Jens Þórðarson, framkvæmdastjóri landeldisfyrirtækisins Geo Salmo í Þorlákshöfn, segir í samtali við ViðskiptaMoggann að framkvæmdafé fyrirtækisins verði í bland bankafjármögnun og hlutafé.
„Í raun erum við að safna fé í tveimur til þremur skrefum. Nú erum við með hlutafjáraukningu í gangi sem kemur til viðbótar þeim tveimur milljörðum króna sem við söfnuðum í forútboði síðastliðið haust. Þá voru þátttakendur Skel fjárfestingafélag, Úthafsskip, eigendur Eskju ásamt norsku iðnaðarsamsteypunni Endúr ASA og tengdum aðilum, ásamt hollenska fiskvinnslu- og dreifingarfyrirtækinu Adri & Zoon.“
Samstarfsaðilar Geo Salmo í yfirstandandi hlutafjáraukningu eru Arion banki og norsku bankarnir DNB og Sparebanken 1.
„Við erum að kynna verkefnið fyrir fjárfestum þessa dagana. Það gengur mjög vel. Fjármögnunin ætti að klárast á næstu mánuðum.“
Spurður almennt um hvernig gangi að safna fé til starfseminnar og hvernig fjárfestar meti áhættuna í verkefninu segist Jens finna fyrir áhuga á greininni.
„Fólk hefur litið á þetta sem áhættusama fjárfestingu en við svörum því með því að velja tækni og útfærslu sem er margreynd annars staðar. Við byggjum á mjög góðri reynslu hjá teyminu okkar. Við teljum að við getum brugðist afar vel við þeim áhættuþáttum sem upp koma í svona verkefnum. Við höfum fengið ágætis viðbrögð við því.“
Lestu ítarlegt samtal við Jens í ViðskiptaMogganum í dag.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 1.7.24 | 401,11 kr/kg |
Þorskur, slægður | 1.7.24 | 368,86 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 1.7.24 | 383,44 kr/kg |
Ýsa, slægð | 1.7.24 | 306,44 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 1.7.24 | 156,92 kr/kg |
Ufsi, slægður | 1.7.24 | 199,56 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.6.24 | 304,40 kr/kg |
Gullkarfi | 1.7.24 | 301,99 kr/kg |
Litli karfi | 1.7.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 1.7.24 | 106,00 kr/kg |
1.7.24 Sif EA 76 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 540 kg |
Samtals | 540 kg |
1.7.24 Ásdís EA 89 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 429 kg |
Samtals | 429 kg |
1.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 179 kg |
Samtals | 179 kg |
1.7.24 Jón Magg ÓF 47 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 691 kg |
Ufsi | 64 kg |
Karfi | 10 kg |
Samtals | 765 kg |
1.7.24 Ingi Putti EA 18 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 803 kg |
Ufsi | 9 kg |
Samtals | 812 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 1.7.24 | 401,11 kr/kg |
Þorskur, slægður | 1.7.24 | 368,86 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 1.7.24 | 383,44 kr/kg |
Ýsa, slægð | 1.7.24 | 306,44 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 1.7.24 | 156,92 kr/kg |
Ufsi, slægður | 1.7.24 | 199,56 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.6.24 | 304,40 kr/kg |
Gullkarfi | 1.7.24 | 301,99 kr/kg |
Litli karfi | 1.7.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 1.7.24 | 106,00 kr/kg |
1.7.24 Sif EA 76 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 540 kg |
Samtals | 540 kg |
1.7.24 Ásdís EA 89 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 429 kg |
Samtals | 429 kg |
1.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 179 kg |
Samtals | 179 kg |
1.7.24 Jón Magg ÓF 47 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 691 kg |
Ufsi | 64 kg |
Karfi | 10 kg |
Samtals | 765 kg |
1.7.24 Ingi Putti EA 18 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 803 kg |
Ufsi | 9 kg |
Samtals | 812 kg |