Stórfelld aukning í VS-afla hefur átt sér stað undanfarin ár, en VS-afli sem er afli sem skipstjóra er heimilt að ákveða að reiknist ekki til kvóta skipsins. Þessi heimild takmarkast við 0,5% af uppsjávarafla og 5% af öðrum sjávarafla og er hugsunin að þetta úrræði dragi úr brottkasti á afla sem viðkomandi fiskiskip hafi ekki veiðiheimildir fyrir.
Fiskistofa tók upp eftirlit með drónum árið 2021 og sást þá brottkast í 44,26% af eftirlitsflugi stofnunarinnar. Hlutfallið var síðan orðið 30,92% árið 2022. „Heilt yfir má telja að það hafi dregið úr brottkasti. Ástandið er engu að síður það að brottkast er greint í 20% flugferða það sem af er ári,“ segir Elín B. Ragnarsdóttir, sviðsstjóri veiðieftirlits hjá stofnuninni, í síðasta blaði 200 mílna.
Samkvæmt skráningu Fiskistofu hefur á yfirstandandi fiskveiðiári verið landað 6.683 tonnum af svokölluðum VS-afla sem er 63% aukningt frá síðasta fiskveiðiári. Þar af er rétt rúmur helmingur þorskur, eða tæp 3.556 tonn, og er það 62% aukning frá fyrra fiskveiðiári. Jafnframt eykst ýsuafli sem skráður er sem VS-afli um 51% í 2.171 tonn, en gullkarfi sem flokkaður er sem slíkur afli er kominn í 586 tonn sem er tæplega fjórföldun frá fiskveiðiárinu 2021/2022.
Elín segir ekki liggja fyrir nákvæm skýring á þessari þróun og enn eigi eftir að greina betur stöðuna. Hins vegar eru vísbendingar um að dregið hafi úr brottkasti og kann að vera að skipstjórar séu í auknum mæli að nýta VS-aflaheimildina.
Nánar er fjallað um málið í síðasta blaði 200 mílna.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 22.12.24 | 710,33 kr/kg |
Þorskur, slægður | 22.12.24 | 707,99 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 22.12.24 | 401,74 kr/kg |
Ýsa, slægð | 22.12.24 | 174,32 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 22.12.24 | 211,11 kr/kg |
Ufsi, slægður | 22.12.24 | 62,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 18.12.24 | 42,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 8.11.24 | 179,00 kr/kg |
Gullkarfi | 22.12.24 | 140,85 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
23.12.24 Kristrún RE 177 Grálúðunet | |
---|---|
Grálúða | 192.678 kg |
Þorskur | 6.879 kg |
Samtals | 199.557 kg |
22.12.24 Júlíus Geirmundsson ÍS 270 Botnvarpa | |
---|---|
Þorskur | 186.991 kg |
Ýsa | 154.221 kg |
Karfi | 48.438 kg |
Ufsi | 9.809 kg |
Steinbítur | 1.935 kg |
Skarkoli | 206 kg |
Þykkvalúra | 151 kg |
Langa | 92 kg |
Samtals | 401.843 kg |
22.12.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót | |
---|---|
Skarkoli | 108 kg |
Ýsa | 35 kg |
Steinbítur | 26 kg |
Sandkoli | 14 kg |
Samtals | 183 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 22.12.24 | 710,33 kr/kg |
Þorskur, slægður | 22.12.24 | 707,99 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 22.12.24 | 401,74 kr/kg |
Ýsa, slægð | 22.12.24 | 174,32 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 22.12.24 | 211,11 kr/kg |
Ufsi, slægður | 22.12.24 | 62,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 18.12.24 | 42,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 8.11.24 | 179,00 kr/kg |
Gullkarfi | 22.12.24 | 140,85 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
23.12.24 Kristrún RE 177 Grálúðunet | |
---|---|
Grálúða | 192.678 kg |
Þorskur | 6.879 kg |
Samtals | 199.557 kg |
22.12.24 Júlíus Geirmundsson ÍS 270 Botnvarpa | |
---|---|
Þorskur | 186.991 kg |
Ýsa | 154.221 kg |
Karfi | 48.438 kg |
Ufsi | 9.809 kg |
Steinbítur | 1.935 kg |
Skarkoli | 206 kg |
Þykkvalúra | 151 kg |
Langa | 92 kg |
Samtals | 401.843 kg |
22.12.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót | |
---|---|
Skarkoli | 108 kg |
Ýsa | 35 kg |
Steinbítur | 26 kg |
Sandkoli | 14 kg |
Samtals | 183 kg |