Þorsteinn Már skaut föstum skotum á SKE

Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður Síldarvinnslunnar, skaut föstum skotum á Samkeppniseftirlitið …
Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður Síldarvinnslunnar, skaut föstum skotum á Samkeppniseftirlitið á aðalfundi Síldarvinnslunnar. mbl.is/Hákon Pálsson

„Stjórn Síld­ar­vinnsl­unn­ar hef­ur ekki áhyggj­ur af niður­stöðu at­hug­un­ar Sam­keppnis­eft­ir­lits­ins en set­ur hins veg­ar spurn­inga­merki við hvernig stofn­un­in nálg­ast sín viðfangs­efni,“ sagði Þor­steinn Már Bald­vins­son, stjórn­ar­formaður Síld­ar­vinnsl­unn­ar hf., í ræðu sinni á aðal­fundi fé­lags­ins í dag og skaut föst­um skot­um á Sam­keppnis­eft­ir­litið (SKE). Spurði hann hags­muni hverra stofn­un­in væri að gæta og full­yrti að SKE sé oft að veikja stöðu ís­lenskra fyr­ir­tækja í sam­keppn­inni á er­lend­um mörkuðum.

Til­efni orða Þor­steins Más var að eft­ir­litið til­kynnti í fe­brú­ar síðastliðnum að hafið væri um­sagn­ar­ferli vegna fjár­fest­ing­ar Síld­ar­vinnsl­unn­ar á helm­ings­hlut í sölu­fyr­ir­tæk­inu Ice Fresh Sea­food af Sam­herja, sem greint var frá í sept­em­ber í fyrra.

Í til­kynn­ingu SKE sagði að það yrði „sér­stakt at­hug­un­ar­efni hvort slík tengsl séu til staðar, eða séu að mynd­ast með kaup­un­um, að líta beri á fé­lög­in sem eitt og sama fyr­ir­tækið (í sam­keppn­is­rétti nefnt ein efna­hags­leg ein­ing), þ.e. hvort sam­band þeirra sé svo náið að það jafn­gild­ir einni efna­hags­legri ein­ingu en ekki sam­starfi sjálf­stæðra keppi­nauta.“

„Til­kynn­ing Sam­keppnis­eft­ir­lits­ins er merki­leg meðal ann­ars í ljósi þess að stofn­un­in hef­ur margsinn­is áður fjallað um stjórn­un­ar- og eigna­tengsl þess­ara fyr­ir­tækja eða frá ár­inu 2009 án þess að hafa talið þörf á íhlut­un,“ sagði Þor­steinn Már í ræðu sinni.

„Öllum má vera ljóst að Sam­herji stýr­ir ekki Síld­ar­vinnsl­unni sem er hluta­fé­lag sem er rekið í sam­ræmi við ákvæði laga um hluta­fé­lög. Aðal­fund­ur er æðsta ákvörðun­ar­vald í mál­efn­um fé­lags­ins og á milli aðal­funda þess eru það stjórn­in sem ræður. Sam­herji á einn full­trúa í stjórn fé­lags­ins. Dag­leg­um rekstri er stýrt af for­stjóra sem sæk­ir umboð sitt til stjórn­ar. Hlut­haf­ar fé­lags­ins eru í dag á fjórða þúsund og þeirra á meðal eru marg­ir af stærstu líf­eyr­is­sjóðum lands­ins.“

Þá vakti Þor­steinn Már sér­stak­lega at­hygli á því að Sam­herji hafi minnkað eign­ar­hlut sinn í Síld­ar­vinnsl­unni í kjöl­far skrán­ing­ar fé­lags­ins í Kaup­höll vorið 2021. Við þetta fór hlut­ur Sam­herja í Síld­ar­vinnsl­unni úr tæp­lega 45% í 30%.

Með hags­muni hverra í huga?

„Það er ekki ljóst hvaða hags­muni Sam­keppnis­eft­ir­litið á Íslandi er að verja og hvaða sam­keppni stofn­un­in tel­ur sig standa vörð um. Fjár­fest­ing­in í Ice Fresh Sea­food hef­ur eng­in áhrif á ís­lensk­an markað eða sam­keppni hér inn­an­lands enda sel­ur fyr­ir­tækið all­ar afurðir á er­lend­an markað. Hvaða hags­muni er Sam­keppnis­eft­ir­litið þá að verja með sinni at­hug­un? Er stofn­un­in að standa vörð um hags­muni kaup­enda sjáv­ar­af­urða í Evr­ópu og Asíu? Eru það stór­ar versl­un­ar­keðjur í Frakklandi?“ spurði Þor­steinn Már.

Sýndi hann fund­ar­gest­um veltu nokk­urra af þeim versl­un­ar­keðjum sem Ice Fresh Sea­food er í viðskipt­um við. Ice Fresh Sea­food nær hvergi 0,05% af veltu þess­ara fyr­ir­tækja.

„Und­an­far­in ár hef ég ít­rekað bent á að umræðan um stærð ís­lenskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja er á villi­göt­um. Staðreynd­in er sú að ís­lensk­ur sjáv­ar­út­veg­ur í heild sinni er agn­arsmár í sam­an­b­urði við þau risa­vöxnu er­lendu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki sem að við erum í sam­keppni við á er­lend­um mörkuðum,“ sagði stjórn­ar­formaður­inn.

Önnur lög­mál um er­lend fé­lög?

Sagði Þor­steinn Már mun­inn fara vax­andi og benti á alþjóðlegu stór­fyr­ir­tæk­in Mowi og SalM­ar sem bæði eru með starf­semi hér á landi. Mowi er stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyruir­tæki í heimi og nam velta þess um 820 millj­arða króna á síðasta ári, en velta Síld­ar­vinnsl­unn­ar er um 6% af veltu Mowi. Salm­ar er næst stærsta fisk­eld­is­fyriur­tæki í heimi og er jafn­framt eig­andi stærsta upp­sjáv­ar­fé­lags á heimsvísu.

„Þrátt fyr­ir að þessi tvö fé­lög séu bæði með starf­semi á Íslandi, og séu marg­falt stærri en öll ís­lensku sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­in sam­an­lagt, þá voru þau ekki á lista yfir þau þrjá­tíu fyr­ir­tæki sem Sam­keppnis­eft­ir­litið óskaði eft­ir ít­ar­leg­um upp­lýs­ing­um frá á síðasta ári vegna at­hug­un­ar á stjórn­un­ar- og eign­artengsl­um í ís­lensk­um sjáv­ar­út­vegi. Dæmi um fyr­ir­tæki sem at­hug­un sam­keppnis­eft­ir­lits­ins náði til er til dæm­is G.Run í Grund­arf­irði. Mowi er 400 sinn­um stærra fyr­ir­tæki en G.Run sem telst vera stórt og þjóðhags­lega mik­il­vægt fyr­ir­tæki sam­kvæmt Sam­keppnis­eft­ir­lit­inu. Það má því segja að Mowi nái ár­sveltu G.Run um há­deg­is­bil á hverj­um ein­asta virka degi árs­ins, út­skýrði Þor­steinn Már.

Vakti hann at­hygli á að um­rædd at­hug­un SKE á eigna­tengsl­um í ís­lensk­um sjáv­ar­út­vegi hafi reynst ólög­mæt.

„Þessi atriði vekja upp þá spurn­ingu hvort önn­ur lög­mál gildi um er­lend sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki á Íslandi og hvort eft­ir­lits­stofn­an­ir beiti sér síður gegn þeim.“

„Lax er bara lax“

Þor­steinn Már vék máli sínu næst að íhlut­un vegna meintr­ar samþjöpp­un­ar í ís­lensku lax­eldi og snéri að því að það hafi verið sett sem skil­yrði fyr­ir samruna NTS og Salm­ar að sam­einað fé­lag yrði að selja hlut sinn í Arctic Fish, sem Síld­ar­vinnsl­an á þriðjung í.

„Það var Sam­keppnis­eft­ir­litið hér á Íslandi sem tók virk­an þátt og aðstoðaði fram­kvæmda­stjórn ESB í þessu máli,“ sagði hann og benti á að í til­kynn­ingu Ske vegna máls­ins var sér­stak­lega vak­in at­hygli á því. Var talið að samrun­inn myndi leiða til rösk­un á sam­keppni því sam­einað fyr­ir­tæki yrði lang­stærsti fram­leiðandi að ís­lensk­um laxi inn á EES-svæði.

„Sá sem rit­ar þenn­an texta veit greini­lega lítið um lax­eldi og minna um þá markaði sem afurðirn­ar eru seld­ar á. Það er ekki til neinn sér­stak­ur vörumarkaður fyr­ir ís­lensk­an eld­islax enda er hann ræktaður á sama hátt og norski lax­inn og er að auki fram­leidd­ur af fyr­ir­tækj­um í meiri­hluta­eigu Norðmanna.“

Full­yrti Þor­steinn már að þótt lax sé merkt­ur að hann sé frá Íslandi sé hann ekki sjálf­krafa orðinn að sér­vöru. „Enda er markaður fyr­ir lax sá sami og viðskipta­vin­irn­ir þeir sömu. Lax er bara lax. Lax­inn, sama hvort hann sé ræktaður í Fær­eyj­um, Nor­egi eða á Íslandi, kem­ur af sama stofni, fóðraður með sama fóðrinu og end­ar á diskn­um hjá sömu neyt­end­un­um.“

Staðhæf­ing­ar út í blá­inn

Vakti hann at­hygli á því að lax­eld­is­fyr­ir­tæk­in séu hluti af norsku sam­stæðum sem fram­leiða um 800 þúsund tonn af laxi ár­lega ann­ars staðar en á Íslandi. „Trúa menn því að þessi fyr­ir­tæki selji tutt­ugu til þrjá­tíu þúsund tonn af ís­lensk­um laxi, eða lítið brot af heild­ar­fram­leiðslunni, sem ein­hverja sér­vöru? Hvernig er hún frá­brugðin norsk­um, skosk­um eða laxi frá Fær­eyj­um?“

Seld voru um tutt­ugu þúsund tonn af laxi frá Íslandi á evr­ópska markaði í fyrra, en í heild keypti Evr­ópa 1,2 millj­ón­ir tonna af laxi.

„Sam­keppnis­eft­ir­litið tel­ur sig hafa tryggt að Íslend­ing­ar fái minna fyr­ir lax­inn en aðrir fram­leiðend­ur og þar af leiðandi lægri gjald­eyris­tekj­ur fyr­ir þjóðarbúið. Þannig að þessi full­yrðing Sam­keppnis­eft­ir­lits­ins um „sér­stak­an vörumarkað“ er bara út í blá­inn,“ sagði Þor­steinn Már.

Full­yrti hann að SKE væri í mörg­um til­vik­um að „gera ís­lensk­um fyr­ir­tækj­um, sem starfa á er­lend­um mörkuðum í sam­keppni við risa­vaxna keppi­nauta, erfitt fyr­ir. Íslensk fyr­ir­tæki eru oft á tíðum með litla markaðshlut­deild á þeim mörkuðum sem þau selja afurðir sín­ar á.“

Fór hann ekki út í get­gát­ur um „hvers vegna Sam­keppnis­eft­ir­litið tel­ur þetta vera í sín­um verka­hring og hvaða hags­muni stofn­un­in tel­ur sig vera að verja með fram­göngu sinni.“ Það væri verk­efni annarra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 30.5.25 481,29 kr/kg
Þorskur, slægður 30.5.25 644,09 kr/kg
Ýsa, óslægð 30.5.25 569,07 kr/kg
Ýsa, slægð 30.5.25 466,97 kr/kg
Ufsi, óslægður 30.5.25 172,36 kr/kg
Ufsi, slægður 30.5.25 270,32 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.5.25 99,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 30.5.25 200,25 kr/kg
Litli karfi 26.5.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

31.5.25 Hugrún DA 1 Grásleppunet
Grásleppa 792 kg
Rauðmagi 6 kg
Samtals 798 kg
31.5.25 Ás SH 130 Grásleppunet
Grásleppa 793 kg
Samtals 793 kg
31.5.25 Fjóla SH 7 Grásleppunet
Grásleppa 774 kg
Samtals 774 kg
31.5.25 Álka ÍS 409 Sjóstöng
Steinbítur 125 kg
Þorskur 52 kg
Ýsa 17 kg
Samtals 194 kg
31.5.25 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Keila 275 kg
Karfi 74 kg
Steinbítur 24 kg
Samtals 373 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 30.5.25 481,29 kr/kg
Þorskur, slægður 30.5.25 644,09 kr/kg
Ýsa, óslægð 30.5.25 569,07 kr/kg
Ýsa, slægð 30.5.25 466,97 kr/kg
Ufsi, óslægður 30.5.25 172,36 kr/kg
Ufsi, slægður 30.5.25 270,32 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.5.25 99,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 30.5.25 200,25 kr/kg
Litli karfi 26.5.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

31.5.25 Hugrún DA 1 Grásleppunet
Grásleppa 792 kg
Rauðmagi 6 kg
Samtals 798 kg
31.5.25 Ás SH 130 Grásleppunet
Grásleppa 793 kg
Samtals 793 kg
31.5.25 Fjóla SH 7 Grásleppunet
Grásleppa 774 kg
Samtals 774 kg
31.5.25 Álka ÍS 409 Sjóstöng
Steinbítur 125 kg
Þorskur 52 kg
Ýsa 17 kg
Samtals 194 kg
31.5.25 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Keila 275 kg
Karfi 74 kg
Steinbítur 24 kg
Samtals 373 kg

Skoða allar landanir »