Segir ferlið hafa legið fyrir frá upphafi

Svandís segir það koma sér á óvart að félagasamtökin geri …
Svandís segir það koma sér á óvart að félagasamtökin geri athugasemdir við form skýrslugerðar eftir á. Samsett mynd

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra segir ummæli félagasamtaka smá­báta­eig­enda, strand­veiðimanna, fisk­fram­leiðenda og út­flytj­enda koma sér á óvart, enda hafi ferli vinnu þeirra í samráðsnefnd verið útskýrt vel fyrir þeim frá upphafi. 

Samtökin gáfu frá sér sameiginlega tilkynningu í dag þar sem þau kölluðu vinnubrögð ráðherra forkastanleg. Segir í tilkynningunni að félagasamtökin hafi ekki fengið að koma sínum athugasemdum á framfæri við gerð skýrslu starfs­hópa Auðlind­ar­inn­ar okk­ar. 

Kemur á óvart á þessum tímapunkti

„Þau eru fyrst og fremst að gera athugasemdir við formið, frekar heldur en innihaldið,“ segir Svandís í samtali við mbl.is

„Þetta hefur verið gagnsætt ferli frá byrjun og verkefnið sem slíkt var kynnt í samráðsgátt stjórnvalda í fyrravor og þar með skipulag vinnunnar. Því kemur á óvart að gerðar séu athugasemdir á þessum tímapunkti.“

Öllum sjónarmiðum haldið til haga

Spurð hvert hlutverk samráðsnefndar sé í raun í slíku ferli og hvort samtökin, sem öll sátu í nefndinni, hafi fengið færi á að koma sínum athugasemdum við skýrslunni á framfæri segir Svandís fjölmarga fundi hafa verið setna og ferlið kynnt vel fyrir þeim. 

„Það voru fjölmargir fundir í samráðsnefnd þar sem rædd voru og reifuð sjónarmið allan tímann. Þeim sjónarmiðum var öllum haldið til haga í vinnunni. Hins vegar er skýrslan sem skilað er skýrsla starfshópana, ekki skýrsla samráðsnefndarinnar, og þetta ferli lá fyrir allan tímann.“

Svandís segir það því koma henni á óvart að samtökin geri athugasemdir við ferlið núna, en ekki á meðan á því stóð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 6.10.24 462,75 kr/kg
Þorskur, slægður 6.10.24 538,69 kr/kg
Ýsa, óslægð 6.10.24 295,44 kr/kg
Ýsa, slægð 6.10.24 193,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 6.10.24 242,08 kr/kg
Ufsi, slægður 6.10.24 173,68 kr/kg
Djúpkarfi 3.10.24 196,31 kr/kg
Gullkarfi 6.10.24 193,84 kr/kg
Litli karfi 25.9.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 4.10.24 19,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

6.10.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.814 kg
Karfi 133 kg
Hlýri 133 kg
Keila 102 kg
Samtals 2.182 kg
6.10.24 Hafrafell SU 65 Lína
Þorskur 1.117 kg
Grálúða 315 kg
Keila 178 kg
Hlýri 90 kg
Karfi 54 kg
Samtals 1.754 kg
6.10.24 Óli Á Stað GK 99 Línutrekt
Þorskur 362 kg
Steinbítur 75 kg
Hlýri 26 kg
Ýsa 19 kg
Keila 19 kg
Karfi 17 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 533 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 6.10.24 462,75 kr/kg
Þorskur, slægður 6.10.24 538,69 kr/kg
Ýsa, óslægð 6.10.24 295,44 kr/kg
Ýsa, slægð 6.10.24 193,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 6.10.24 242,08 kr/kg
Ufsi, slægður 6.10.24 173,68 kr/kg
Djúpkarfi 3.10.24 196,31 kr/kg
Gullkarfi 6.10.24 193,84 kr/kg
Litli karfi 25.9.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 4.10.24 19,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

6.10.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.814 kg
Karfi 133 kg
Hlýri 133 kg
Keila 102 kg
Samtals 2.182 kg
6.10.24 Hafrafell SU 65 Lína
Þorskur 1.117 kg
Grálúða 315 kg
Keila 178 kg
Hlýri 90 kg
Karfi 54 kg
Samtals 1.754 kg
6.10.24 Óli Á Stað GK 99 Línutrekt
Þorskur 362 kg
Steinbítur 75 kg
Hlýri 26 kg
Ýsa 19 kg
Keila 19 kg
Karfi 17 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 533 kg

Skoða allar landanir »