Síldarvinnslan með 10 milljarða hagnað

Börkur NK og Beitir NK við bryggju í Neskaupstað. Tekjur …
Börkur NK og Beitir NK við bryggju í Neskaupstað. Tekjur Síldarvinnslunnar jukust um 30% milli ára og var síðasta ár eitt af bestu rekstrarárum félagsins til þessa. Ljósmynd/Hampiðjan Neskaupstað

Árið 2023 er sagt eitt besta rekstr­ar­ár Síld­ar­vinnsl­unn­ar hf. til þessa í til­kynn­ingu á vef fé­lags­ins. Skilaði Síld­ar­vinnsl­an hagnaði upp á 73,4 millj­ón­ir banda­ríkja­dali á síðasta ári, jafn­v­irði rétt rúm­lega tíu millj­arða ís­lenskra króna.

Tekj­ur á ár­inu 2023 voru 404,7 millj­ón­ir banda­ríkja­dal­ir sem jafn­gild­ir rúm­lega 55 millj­örðum króna. Það er 30,5% meiri tekj­ur en árið 2022 þegar þær voru rétt rúm­ar 310 millj­ón­ir banda­ríkja­dal­ir. „Tekju­aukn­ing­in skýrist fyrst og fremst af því að þetta var fyrsta heila rekstr­ar­ár Vís­is ehf. í rekstri sam­stæðunn­ar en árið á und­an var Vís­ir ehf. ein­ung­is des­em­ber­mánuð í rekstri sam­stæðunn­ar,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

Fram kem­ur að loðnu­vertíðin í upp­hafi árs hafi verið góð auk þess sem veiðar á mak­ríl gengu vel og fóru veiðarn­ar að mestu fram í ís­lenskri lög­sögu. Einnig gengu síld­veiðar vel um haustið og var stutt að sækja afl­ann. Þá voru mjöl- og lýs­is­markaðir sterk­ir á ár­inu og verð há.

Óvissa tengd Grinda­vík

Þá hef­ur um­fang bol­fisk­starf­semi Síld­ar­vinnsl­unn­ar auk­ist með til­komu Vís­is í sam­stæðuna, en óvissa er sögð með áfram­hald­andi bol­fisk­starf­semi í Grinda­vík í kjöl­far jarðhrær­inga og eld­gosa á Reykja­nesi.

„At­b­urðirn­ir á Reykja­nesi hafa sett land­vinnslu okk­ar í Grinda­vík í ákveðna óvissu. Unnið hef­ur verið að því að koma upp salt­fisks­vinnslu ann­ars staðar til skemmri tíma. Þess­ir at­b­urðir munu ekki skerða rekstr­ar­hæfi fé­lags­ins til lengri tíma litið. Á næstu miss­er­um verður unnið að stefnu­mót­un og end­ur­skipu­lagn­ingu á bol­fisk­hluta sam­stæðunn­ar,“ seg­ir Gunnþór Ingva­son, for­stjóri fé­lags­ins, í til­kynn­ing­unni.

Eldvirknin á Reykjanesskaga hefur haft veruleg áhrif á starfsemi Vísis …
Eld­virkn­in á Reykja­nesskaga hef­ur haft veru­leg áhrif á starf­semi Vís­is í Grinda­vík. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Síld­ar­vinnsl­an fjár­festi í helm­ings­hlut í sölu­fyr­ir­tæk­inu Ice Fresh Sea­food á síðasta ári. Ný­verið var greint frá því að Sam­keppnis­eft­ir­litið hafi ákveðið að hefja rann­sókn á eigna­tengsl­um Síld­ar­vinnsl­unn­ar og Sam­herja vegna viðskipt­anna, en Sam­herji átti Ice Fresh Sea­food að fullu fyr­ir viðskipt­in og fer Sam­herji með rúm 30% í Síld­ar­vinnsl­unni.

„Um mitt ár var til­kynnt um kaup Síld­ar­vinnsl­unn­ar á 50% hlut í sölu­fyr­ir­tæk­inu Ice Fresh Sea­food ehf. en kaup­in eru mik­il­væg til að efla enn frek­ar sölu- og markaðshlið Síld­ar­vinnsl­unn­ar. Við sjá­um auk­in tæki­færi í því að ís­lensk sjáv­ar­út­vegs­fé­lög snúi bök­um sam­an þegar kem­ur að sölu- og markaðsstarfi er­lend­is enda sam­keppni hörð á er­lend­um mörkuðum og sam­keppn­isaðilar sterk­ir. Þar telj­um við að slíkt sam­starf muni skila auk­inni verðmæta­sköp­un,“ seg­ir Gunnþór í til­kynn­ing­unni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 30.5.25 481,29 kr/kg
Þorskur, slægður 30.5.25 644,09 kr/kg
Ýsa, óslægð 30.5.25 569,07 kr/kg
Ýsa, slægð 30.5.25 466,97 kr/kg
Ufsi, óslægður 30.5.25 172,36 kr/kg
Ufsi, slægður 30.5.25 270,32 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.5.25 99,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 30.5.25 200,25 kr/kg
Litli karfi 26.5.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

31.5.25 Hugrún DA 1 Grásleppunet
Grásleppa 792 kg
Rauðmagi 6 kg
Samtals 798 kg
31.5.25 Ás SH 130 Grásleppunet
Grásleppa 793 kg
Samtals 793 kg
31.5.25 Fjóla SH 7 Grásleppunet
Grásleppa 774 kg
Samtals 774 kg
31.5.25 Álka ÍS 409 Sjóstöng
Steinbítur 125 kg
Þorskur 52 kg
Ýsa 17 kg
Samtals 194 kg
31.5.25 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Keila 275 kg
Karfi 74 kg
Steinbítur 24 kg
Samtals 373 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 30.5.25 481,29 kr/kg
Þorskur, slægður 30.5.25 644,09 kr/kg
Ýsa, óslægð 30.5.25 569,07 kr/kg
Ýsa, slægð 30.5.25 466,97 kr/kg
Ufsi, óslægður 30.5.25 172,36 kr/kg
Ufsi, slægður 30.5.25 270,32 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.5.25 99,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 30.5.25 200,25 kr/kg
Litli karfi 26.5.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

31.5.25 Hugrún DA 1 Grásleppunet
Grásleppa 792 kg
Rauðmagi 6 kg
Samtals 798 kg
31.5.25 Ás SH 130 Grásleppunet
Grásleppa 793 kg
Samtals 793 kg
31.5.25 Fjóla SH 7 Grásleppunet
Grásleppa 774 kg
Samtals 774 kg
31.5.25 Álka ÍS 409 Sjóstöng
Steinbítur 125 kg
Þorskur 52 kg
Ýsa 17 kg
Samtals 194 kg
31.5.25 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Keila 275 kg
Karfi 74 kg
Steinbítur 24 kg
Samtals 373 kg

Skoða allar landanir »