„Forveri minn bannaði ekki hvalveiðar“

Tveir þingmenn beindu fyrirspurnum sínum að Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur, matvælaráðherra, …
Tveir þingmenn beindu fyrirspurnum sínum að Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur, matvælaráðherra, vegna ákvörðunar hennar um að leyfa hvalveiðar út veiðiárið. Samsett mynd

„Allir núverandi ráðherrar VG koma hér að málum, fyrrverandi matvælaráðherra sem bannaði hvalveiðar, núverandi matvælaráðherra sem leyfði hvalveiðar og formaður VG sem segir að leyfið sé skref í áttina að því að banna hvalveiðar.“

„Ég vil því spyrja hæstvirtan matvælaráðherra, hvert er næsta skref í því að banna hvalveiðar hjá þessari ríkisstjórn?“

Að þessu spurði Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur matvælaráðherra í óundirbúnum fyrirspurnartíma til ráðherra á fundi Alþingis í dag. 

Þeir Björn og Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, beindu fyrirspurnum að Bjarkeyju um hvalveiðar. 

Skilur ekki hvernig leyfi sé í átt að banni

Þá sagðist Björn ekki skilja þá staðhæfingu Guðmunds Inga Guðbrandssonar, formanns VG og félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra, að leyfið til að veiða hvalveiðar hafi verið skref í að banna hvalveiðar alfarið. 

Svandís Svavarsdóttir, fyrrverandi matvælaráðherra og núverandi innviðaráðherra.
Svandís Svavarsdóttir, fyrrverandi matvælaráðherra og núverandi innviðaráðherra. mbl.is/Kristinn Magnússon

Bjarkey steig þá upp í pontu, en hún byrjaði á því leiðrétta Björn. „Forveri minn bannaði ekki hvalveiðar, hún frestaði upphafi veiðitímabilsins.“

„Síðan var sett mjög skýr og ströng reglugerð, sem gildir líka að þessu sinni.“

Umboðsmaður setji miklar skýrleikakröfur

Matvælaráðherra beindi næst sjónum sínum að áliti umboðsmanns Alþingis frá upphafi janúars um lögmæti ákvörðunar Svandísar Svavarsdóttur, fyrrverandi matvælaráðherra, um að banna hvalveiðar síðasta sumar. 

„Að mati míns ráðuneytis snýst álitið einmitt um það hvernig á að túlka lög um hvalveiðar. Hann sló því föstu að svigrúm ráðherra er afskaplega þröngt, það má segja að hann hafi skrúfað allar skýrleikakröfur í botn.“

„Þessi ákvörðun mín byggist á því að ég fer eftir lögum um hvalveiðar, eins og umboðsmaður segir að ég verði að gera. Við getum ekki synjað veitingu leyfis eingöngu á grundvelli dýravelferðarsjónarmiða.“

Leyfi til hvalveiða eru venjulega veitt til nokkurra ára í …
Leyfi til hvalveiða eru venjulega veitt til nokkurra ára í senn. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þá segir hún greinilegt tilefni vera til að breyta lögum um hvalveiðar, og auk þess hafi hún orðið vör við miklar undirtektir við það að færa lögin í nútímalegra form. 

„Eins og við vitum þá eru þessi lög gömul, og bera til dæmis sektarákvæði um gullkrónu eða fangelsisvist, þannig ég held að okkur öllum sé ljóst að þeim lögum þarf að breyta.“

Leyfi út árið vegna ráðgjafar Hafró 

Björn Leví spurði matvælaráðherra þá hvort sá hljómgrunnur sem hún segist hafa fengið fyrir breytingu á lagaumhverfi hvalveiða, sé ástæða þess að leyfið sé núna tímabundið við þetta veiðitímabil. 

„Megum við þá eiga von á því í haust að það komi þá breytingar á lögum um hvalveiðar, sem eru þá þetta biðskref í átt að því að banna hvalveiðar?“ spurði Björn. 

„Það er starfshópur að störfum núna sem kemur til með að skila mér skýrslu í haust eða í vetur, þá fyrir áramótin,“ svaraði Bjarkey honum.

„Ég taldi ekki tilhlýðilegt að hafa leyfið lengra í ljósi þess að ég verð að geta tekið afstöðu til þess sem þar kemur fram, auk þess sem að það hefði tæplega geta orðið lengra en til næsta árs sökum þess að ráðgjöf Hafrannsóknarstofnunar nær ekki nema fram á næsta ár. “

Telur sig hafa rökstutt val sitt nægilega vel

Bergþór nýtti einnig fyrirspurnartímann til að spyrjast fyrir um hvalveiðar og spurði hvað sérfræðingar ráðuneytisins hefðu ráðlagt ráðherra að veita leyfið til langs tíma. 

Bjarkey sagðist þá hafa fengið ráðleggingu um að fara ekki fram yfir tvö ár, sökum þess að veiðiráðgjöf Hafrannsóknarstofnunar nær ekki lengra en eitt ár í senn. 

„Auk þess eru alltaf A og B leiðir sem ráðherra fær til sín, það er ekki ein leið sem ráðherranum ber að fara eftir. Það eru alltaf valkostir, og ég hef rökstutt mitt val að mínu mati nægilega vel.“

Frá hvalveiðimótmælum fyrir framan hvalveiðibáta í haust.
Frá hvalveiðimótmælum fyrir framan hvalveiðibáta í haust. mbl.is/Eyþór

Bergþór tók þá til máls að öðru sinni, og spurði út í orð hennar í viðtali sem hún veitti Ríkisútvarpinu eftir ríkisstjórnarfund á þriðjudag. 

„Þú segir aðra ráðherra ekki hafa veitt þér þrýsting hvað málið varðar. Var það þannig?“

Bjarkey svaraði því neitandi um hæl. „Og ég er bara þakklát fyrir það, vegna þess ég tel að það séu eðlileg vinnubrögð innan ríkisstjórnar að ráðherrar fái tækifæri og rými til þess að taka sínar ákvarðanir.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 30.9.24 529,10 kr/kg
Þorskur, slægður 30.9.24 414,85 kr/kg
Ýsa, óslægð 30.9.24 281,01 kr/kg
Ýsa, slægð 30.9.24 234,32 kr/kg
Ufsi, óslægður 30.9.24 244,82 kr/kg
Ufsi, slægður 30.9.24 285,48 kr/kg
Djúpkarfi 27.9.24 251,00 kr/kg
Gullkarfi 30.9.24 263,62 kr/kg
Litli karfi 25.9.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 30.9.24 302,69 kr/kg

Fleiri tegundir »

30.9.24 Geirfugl GK 66 Línutrekt
Ýsa 169 kg
Hlýri 54 kg
Steinbítur 42 kg
Þorskur 41 kg
Ufsi 8 kg
Langa 7 kg
Samtals 321 kg
30.9.24 Harðbakur EA 3 Botnvarpa
Ýsa 5.389 kg
Samtals 5.389 kg
30.9.24 Guðmundur Þór NS 121 Handfæri
Ufsi 686 kg
Þorskur 151 kg
Karfi 11 kg
Samtals 848 kg
30.9.24 Gunnar Bjarnason SH 122 Dragnót
Skarkoli 967 kg
Ýsa 373 kg
Langlúra 210 kg
Þorskur 98 kg
Sandkoli 42 kg
Skrápflúra 28 kg
Þykkvalúra 13 kg
Steinbítur 7 kg
Karfi 1 kg
Samtals 1.739 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 30.9.24 529,10 kr/kg
Þorskur, slægður 30.9.24 414,85 kr/kg
Ýsa, óslægð 30.9.24 281,01 kr/kg
Ýsa, slægð 30.9.24 234,32 kr/kg
Ufsi, óslægður 30.9.24 244,82 kr/kg
Ufsi, slægður 30.9.24 285,48 kr/kg
Djúpkarfi 27.9.24 251,00 kr/kg
Gullkarfi 30.9.24 263,62 kr/kg
Litli karfi 25.9.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 30.9.24 302,69 kr/kg

Fleiri tegundir »

30.9.24 Geirfugl GK 66 Línutrekt
Ýsa 169 kg
Hlýri 54 kg
Steinbítur 42 kg
Þorskur 41 kg
Ufsi 8 kg
Langa 7 kg
Samtals 321 kg
30.9.24 Harðbakur EA 3 Botnvarpa
Ýsa 5.389 kg
Samtals 5.389 kg
30.9.24 Guðmundur Þór NS 121 Handfæri
Ufsi 686 kg
Þorskur 151 kg
Karfi 11 kg
Samtals 848 kg
30.9.24 Gunnar Bjarnason SH 122 Dragnót
Skarkoli 967 kg
Ýsa 373 kg
Langlúra 210 kg
Þorskur 98 kg
Sandkoli 42 kg
Skrápflúra 28 kg
Þykkvalúra 13 kg
Steinbítur 7 kg
Karfi 1 kg
Samtals 1.739 kg

Skoða allar landanir »