Átakanlegt að missa fyrirtækið úr bænum

Gestur Þór vonast til þess að starfsmennirnir fái vinnu áfram …
Gestur Þór vonast til þess að starfsmennirnir fái vinnu áfram í Þorlákshöfn. mbl.is/Sigurður Bogi

For­seti bæj­ar­stjórn­ar Ölfuss seg­ir að það sé til­finn­inga­lega átak­an­legt að missa Ísfé­lagið úr Þor­láks­höfn. Fyrr á ár­inu misstu níu manns vinn­una hjá fisk­vinnsl­unni og á miðviku­dag­inn fengu þeir 26 starfs­menn sem eft­ir voru að vita að upp­sögn væri í vænd­um.

„Okk­ur finnst þetta frek­ar sorg­legt að fyr­ir­tæki af þess­ari gerð sé að hverfa úr sam­fé­lag­inu. Þetta er eitt af stærstu fisk­vinnslu- og út­gerðarfyr­ir­tækj­um í Þor­láks­höfn,“ seg­ir Gest­ur Þór Kristjáns­son, for­seti bæj­ar­stjórn­ar Ölfuss, í sam­tali við mbl.is.

Von­ar að fólk fái vinnu í Þor­láks­höfn

Flest­ir starfs­menn­irn­ir sem eru að missa vinn­una eru bú­sett­ir í Þor­láks­höfn.

„Von­andi fá þau vinnu hér áfram. Ég veit að þeir [Ísfé­lagið] hafa sjálf­ir verið að reyna hjálpa fólki við að fá vinnu ann­ars staðar,“ seg­ir Gest­ur.

Er vinnu að fá í Ölfusi?

„Já það er í raun ekk­ert at­vinnu­leysi þannig von­andi fær þetta fólk vinnu hérna áfram. Fólk sem er búið að vinna hérna lengi og skjóta hér rót­um.“

Gestur Þór Kristjánsson, forseti bæjarstjórnar Ölfuss.
Gest­ur Þór Kristjáns­son, for­seti bæj­ar­stjórn­ar Ölfuss. Ljós­mynd/​Aðsend

Hryggj­ar­stykkið í vinnsl­unni horfið

Bæj­ar­stjórn Ölfuss fékk form­lega að vita af áform­um Ísfé­lags­ins á fimmtu­dag en degi á und­an hafði fé­lagið til­kynnt starfs­mönn­um sín­um að upp­sagn­ir væru í vænd­um í næstu viku.

Stefán Friðriks­son, for­stjóri Ísfé­lags­ins, sagði í sam­tali við mbl.is í morg­un að eft­ir að humar­veiðum var hætt árið 2021 hafi hryggj­ar­stykkið í vinnsl­unni horfið.

Ísfé­lagið rek­ur frysti­hús og fiski­mjöls­verk­smiðju í Vest­manna­eyj­um og á Þórs­höfn, frysti­hús í Þor­láks­höfn og rækju­verk­smiðju á Sigluf­irði. Stefán sagði að vinnsl­urn­ar í Vest­manna­eyj­um og á Þórs­höfn anni því hrá­efni sem Ísfé­lagið hef­ur yfir að ráða.

Gest­ur nefn­ir að Þor­láks­höfn sé upp­haf­lega byggð upp í kring­um út­gerð og fisk­vinnslu og því sé til­finn­inga­lega átak­an­legt að horfa á eft­ir fyr­ir­tæk­inu fara úr bæn­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 4.6.25 650,95 kr/kg
Þorskur, slægður 4.6.25 876,67 kr/kg
Ýsa, óslægð 4.6.25 710,37 kr/kg
Ýsa, slægð 4.6.25 852,00 kr/kg
Ufsi, óslægður 4.6.25 376,37 kr/kg
Ufsi, slægður 4.6.25 406,42 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.5.25 99,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 4.6.25 541,73 kr/kg
Litli karfi 26.5.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

4.6.25 Ás BA 19 Handfæri
Þorskur 290 kg
Samtals 290 kg
4.6.25 Sæljómi BA 59 Handfæri
Þorskur 765 kg
Samtals 765 kg
4.6.25 Bylgja BA 6 Handfæri
Þorskur 499 kg
Samtals 499 kg
4.6.25 Mardöll BA 37 Handfæri
Þorskur 794 kg
Samtals 794 kg
4.6.25 Vinur BA 35 Handfæri
Þorskur 546 kg
Samtals 546 kg
4.6.25 Tryllir BA 275 Handfæri
Þorskur 702 kg
Samtals 702 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 4.6.25 650,95 kr/kg
Þorskur, slægður 4.6.25 876,67 kr/kg
Ýsa, óslægð 4.6.25 710,37 kr/kg
Ýsa, slægð 4.6.25 852,00 kr/kg
Ufsi, óslægður 4.6.25 376,37 kr/kg
Ufsi, slægður 4.6.25 406,42 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.5.25 99,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 4.6.25 541,73 kr/kg
Litli karfi 26.5.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

4.6.25 Ás BA 19 Handfæri
Þorskur 290 kg
Samtals 290 kg
4.6.25 Sæljómi BA 59 Handfæri
Þorskur 765 kg
Samtals 765 kg
4.6.25 Bylgja BA 6 Handfæri
Þorskur 499 kg
Samtals 499 kg
4.6.25 Mardöll BA 37 Handfæri
Þorskur 794 kg
Samtals 794 kg
4.6.25 Vinur BA 35 Handfæri
Þorskur 546 kg
Samtals 546 kg
4.6.25 Tryllir BA 275 Handfæri
Þorskur 702 kg
Samtals 702 kg

Skoða allar landanir »