Sumarstarfsmenn gegna lykilhlutverki hjá ÚA

Sumarstarfsmenn Samherja f.v.: Andri Rúnar Hákonarson, Emilía Björk Óladóttir, Sunneva …
Sumarstarfsmenn Samherja f.v.: Andri Rúnar Hákonarson, Emilía Björk Óladóttir, Sunneva María Vilhelmsdóttir, Lárus Vinit Víðisson. Ljósmynd/Samherji

Um fjörutíu ungmenni eru ráðin til starfa í vinnsluhúsi Útgerðarfélags Akureyringa á Akureyri í sumar til að leysa af fastráðið starfsfólk vegna sumarleyfa, en starfmenn vinnsluhússins eru alla jafna um 120 og er því hlutfall sumarstarfsfólks hátt.

„Það er alltaf töluverð ásókn í sumarstörfin og því miður ekki hægt að verða við öllum umsóknum. Flest sem sækja um vinnu hafa kynnt sér starfsemina og vita ágætlega að hverju þau ganga. Áður en þessir nýju starfsmenn hefja störf er efnt til nýliðafræðslu, þar sem farið er yfir helstu þætti starfseminnar og spurningum svarað,” segir Sunneva Ósk Guðmundsdóttir framleiðslustjóri í færslu á vef Samherja.

„Án sumarafleysingafólksins væri líklega ekki hægt að halda úti fullri starfsemi svo þessir starfsmenn eru mikilvægir. Þetta er upp til hópa hörku duglegt fólk, auk þess sem launin hérna eru líklega talsvert hærri en gengur og gerist hjá ungu fólki,” útskýrir hún.

Sunneva Ósk Guðmundsdóttir
Sunneva Ósk Guðmundsdóttir mbl.is/Margrét Þóra Þórsdóttir

Vantaði sumarvinnu

„Mig vantaði sumarvinnu, mamma sótti um fyrir mig og ég var ráðin. Stundum er ég í pökkun, aðra daga vinn ég við að skera fisk og svo hef ég líka verið á lausfrystinum, þannig að þetta er bara fjölbreytt. Vinnan hefst oftast klukkan átta á morgnana og flesta daga er unnið til klukkan fjögur,“ segir hin sextán ára Sunneva María Vilhelmsdóttir.

Hún hefur ekki áður starfað í fiskvinnslu en segir vinnuna þó ekki erfiða.„Nei ekki svo, það finnst mér ekki. Svo þekki ég marga sem eru að vinna hérna, miklu fleiri en ég bjóst við, segir Sunneva María.“

Sunneva María Vilhelmsdóttir segir starfið hjá ÚA fjölbreytt.
Sunneva María Vilhelmsdóttir segir starfið hjá ÚA fjölbreytt. Ljósmynd/Samherji

Emilía Björk Óladóttir er á átjánda aldursári og hún hefur líkt og Sunneva María aldrei áður unnið í fiski. „Þetta er bara mjög fínt, ég hef undanfarna daga verið í flugfiskinum og það er margt að læra fyrstu vikurnar. Mér líst bara mjög vel á þetta allt saman,“ segir Emilía Björk.

Hún segir það bara vera hressandi að vakna snemma til að mæta til vinnu. „Ég fer bara fyrr að sofa og þá er þetta í fínu lagi.“

Emilía Björk Óladóttir hefur aldrei áður unnið í fiski og …
Emilía Björk Óladóttir hefur aldrei áður unnið í fiski og segir margt að læra. Ljósmynd/Samherji

Ánægður með launin

Andri Rúnar Hákonarson er sautján ára og starfaði í vinnsluhúsi ÚA síðasta sumar. „Ég er aðallega í að slægja fisk og mæti stundum á undan flestum til að undirbúa vinnsluna.“

Almennt þykir honum vinnan ekki erfið þó hún geti verið það stundum og viðurkennir hann að hann að það komi fyrir að hann finni fyrir ´reytu að loknum degi. „Þá er bara að passa sig á að fá nægan svefn.“

Launin eru góð að sögn Andra Rúnars. „Hérna er líka fínt mötuneyti og það skiptir miklu máli,“ segir Andri Rúnar.

Andri Rúnar Hákonarson kveðst sáttur með launin hjá ÚA.
Andri Rúnar Hákonarson kveðst sáttur með launin hjá ÚA. Ljósmynd/Samherji

Líkt og Andri Rúnar vann hinn sautján ára Lárus Vinit Víðisson einnig hjá ÚA síðasta sumar „Mér fannst fínt að vera hérna í fyrra og sótti því aftur um vinnu í sumar og var ráðinn. Ég er mjög ánægður með þetta allt saman.“

Hann kveðst þekkja marga sem starfa hjá fyrirtækinu og finnst einnig jákvætt að kynnast mörgum nýjum á vinnustaðnum.

Lárus Vinit segir jafnframt nýliðum tekið vel. „Eldri starfsmenn kenna okkur margt. Störfin eru margvísleg, þannig að það er auðvitað ýmislegt læra, sérstaklega í fyrra. Núna er þetta léttara, maður veit hvernig flest virkar,“ segir Lárus Vinit Víðisson.

Lárus Vinit Víðisson segir nýliðum tekið vel.
Lárus Vinit Víðisson segir nýliðum tekið vel. Ljósmynd/Samherji
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.12.24 710,33 kr/kg
Þorskur, slægður 22.12.24 707,99 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.12.24 401,74 kr/kg
Ýsa, slægð 22.12.24 174,32 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.12.24 211,11 kr/kg
Ufsi, slægður 22.12.24 62,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 18.12.24 42,00 kr/kg
Djúpkarfi 8.11.24 179,00 kr/kg
Gullkarfi 22.12.24 140,85 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.12.24 Kristrún RE 177 Grálúðunet
Grálúða 192.678 kg
Þorskur 6.879 kg
Samtals 199.557 kg
22.12.24 Júlíus Geirmundsson ÍS 270 Botnvarpa
Þorskur 186.991 kg
Ýsa 154.221 kg
Karfi 48.438 kg
Ufsi 9.809 kg
Steinbítur 1.935 kg
Skarkoli 206 kg
Þykkvalúra 151 kg
Langa 92 kg
Samtals 401.843 kg
22.12.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Skarkoli 108 kg
Ýsa 35 kg
Steinbítur 26 kg
Sandkoli 14 kg
Samtals 183 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.12.24 710,33 kr/kg
Þorskur, slægður 22.12.24 707,99 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.12.24 401,74 kr/kg
Ýsa, slægð 22.12.24 174,32 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.12.24 211,11 kr/kg
Ufsi, slægður 22.12.24 62,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 18.12.24 42,00 kr/kg
Djúpkarfi 8.11.24 179,00 kr/kg
Gullkarfi 22.12.24 140,85 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.12.24 Kristrún RE 177 Grálúðunet
Grálúða 192.678 kg
Þorskur 6.879 kg
Samtals 199.557 kg
22.12.24 Júlíus Geirmundsson ÍS 270 Botnvarpa
Þorskur 186.991 kg
Ýsa 154.221 kg
Karfi 48.438 kg
Ufsi 9.809 kg
Steinbítur 1.935 kg
Skarkoli 206 kg
Þykkvalúra 151 kg
Langa 92 kg
Samtals 401.843 kg
22.12.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Skarkoli 108 kg
Ýsa 35 kg
Steinbítur 26 kg
Sandkoli 14 kg
Samtals 183 kg

Skoða allar landanir »