Hagnaður Samherja minnkaði eftir uppstokkun

Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja segir reksturinn hafa gengið vel …
Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja segir reksturinn hafa gengið vel á síðasta ári. mbl.is/Hákon Pálsson

Hagnaður sam­stæðu Sam­herja hf. var á síðasta ári 8,7 millj­arðar króna sem er nokk­ur sam­drátt­ur frá ár­inu 2022 þegar hagnaður­inn var tæp­lega 14,4 millj­arðar króna. Sam­drátt­inn má að miklu leiti rekja til breyt­inga í starf­semi fé­lags­ins sem skipt var upp 2022.

Í færslu á vef Sam­herja um árs­reikn­ing fé­lags­ins, sem samþykkt­ur var á aðal­fundi 11. júní, kem­ur fram að tölu­verðar breyt­ing­ar hafa verið gerðar á efna­hags­reikn­ingi Sam­herja hf. á und­an­förn­um árum og var 2023 fyrsta heila rekstr­ar­árið þar sem starf­semi sam­stæðunn­ar nær ein­ung­is til veiða, vinnslu, land­eldi og sölu sjáv­ar­af­urða.

Á aðal­fund­in­um var tek­in ákvörðun um greiðslu arðs til hlut­hafa sem nem­ur 9% af hagnaði árs­ins.

Rekstr­ar­hagnaður óbreytt­ur

Á síðasta ári var rekstr­ar­hagnaður Sam­herja hf. 8,1 millj­arður og var hann nán­ast óbreytt­ur í er­lendri mynt, en fé­lagið ger­ir upp í evr­um..

Seldi Sam­herji afurðir fyr­ir 62,5 millj­arða króna árið 2023 og juk­ust sölu­tekj­ur vegna afurða um 10% frá ár­inu á und­an. Hagnaður fyr­ir af­skrift­ir og fjár­magnsliði (EBITDA) nam 11,1 millj­örðum króna og jókst um 6,7% frá ár­inu á und­an í upp­gjörs­mynt fé­lags­ins.

„Tekj­ur af áhrif­um hlut­deild­ar­fé­laga námu rúm­lega 3 millj­örðum króna. Tekj­ur vegna hlut­deild­ar­fé­laga lækka milli ára sem skýrist af tekju­færslu á ár­inu 2022 vegna breyt­inga á eign­ar­hlut­um í hlut­deild­ar­fé­lög­um það ár,“ seg­ir í færsl­unni.

Eign­ir Sam­herja í árs­lok 2023 eru í árs­reikn­ingi sagðar hafa numið 109,7 millj­örðum króna og var eigið fé 80 millj­arðar. Þá var eig­in­fjár­hlut­fallið 72,9% en 74% í árs­lok 2022.

Silfurstjarnan í Öxarfirði.
Silf­ur­stjarn­an í Öxarf­irði. Ljós­mynd/​Sam­herji

Unn­in voru 722 ár­s­verk hjá sam­stæðunni í fyrra en þau voru 686 árið 2022, en launa­greiðslur 2023 voru sam­an­lagt 9,4 millj­arðar króna.

Stærsta fjár­fest­ing Sam­herja á síðasta ári var stækk­un Silf­ur­stjörn­unn­ar, land­eld­is­stöð dótt­ur­fé­lags­ins Sam­herja Fisk­eldi ehf. í Öxarf­irði. Um er að ræða fjög­urra millj­arða króna fjár­fest­ingu.

„Í Silf­ur­stjörn­unni verða fram­leidd um þrjú þúsund tonn af laxi á landi. Sú þekk­ing og reynsla sem hef­ur byggst upp við rekst­ur stöðvar­inn­ar mun nýt­ast í fyr­ir­hugaðri land­eld­is­stöð Sam­herja fisk­eld­is á Reykja­nesi,“ seg­ir í færsl­unni.

Auk­in áhersla á ýsu og ufsa

„Rekst­ur Sam­herja gekk vel á síðasta ári og efna­hag­ur fé­lags­ins er sterk­ur, eins og árs­reikn­ing­ur­inn sýn­ir glögg­lega. Á ár­inu stóðum við frammi fyr­ir ýms­um áskor­un­um og á starfs­fólk fé­lags­ins hrós skilið fyr­ir að hafa mætt þeim með út­sjón­ar­semi og dugnaði,“ seg­ir Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Sam­herja hf. í færsl­unni.

„Til að bregðast við skert­um afla­heim­ild­um í þorski á und­an­förn­um árum höf­um við lagt aukna áherslu á vinnslu afurða úr ýsu og ufsa með góðum ár­angri. Nátt­úru­öfl­in minntu ræki­lega á sig á síðari hluta árs­ins þegar jarðhrær­ing­ar hóf­ust á Reykja­nesi sem leiddu til þess að Grind­vík­ing­ar þurftu að yf­ir­gefa heim­ili sín. Þessi at­b­urðarás hafði eðli­lega bæði bein og óbein áhrif á starf­semi Sam­herja fisk­eld­is ehf. Á ár­inu 2023 fögnuðum við 40 ára af­mæli Sam­herja í nú­ver­andi mynd og ég get ekki annað en verið bjart­sýnn á framtíðina.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 30.5.25 481,29 kr/kg
Þorskur, slægður 30.5.25 644,09 kr/kg
Ýsa, óslægð 30.5.25 569,07 kr/kg
Ýsa, slægð 30.5.25 466,97 kr/kg
Ufsi, óslægður 30.5.25 172,36 kr/kg
Ufsi, slægður 30.5.25 270,32 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.5.25 99,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 30.5.25 200,25 kr/kg
Litli karfi 26.5.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

30.5.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.837 kg
Steinbítur 1.590 kg
Ýsa 431 kg
Hlýri 265 kg
Langa 93 kg
Skarkoli 69 kg
Samtals 12.285 kg
30.5.25 Öðlingur SU 19 Línutrekt
Þorskur 8.831 kg
Ýsa 1.932 kg
Steinbítur 116 kg
Keila 49 kg
Langa 10 kg
Karfi 5 kg
Samtals 10.943 kg
30.5.25 Hafsvala BA 252 Grásleppunet
Grásleppa 1.090 kg
Samtals 1.090 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 30.5.25 481,29 kr/kg
Þorskur, slægður 30.5.25 644,09 kr/kg
Ýsa, óslægð 30.5.25 569,07 kr/kg
Ýsa, slægð 30.5.25 466,97 kr/kg
Ufsi, óslægður 30.5.25 172,36 kr/kg
Ufsi, slægður 30.5.25 270,32 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.5.25 99,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 30.5.25 200,25 kr/kg
Litli karfi 26.5.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

30.5.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.837 kg
Steinbítur 1.590 kg
Ýsa 431 kg
Hlýri 265 kg
Langa 93 kg
Skarkoli 69 kg
Samtals 12.285 kg
30.5.25 Öðlingur SU 19 Línutrekt
Þorskur 8.831 kg
Ýsa 1.932 kg
Steinbítur 116 kg
Keila 49 kg
Langa 10 kg
Karfi 5 kg
Samtals 10.943 kg
30.5.25 Hafsvala BA 252 Grásleppunet
Grásleppa 1.090 kg
Samtals 1.090 kg

Skoða allar landanir »