Fjölguðu veiðidögum í annað sinn um 15

Grásleppubátar fá 55 veiðidaga í stað 40 sem ákveðið var …
Grásleppubátar fá 55 veiðidaga í stað 40 sem ákveðið var fyrr í mánuðinum. Upphaflega var þeim úthutaðir 25 dagar. mbl.is/Hafþór

Veiðidög­um á grá­sleppu­vertíðinni hef­ur verið fjölgað úr 40 í 55 sam­kvæmt reglu­gerð sem gef­in var út í gær. Um­gjörð veiðanna virðist taka tíðum breyt­ing­um.

Fiski­stofa kveðst í til­kynn­ingu á vef sín­um fjölga dög­um hjá þeim skip­um sem eru á grá­sleppu­veiðum eða eiga eft­ir að fara á grá­sleppu­veiðar.

Lands­sam­band smá­báta­eig­enda (LS) kveðst í færslu á vef sín­um leita svara hjá Mat­vælaráðuneyt­inu um hvaða aðstæður hafi komið upp sem leitt hafi til þess að ákveðið hafi verið að fjölga veiðidög­um eins ræki­lega og raun ber vitni.

Er þetta önn­ur ákvörðunin um fjölg­un veiðidaga í þess­um mánuði en þeim var í byrj­un apríl fjölgað úr 25 í 40.

Veiðitíma­bili skyndi­lega flýtt

Vertíð þessa árs er nokkuð frá­brugðin þeirri síðustu. Tók Katrín Jak­obs­dótt­ir, sem þá var staðgeng­ill mat­vælaráðherra, ákvörðun um að flýta upp­hafi grá­sleppu­veiða um 19 daga með aðeins viku fyr­ir­vara. Hóf­ust því grá­sleppu­veiðarn­ar 1. mars og féll það mis­jafnt í grá­sleppu­sjó­menn enda voru þeir mis­langt komn­ir í und­ir­bún­ingi vertíðar­inn­ar.

LS sagði þá helstu ástæðu þess að ætti að hefja veiðar fyrr væri „að á und­an­förn­um árum hef­ur markaður fyr­ir fersk grá­sleppu­hrogn í Dan­mörku farið vax­andi. Sam­fara hef­ur út­flutn­ing­ur héðan auk­ist jafnt og þétt og skilað góðu verði til sjó­manna og út­flytj­enda. Markaður­inn er þó enn tak­markaður við tím­ann frá ára­mót­um og fram að pásk­um. Þar sem pásk­ar eru mjög snemma í ár, páska­dag­ur 31. mars, er hætt við að ís­lensk­ir sjó­menn geti ekki nýtt sér eða annað markað fyr­ir fersk grá­sleppu­hrogn hefj­ist vertíðin 20. mars.“

Á fyrstu dög­um vertíðar­inn­ar var verð á grá­slepp­unni hátt, um 600 krón­ur á kíló. Eft­ir því sem leið á vertíðina varð verðhrun.

Heim­iluðu hlé

Í kjöl­far verðhruns­ins var ákveðið að heim­ila grá­sleppu­bát­um sem hófu veiðar á ríma­bil­inu 1. til 20. mars að gera hlé á veiðum og geyma veiðidaga sína þar til hefðbundið veiðitíma­bil tók við eft­ir 20. mars. Myndu þá hefjast sam­felld­ir veiðidag­ar að frá­dregn­um þeim dög­um sem þegar hafa verið notaðir.

Verð hækkaði aðeins í kjöl­farið en óhætt er að segja að síðustu daga hef­ur verð verið held­ur lágt. Frá 19. apríl hef­ur verð verið und­ir hundrað krón­um á kíló.

Greint er frá því á vef LS að 21. apríl voru grá­sleppu­bát­arn­ir bún­ir að veiða 1.151 tonn af þeim 4.030 tonn­um sem heim­ilt er að veiða á vertíðinni. Afl­inn hef­ur feng­ist í 792 lönd­un­um og hef­ur því hver lönd­un skilað 1,45 tonni, en 97 bát­ar hafa hafið veiðar.

Fram til 21. apríl á síðasta ári voru grá­sleppu­bát­arn­ir bún­ir að ná 1.330 tonn­um og höfðu 107 bát­ar hafið veiðar. Afli í hverri lönd­un var þá 1,48 tonn og er því svipað og á þessu ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 30.5.25 481,29 kr/kg
Þorskur, slægður 30.5.25 644,09 kr/kg
Ýsa, óslægð 30.5.25 569,07 kr/kg
Ýsa, slægð 30.5.25 466,97 kr/kg
Ufsi, óslægður 30.5.25 172,36 kr/kg
Ufsi, slægður 30.5.25 270,32 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.5.25 99,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 30.5.25 200,25 kr/kg
Litli karfi 26.5.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

31.5.25 Hugrún DA 1 Grásleppunet
Grásleppa 792 kg
Rauðmagi 6 kg
Samtals 798 kg
31.5.25 Ás SH 130 Grásleppunet
Grásleppa 793 kg
Samtals 793 kg
31.5.25 Fjóla SH 7 Grásleppunet
Grásleppa 774 kg
Samtals 774 kg
31.5.25 Álka ÍS 409 Sjóstöng
Steinbítur 125 kg
Þorskur 52 kg
Ýsa 17 kg
Samtals 194 kg
31.5.25 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Keila 275 kg
Karfi 74 kg
Steinbítur 24 kg
Samtals 373 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 30.5.25 481,29 kr/kg
Þorskur, slægður 30.5.25 644,09 kr/kg
Ýsa, óslægð 30.5.25 569,07 kr/kg
Ýsa, slægð 30.5.25 466,97 kr/kg
Ufsi, óslægður 30.5.25 172,36 kr/kg
Ufsi, slægður 30.5.25 270,32 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.5.25 99,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 30.5.25 200,25 kr/kg
Litli karfi 26.5.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

31.5.25 Hugrún DA 1 Grásleppunet
Grásleppa 792 kg
Rauðmagi 6 kg
Samtals 798 kg
31.5.25 Ás SH 130 Grásleppunet
Grásleppa 793 kg
Samtals 793 kg
31.5.25 Fjóla SH 7 Grásleppunet
Grásleppa 774 kg
Samtals 774 kg
31.5.25 Álka ÍS 409 Sjóstöng
Steinbítur 125 kg
Þorskur 52 kg
Ýsa 17 kg
Samtals 194 kg
31.5.25 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Keila 275 kg
Karfi 74 kg
Steinbítur 24 kg
Samtals 373 kg

Skoða allar landanir »