Prófun íslensks búnaðar verði heimilaður

Allskyns íslenskum búnaði og veiðarfærum hefur verið komið fyrir á …
Allskyns íslenskum búnaði og veiðarfærum hefur verið komið fyrir á og í erlendum skipum, en ekki hefur verið heimilt að stunda prófanir með búnaðinn við Íslandsstrendur. Stefnt er að því að gera breytingar í þeim efnum. mbl.is/Ómar Óskarsson

Stefnt er að því að breyta ákvæðum laga þannig að heimilt verði hér á landi að stunda prófanir á vinnslu- og veiðarfærabúnaði íslenskra aðila um borð í erlendum skipum. Er áætlað að breytingin styðji betur við nýsköpun á þessu sviði en gildandi löggjöf.

Áform um breytingar á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands í þessu skyni hafa verið birt til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda.

Þar er fullyrt að verði ekki gerðar breytingar á gildandi lögum mun það koma niður á samkeppnishæfni greinarinnar hér á landi. „Íslenskir aðilar sem hafa verið að hanna og þjónusta veiði- og vinnslubúnað í fiskiskip hafa ekki getað látið fara fram prófanir hér við land á búnaðinum eftir ísetningu í erlend skip og hefur það neikvæð áhrif á greinina.“

Slippurinn Akureyri er meðal fyrirtækja sem hafa unnið að uppsetningu …
Slippurinn Akureyri er meðal fyrirtækja sem hafa unnið að uppsetningu búnaðar í fjölda erlendra skipa.

Ætlunin er að leiða í lög heimild ráðherra til að veita aðilum „skilyrt, takmörkuð og tímabundin leyfi til veiða til að prófa nýjan vinnslu- og veiðarfærabúnað í skipum. Heimildin verði háð þeim skilyrðum að aflanum sé skilað til viðurkennds uppboðsmarkaðs á Íslandi fyrir sjávarafurðir og andvirði aflans renni til Verkefnasjóðs sjávarútvegsins. Þá verði heimild til að taka sérstakt gjald fyrir afla, sem rennur í ríkissjóð.“

Þá er gert ráð fyrir að tilraunir eða rannsóknir af þessum toga verði framkvæmdar undir eftirliti Hafrannsóknastofnunar, Landhelgisgæslunnar eða Fiskistofu. Gnagi þetta ekki skal vera sérstaklur eftirlitsmaður um borð og er heimilt að láta þann sem fær heimild til tilrauna eða rannsókna greiða fyrir kostnað af eftilitsmanni um borð.

Jafnframt er gert ráð fyrir að heimild til verkefna af þessum toga fylgi skylda til að miðla til Hafrannsóknastonunar upplýsingar um niðurstöður þessara tilrauna eða rannsókna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 27.2.25 545,80 kr/kg
Þorskur, slægður 27.2.25 467,40 kr/kg
Ýsa, óslægð 27.2.25 320,95 kr/kg
Ýsa, slægð 27.2.25 250,18 kr/kg
Ufsi, óslægður 27.2.25 246,10 kr/kg
Ufsi, slægður 27.2.25 258,51 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 30.1.25 16,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 19.2.25 170,00 kr/kg
Gullkarfi 27.2.25 157,70 kr/kg

Fleiri tegundir »

28.2.25 Dagur ÞH 110 Línutrekt
Þorskur 3.581 kg
Ýsa 655 kg
Keila 136 kg
Ufsi 24 kg
Steinbítur 17 kg
Samtals 4.413 kg
28.2.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 12.530 kg
Steinbítur 3.743 kg
Skarkoli 431 kg
Ýsa 257 kg
Samtals 16.961 kg
27.2.25 Jóhanna Gísladóttir GK 357 Botnvarpa
Karfi 18.507 kg
Ýsa 14.570 kg
Samtals 33.077 kg
27.2.25 Hafrafell SU 65 Lína
Ýsa 3.736 kg
Þorskur 965 kg
Langa 88 kg
Steinbítur 54 kg
Ufsi 37 kg
Keila 24 kg
Samtals 4.904 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 27.2.25 545,80 kr/kg
Þorskur, slægður 27.2.25 467,40 kr/kg
Ýsa, óslægð 27.2.25 320,95 kr/kg
Ýsa, slægð 27.2.25 250,18 kr/kg
Ufsi, óslægður 27.2.25 246,10 kr/kg
Ufsi, slægður 27.2.25 258,51 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 30.1.25 16,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 19.2.25 170,00 kr/kg
Gullkarfi 27.2.25 157,70 kr/kg

Fleiri tegundir »

28.2.25 Dagur ÞH 110 Línutrekt
Þorskur 3.581 kg
Ýsa 655 kg
Keila 136 kg
Ufsi 24 kg
Steinbítur 17 kg
Samtals 4.413 kg
28.2.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 12.530 kg
Steinbítur 3.743 kg
Skarkoli 431 kg
Ýsa 257 kg
Samtals 16.961 kg
27.2.25 Jóhanna Gísladóttir GK 357 Botnvarpa
Karfi 18.507 kg
Ýsa 14.570 kg
Samtals 33.077 kg
27.2.25 Hafrafell SU 65 Lína
Ýsa 3.736 kg
Þorskur 965 kg
Langa 88 kg
Steinbítur 54 kg
Ufsi 37 kg
Keila 24 kg
Samtals 4.904 kg

Skoða allar landanir »