóknastofnunar að stofnvísitala rækju hefur verið töluvert lægri á árunum 2017 til 2023 en á árunum 2008 til 2016. Jafnframt hefur vísitala ungrækju verið lág frá árinu 2014.

Aldrei meiri ýsa

Í tækniskýrslu stofnunarinnar segir að ýsuafli við stofnmælingu rækju við Snæfellsnes hafi sveiflast milli ára en að magn hafi aldrei verið meiri en við mælinguna 2023. Vekur þetta athygli þar sem rækja er algeng bráð fyrir ýsuna.

Ýsugengd hefur á undanförnum árum einnig verið töluverð á Vestfjörðum þar sem rækjustofninn hefur staðið höllum fæti.

Vísitölur ýsu og þorsks í stofnmælingu rækju við Snæfellsnes. Ekki …
Vísitölur ýsu og þorsks í stofnmælingu rækju við Snæfellsnes. Ekki var farið í leiðangur árin 2007, 2021 og 2022. Skjáskot/Hafrannsóknastofnun

Hafa veitt ráðgjöf frá 2002

Rifjað er upp í tækniskýrslu Hafrannsóknastofnunar að ráðgjöf fyrir rækju við Snæfellsnes hafi fyrst verið gefin út árið 2002 en til ársins 2014 var svæðið skilgreint sem úthafsrækjusvæði og ekki var gefið út sérstakt aflamark fyrir svæðið við Snæfellsnes.

„Fiskveiðiárin 2010/2011 til 2013/2014 voru úthafsrækjuveiðar gefnar frjálsar. Sum árin hefur afli við Snæfellsnes farið töluvert yfir ráðlagt aflamark. Árið 2015 ráðlagði Hafrannsóknastofnun að fiskveiðiárið myndi hefjast 1. maí og lyki 15. mars ári síðar. Síðan þá hafa rækjuveiðar ekki verið heimilaðar frá 16. mars til 30. apríl,“ segir í skýrslunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 31.3.25 502,28 kr/kg
Þorskur, slægður 31.3.25 692,69 kr/kg
Ýsa, óslægð 31.3.25 422,79 kr/kg
Ýsa, slægð 31.3.25 312,92 kr/kg
Ufsi, óslægður 31.3.25 166,00 kr/kg
Ufsi, slægður 31.3.25 228,88 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 19.3.25 11,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 31.3.25 262,25 kr/kg

Fleiri tegundir »

1.4.25 Finnur EA 245 Þorskfisknet
Þorskur 698 kg
Samtals 698 kg
1.4.25 Skinney SF 20 Botnvarpa
Þorskur 48.905 kg
Ýsa 23.735 kg
Samtals 72.640 kg
1.4.25 Vörður ÞH 44 Botnvarpa
Þorskur 35.044 kg
Ufsi 30.155 kg
Ýsa 21.801 kg
Langa 1.208 kg
Skarkoli 468 kg
Steinbítur 353 kg
Karfi 151 kg
Skötuselur 104 kg
Þykkvalúra 92 kg
Samtals 89.376 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 31.3.25 502,28 kr/kg
Þorskur, slægður 31.3.25 692,69 kr/kg
Ýsa, óslægð 31.3.25 422,79 kr/kg
Ýsa, slægð 31.3.25 312,92 kr/kg
Ufsi, óslægður 31.3.25 166,00 kr/kg
Ufsi, slægður 31.3.25 228,88 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 19.3.25 11,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 31.3.25 262,25 kr/kg

Fleiri tegundir »

1.4.25 Finnur EA 245 Þorskfisknet
Þorskur 698 kg
Samtals 698 kg
1.4.25 Skinney SF 20 Botnvarpa
Þorskur 48.905 kg
Ýsa 23.735 kg
Samtals 72.640 kg
1.4.25 Vörður ÞH 44 Botnvarpa
Þorskur 35.044 kg
Ufsi 30.155 kg
Ýsa 21.801 kg
Langa 1.208 kg
Skarkoli 468 kg
Steinbítur 353 kg
Karfi 151 kg
Skötuselur 104 kg
Þykkvalúra 92 kg
Samtals 89.376 kg

Skoða allar landanir »

Loka