Hafna „umframbótum“ vegna vatnslagnar til Eyja

Guðmundur Örn Gunnarsson, stjórnarformaður Vinnslustöðvarinnar, upplýsti að fyrirtækið hafni hugmyndum …
Guðmundur Örn Gunnarsson, stjórnarformaður Vinnslustöðvarinnar, upplýsti að fyrirtækið hafni hugmyndum um bætur umfram það sem fyrirtækinu ber lagaleg skylda til vegna tjóns á vatnslögn til Vestmannaeyja. mbl.is/Golli

Vinnslustöðin hafnar hugmyndum bæjarstjórnar Vestmannaeyjabæjar um einhverskonar umframbætur vegna tjóns sem varð á vatnslögn eftir að akkeri Hugins VE festist í henni í nóvember á síðasta ári. Bæjaryfirvöld benda á að tryggingafélag útgerðarinnar hefur viðurkennt bótaskyldu en að tjónið er umfram hámark vátryggingabóta.

„Vinnslustöðin hefur kappkostað að hafa vátryggingavernd sem uppfyllir allar kröfur sem eðlilegar geti talist. Okkur þykir miður ef tjónabæturnar duga ekki til að bæta tjónið að fullu en endanlegt mat tjónsins liggur ekki fyrir,“ sagði Guðmundur Örn Gunnarsson, stjórnarformaður Vinnslustöðvarinnar, á aðalfundi félagsins sem haldinn var í síðustu viku.

„Ef eigendur vatnsleiðslunnar hefðu vátryggt vatnsleiðsluna myndi sú vátrygging bæta það tjón umfram hið lögbundna hámark ef tjónið væri hærra,“ sagði hann.

Fordæmalausar „umframbætur“

Ræddi Guðmundur Örn málið undir liðnum skýrsla stjórnar og sagði hann um að ræða óhapp með „afleiðingar sem eigendur og stjórnendur Vinnslustöðvarinnar tóku nærri sér og lögðu sig eftir að draga úr skaðanum að svo miklu leyti sem þeim var unnt miðað við aðstæður.“

Benti hann á að félagið og öll fyrirtæki innan samstæðunnar séu tryggð gagnvart tjóni af ýmsu tagi í starfsemi sinni. „Vátryggingabætur eru greiddar samkvæmt gildandi skilmálum, lögum og alþjóðlegum samningum. […] Tryggingafélag Vinnslustöðvarinnar, VÍS, hefur viðurkennt bótaskyldu vegna vatnsleiðslunnar að tilteknu hámarki samkvæmt siglingalögum.“

Bæjarstjórn Vestmannaeyjabæjar samþykkti tillögu 21.mars síðastliðinn um að „leitast við, í samstarfi við  HS Veitur, eiganda vatnsveitunnar, að sækja frekari bótagreiðslur til útgerðarinnar til að tryggja skaðleysi íbúa Vestmannaeyjabæjar vegna tjónsins.“

Fram kemur í fundargerð bæjarráðs Vestmannaeyjabæjar frá síðastliðnum föstudag (5. apríl) að fulltrúar bæjaryfirvalda og HS Veitna hyggjast funda með Vinnslustöðinni í þessari viku vegna frekari tjónabóta.

Í erindi sínu í síðustu viku sagði Guðmundur Örn að Vinnslustöðin hafi þegar svarað slíkum hugmyndum „og fellst ekki á erindið enda eru slíkar „umframbætur“ án fordæma að því er við best vitum og engan veginn í samræmi við þau lög og alþjóðasamninga sem um slík tjón gilda.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 31.3.25 502,10 kr/kg
Þorskur, slægður 31.3.25 695,28 kr/kg
Ýsa, óslægð 31.3.25 417,21 kr/kg
Ýsa, slægð 31.3.25 312,92 kr/kg
Ufsi, óslægður 31.3.25 170,64 kr/kg
Ufsi, slægður 31.3.25 228,61 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 19.3.25 11,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 31.3.25 262,06 kr/kg

Fleiri tegundir »

31.3.25 Tjálfi SU 63 Þorskfisknet
Þorskur 3.545 kg
Samtals 3.545 kg
31.3.25 Háey I ÞH 295 Lína
Þorskur 1.208 kg
Steinbítur 605 kg
Keila 195 kg
Hlýri 90 kg
Ýsa 19 kg
Ufsi 13 kg
Skarkoli 5 kg
Karfi 2 kg
Samtals 2.137 kg
31.3.25 Ásdís ÍS 2 Botnvarpa
Þorskur 2.464 kg
Steinbítur 2.081 kg
Skarkoli 853 kg
Sandkoli 105 kg
Grásleppa 77 kg
Þykkvalúra 10 kg
Samtals 5.590 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 31.3.25 502,10 kr/kg
Þorskur, slægður 31.3.25 695,28 kr/kg
Ýsa, óslægð 31.3.25 417,21 kr/kg
Ýsa, slægð 31.3.25 312,92 kr/kg
Ufsi, óslægður 31.3.25 170,64 kr/kg
Ufsi, slægður 31.3.25 228,61 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 19.3.25 11,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 31.3.25 262,06 kr/kg

Fleiri tegundir »

31.3.25 Tjálfi SU 63 Þorskfisknet
Þorskur 3.545 kg
Samtals 3.545 kg
31.3.25 Háey I ÞH 295 Lína
Þorskur 1.208 kg
Steinbítur 605 kg
Keila 195 kg
Hlýri 90 kg
Ýsa 19 kg
Ufsi 13 kg
Skarkoli 5 kg
Karfi 2 kg
Samtals 2.137 kg
31.3.25 Ásdís ÍS 2 Botnvarpa
Þorskur 2.464 kg
Steinbítur 2.081 kg
Skarkoli 853 kg
Sandkoli 105 kg
Grásleppa 77 kg
Þykkvalúra 10 kg
Samtals 5.590 kg

Skoða allar landanir »