Sigurður Bogi Sævarsson
„Þetta gerðist allt í einu og mér að óvörum. Raunar átta ég mig ekki á því hvernig atburðarásin nákvæmlega var,“ segir Þorvaldur Árnason sjómaður og lyfjafræðingur. Hann var á strandveiðibátnum Höddu HF 52 sem hvolfdi út af Garðskaga í fyrrinótt. Þorvald sakaði ekki en hann lokaðist inni og fór niður þegar bátnum hvolfdi. Áður hafði honum tekist að klæða sig í björgunargalla, sem sjór flæddi inn í.
Sjómaður á nálægum bát bjargaði Þorvaldi um borð og fór með hann til Sandgerðis. Björgunarskip dró Höddu HF til hafnar og á fyrstu stigum voru þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og nálæg skip í viðbragðsstöðu.
„Ég er búinn að hluta til að gefa skýrslu vegna þessa atviks hjá lögreglu og fer aftur. Mestu skiptir núna að ég er óslasaður og líður ágætlega,“ sagði Þorvaldur við Morgunblaðið í gær.
Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar hvort erlenda flutningaskipið Longdawn, sem var úti af Garðskaga í fyrrinótt, eigi þátt í því að Höddu hvolfdi. Landhelgisgæslan beindi í gær Longdawn inn til hafnar í Vestmannaeyjum þar sem skýrsla var tekin af skipstjóra. Myndir sem teknar voru í Eyjum í gær sýna nýlegar skemmdir á perustefni flutningaskipsins.
„Trúlega rákumst við saman, þessi útlendi dallur og ég,“ sagði Þorvaldur Árnason. Hann kvaðst í stuttu samtali ekki geta tjáð sig um málsatvik að öðru leyti.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 4.10.24 | 453,42 kr/kg |
Þorskur, slægður | 4.10.24 | 461,60 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 4.10.24 | 232,47 kr/kg |
Ýsa, slægð | 4.10.24 | 188,59 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 4.10.24 | 215,68 kr/kg |
Ufsi, slægður | 4.10.24 | 238,63 kr/kg |
Djúpkarfi | 3.10.24 | 196,31 kr/kg |
Gullkarfi | 4.10.24 | 185,92 kr/kg |
Litli karfi | 25.9.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 4.10.24 | 19,00 kr/kg |
5.10.24 Aðalsteinn Jónsson SU 11 Flotvarpa | |
---|---|
Kolmunni | 2.185.810 kg |
Samtals | 2.185.810 kg |
5.10.24 Óli Á Stað GK 99 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 578 kg |
Keila | 354 kg |
Steinbítur | 127 kg |
Ýsa | 21 kg |
Hlýri | 15 kg |
Karfi | 12 kg |
Ufsi | 5 kg |
Skarkoli | 1 kg |
Samtals | 1.113 kg |
5.10.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Ýsa | 4.374 kg |
Þorskur | 3.798 kg |
Steinbítur | 442 kg |
Langa | 157 kg |
Hlýri | 157 kg |
Skarkoli | 90 kg |
Karfi | 9 kg |
Samtals | 9.027 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 4.10.24 | 453,42 kr/kg |
Þorskur, slægður | 4.10.24 | 461,60 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 4.10.24 | 232,47 kr/kg |
Ýsa, slægð | 4.10.24 | 188,59 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 4.10.24 | 215,68 kr/kg |
Ufsi, slægður | 4.10.24 | 238,63 kr/kg |
Djúpkarfi | 3.10.24 | 196,31 kr/kg |
Gullkarfi | 4.10.24 | 185,92 kr/kg |
Litli karfi | 25.9.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 4.10.24 | 19,00 kr/kg |
5.10.24 Aðalsteinn Jónsson SU 11 Flotvarpa | |
---|---|
Kolmunni | 2.185.810 kg |
Samtals | 2.185.810 kg |
5.10.24 Óli Á Stað GK 99 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 578 kg |
Keila | 354 kg |
Steinbítur | 127 kg |
Ýsa | 21 kg |
Hlýri | 15 kg |
Karfi | 12 kg |
Ufsi | 5 kg |
Skarkoli | 1 kg |
Samtals | 1.113 kg |
5.10.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Ýsa | 4.374 kg |
Þorskur | 3.798 kg |
Steinbítur | 442 kg |
Langa | 157 kg |
Hlýri | 157 kg |
Skarkoli | 90 kg |
Karfi | 9 kg |
Samtals | 9.027 kg |