Mögulega er loðnan fundin

Mögulegt er að loðna hafi fundist við Rósagarðin suðaustur af …
Mögulegt er að loðna hafi fundist við Rósagarðin suðaustur af landinu. mbl.is/Sigurður Aðalsteinsson

Hafrannsóknarstofnun telur mögulegt að töluvert magn af loðnu hafi fundist suðaustur af landinu í gær.

„Það er aðeins betra hljóðið í okkur heldur en í gærmorgun,“ segir Guðmundur J. Óskarsson, sviðsstjóri hjá Hafrannsóknarstofnun, í samtali við mbl.is en fram kom í tilkynningu frá Hafrannsóknarstofnun í gær að lítið hafi mælst af loðnu í febrúarmælingum stofnunarinnar.

Flestir þeirrar skoðunar að um loðnu sé að ræða

Fengin voru uppsjávarskip sem eru á kolmunnaveiðum til að kanna svæðið og seinni partinn í gær rákust þau á torfurnar.

„Það er einhver ganga þarna á ferðinni við Rósagarðinn suðaustur af landinu. Skip á okkar vegum fundu torfur. Flestir eru þeirrar skoðunar að um loðnu sé að ræða miðað við dreifinguna en við höfum ekkert í hendi og höfum ekki fengið nein sýni ennþá. En þetta er óvænt“ segir Guðmundur.

Guðmundur segir að rannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson, sem er statt við sjómælingar fyrir austan, muni halda á staðinn þar sem torfurnar fundust suðvestan við landið. Hann segir að skipið ætti að vera komið á staðinn í kvöld og hefji þá strax mælingar og þá segir hann að skipið Polar Ammassak sé einnig á leiðinni  til mælinga á staðinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 6.10.24 462,75 kr/kg
Þorskur, slægður 6.10.24 551,59 kr/kg
Ýsa, óslægð 6.10.24 292,62 kr/kg
Ýsa, slægð 6.10.24 199,19 kr/kg
Ufsi, óslægður 6.10.24 242,70 kr/kg
Ufsi, slægður 6.10.24 174,07 kr/kg
Djúpkarfi 3.10.24 196,31 kr/kg
Gullkarfi 6.10.24 193,54 kr/kg
Litli karfi 25.9.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 4.10.24 19,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

7.10.24 Vinur SH 34 Handfæri
Þorskur 1.509 kg
Ufsi 32 kg
Samtals 1.541 kg
7.10.24 Steinunn SF 10 Botnvarpa
Þorskur 45.917 kg
Samtals 45.917 kg
7.10.24 Björg EA 7 Botnvarpa
Ýsa 5.882 kg
Samtals 5.882 kg
6.10.24 Víkingur AK 100 Flotvarpa
Kolmunni 1.328.679 kg
Samtals 1.328.679 kg
6.10.24 Silver Dania (LAJI8) NO 999 Rækjuvarpa
Úthafsrækja 199.453 kg
Samtals 199.453 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 6.10.24 462,75 kr/kg
Þorskur, slægður 6.10.24 551,59 kr/kg
Ýsa, óslægð 6.10.24 292,62 kr/kg
Ýsa, slægð 6.10.24 199,19 kr/kg
Ufsi, óslægður 6.10.24 242,70 kr/kg
Ufsi, slægður 6.10.24 174,07 kr/kg
Djúpkarfi 3.10.24 196,31 kr/kg
Gullkarfi 6.10.24 193,54 kr/kg
Litli karfi 25.9.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 4.10.24 19,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

7.10.24 Vinur SH 34 Handfæri
Þorskur 1.509 kg
Ufsi 32 kg
Samtals 1.541 kg
7.10.24 Steinunn SF 10 Botnvarpa
Þorskur 45.917 kg
Samtals 45.917 kg
7.10.24 Björg EA 7 Botnvarpa
Ýsa 5.882 kg
Samtals 5.882 kg
6.10.24 Víkingur AK 100 Flotvarpa
Kolmunni 1.328.679 kg
Samtals 1.328.679 kg
6.10.24 Silver Dania (LAJI8) NO 999 Rækjuvarpa
Úthafsrækja 199.453 kg
Samtals 199.453 kg

Skoða allar landanir »