Sjómannasamband Íslands og Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi undirrituðu í dag nýjan kjarasamning, en samningar hafa verið lausir frá árinu 2019. Nýr samningur var gerður í fyrra en felldur í atkvæðagreiðslu sjómanna.
Í tilkynningu frá Sjómannasambandinu kemur fram að samningaviðræður um nýjan samning hafi staðið yfir síðustu mánuði. Tekið hafi verið mið af þeim athugasemdum og gagnrýni sem komu fram í umræðum um samninginn sem var felldur í fyrra.
Nýi samningurinn verður kynntur félagsmönnum á næstunni, en rafræn atkvæðagreiðsla um hann hefst á hádegi 12. febrúar og lýkur föstudaginn 16. febrúar klukkan 15:00.
„Við erum núna í þeirri stöðu að vera með kjarasamning í höndunum sem við undirritum og fer í kynningu og í atkvæðagreiðslu í framhaldinu hjá sjómönnum innan okkar félaga. Að mínu mati er þetta góður samningur og við höfum náð að semja um flest þau atriði sem gagnrýnd voru í samningnum sem var felldur í fyrra. Núna eru sjómenn í góðri stöðu til að samþykkja samning sem verður með binditíma í 5 ár og ég vonast eftir því að samningurinn verði samþykktur,“ er haft eftir Valmundi Valmundssyni, formanni Sjómannasambandsins í tilkynningunni.
Í nýja samningnum er binditími samningsins styttur úr 10 árum í 5 ár. Það felur í sér að sjómenn geta sagt samningnum upp eftir 5 ár og svo aftur eftir 7 ár. Fram kemur í tilkynningunni að um grundvallarbreytingu sé að ræða.
Þá er einnig tekið út að samningsbundinn gerðardómur leysi úr ágreiningi sem komið getur upp milli aðila, en í staðinn verði skipuð hlutlaus óvinhöll nefnd sem hafi það hlutverk. Ef ekki næst samkomulag um nefndarmenn eigi ríkissáttasemjari að koma að skipan nefndarmanna.
Þá er einnig gerð breyting í samningnum um að ísun yfir fiskikör sem fara í gáma til sölu erlendis sé ekki lengur á hendi skipverja nema í neyðartilvikum. Útgerðarmenn eiga að semja við löndunargengi á staðnum um að ísa yfir körin sem fara í gámana og eiga skipverjar frí við löndun. Ef sjómenn sjá um yfirísun sjálfir í neyðartilfellum fár þeir greidda yfirvinnu fyrir.
Þá er framlag í lífeyrissjóð hækkað úr 12% í 15,5%, líkt og í síðasta samningi.
Sjómenn fá 400.000 króna eingreiðslu frá útgerðarfyrirtækjum ef samningur verður samþykktur. Miðað er við 160 lögskráningardaga á síðasta ári. Þetta er viðbót frá fyrri samningi, en greiðslan kemur til greiðslu 1. mars.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 19.9.24 | 606,32 kr/kg |
Þorskur, slægður | 19.9.24 | 383,70 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 19.9.24 | 279,12 kr/kg |
Ýsa, slægð | 19.9.24 | 249,00 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.9.24 | 253,40 kr/kg |
Ufsi, slægður | 19.9.24 | 322,53 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 19.9.24 | 329,86 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
19.9.24 Kristján HF 100 Lína | |
---|---|
Keila | 309 kg |
Þorskur | 268 kg |
Karfi | 111 kg |
Steinbítur | 38 kg |
Ufsi | 16 kg |
Ýsa | 5 kg |
Samtals | 747 kg |
19.9.24 Særif SH 25 Lína | |
---|---|
Þorskur | 1.488 kg |
Keila | 367 kg |
Ýsa | 62 kg |
Steinbítur | 58 kg |
Karfi | 25 kg |
Samtals | 2.000 kg |
19.9.24 Elli P SU 206 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 3.183 kg |
Ýsa | 1.120 kg |
Keila | 155 kg |
Langa | 50 kg |
Steinbítur | 37 kg |
Samtals | 4.545 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 19.9.24 | 606,32 kr/kg |
Þorskur, slægður | 19.9.24 | 383,70 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 19.9.24 | 279,12 kr/kg |
Ýsa, slægð | 19.9.24 | 249,00 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.9.24 | 253,40 kr/kg |
Ufsi, slægður | 19.9.24 | 322,53 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 19.9.24 | 329,86 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
19.9.24 Kristján HF 100 Lína | |
---|---|
Keila | 309 kg |
Þorskur | 268 kg |
Karfi | 111 kg |
Steinbítur | 38 kg |
Ufsi | 16 kg |
Ýsa | 5 kg |
Samtals | 747 kg |
19.9.24 Særif SH 25 Lína | |
---|---|
Þorskur | 1.488 kg |
Keila | 367 kg |
Ýsa | 62 kg |
Steinbítur | 58 kg |
Karfi | 25 kg |
Samtals | 2.000 kg |
19.9.24 Elli P SU 206 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 3.183 kg |
Ýsa | 1.120 kg |
Keila | 155 kg |
Langa | 50 kg |
Steinbítur | 37 kg |
Samtals | 4.545 kg |