Harma að látið sé undan græðgi strandveiðisjómanna

SFS segir strandveiðarnar óarðbærar og óskynsamelgt að ráðstafa þeim sífellt …
SFS segir strandveiðarnar óarðbærar og óskynsamelgt að ráðstafa þeim sífellt stærri sneið af kvótakökunni. mbl.is/Líney Sigurðardóttir

Strandveiðar eru óskynsamlegar og óarðbærar. Þær skila minni verðmætasköpun og sjá til að veiðar séu stundaðar á þeim árstíma þegar ástand fisksins er lakast.

Þetta fullyrða Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) í yfirlýsingu sem birt hefur verið á vef samtakanna í dag í tilefni af ákvörðun Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur matvælaráðherra um að bæta við tvö þúsund tonna þorskkvóta við strandveiðipottinn í síðustu viku.

Ákvörðunin var tekin í þeim tilgangi að fjölga veiðidögum strandveiðibáta sem horfa fram á að þurfa að stöðva veiðar áður en veiðitímabili lýkur, en SFS bendir á að strandveiðarnar hafa ekki þurft að verða fyrir kvótaskerðingum eins og aðrar útgerðir.

SFS segir matvælaráðherra láta undan græðgi strandveiðisjómanna og fyrir liggi að „sneið strandveiðimanna af kökunni stækkar enn eitt árið því aldrei fyrr hafa strandveiðar verið hærra hlutfall af heildarafla þorsks en á yfirstandandi fiskveiðiári. “

Verðmætatap fyrir þjóðarbúið

Bent er á að ráðlagður hámarksafli í þorski hefur dregist saman um tæplega fjórðung frá fiskveiðiárinu 2019/2020 þegar ráðlagður þorskafli var 272 þúsund tonn.

„Nú er úthlutaður þorskafli rúm 209 þúsund tonn og því ljóst að tólf þúsund tonna hlutdeild til strandveiða nemur 5,7%. Í fyrra var hlutfallið tæplega 4,8% og árið 2022 var hlutfallið 4,5% af heildarafla. Við upphaf strandveiða fiskveiðiárið 2008/09 var hlutfallið 1,8% af ráðlögðum þorskafla og því er ljóst að hlutfall strandveiða í þorskheimildum hefur margfaldast á undanförnum árum. Samhliða hefur verðmætatap þjóðarbúsins aukist þar sem ljóst er að afkoma af strandveiðum er óviðunandi og skilar vart jákvæðri afkomu samkvæmt gögnum Hagstofu í gegnum tíðina.“

SFS segir verðmætasköpun sem fylgir samþættingu veiða og vinnslu sé hryggjarstykkið í árangri og orðspori íslenskrar fiskveiðistjórnunar. Hún sé „ umtalsvert meiri en af strandveiðum þar sem afla er að miklu leyti landað á markað og fluttur óunninn úr landi. Því blasir við að mikilvæg verðmætasköpun í íslenskum sjávarútvegi takmarkast að verulegu leyti vegna síaukins hlutar sem fellur til strandveiða.“

Lakari gæði

Í yfirlýsingunni eru upphafsorð lokaskýrslu stefnumótunarverkefnisins Auðlindarinnar okkar rifjuð upp en þar sagði: „Íslenskur fiskur er þekktur fyrir gæði og íslensk sjávarútvegsfyrirtæki eru alþjóðlega samkeppnishæf. Veiðum er stýrt þannig að fiskur er veiddur á þeim árstíma og svæðum þar sem gæði hans eru mest og markaðsaðstæður hagstæðastar.“

Bendir SFS á að Matís hafi séð ástæðu til að fjalla um þessi orð í umsögn sinni um frumvarpsdrög Svandísar Svavarsdóttir fyrrverandi matvælaráðherra að nýjum heildarlögum um sjávarútveg. Sagði Matís meðal annars að með því að hefja nýtt fiskveiðiárið 1. september skapast hvatar til að stýra sókn í fiskistofna á þá árstíma sem aflagæði væru af náttúrulegum ástæðum best.

„Í tilviki helstu botnfiskstegunda, sem hrygna á tímabilinu mars til maí, er ljóst að strandveiðitímabilið nær yfir þann tíma þar sem aflinn er hvað sístur að gæðum af náttúrulegum ástæðum. Því skýtur það skökku við að setja síaukið hlutfall af okkar verðmætustu fisktegund í strandveiðar með tilheyrandi orðsporsáhættu á hátt borgandi erlendum mörkuðum. Þessa óumdeildu staðreynd, sem samtökin hafa ítrekað haldið á lofti við litla hrifningu strandveiðimanna, verður að hafa í huga þegar heildarmyndin er skoðuð.“

Strandveiðisjómenn hafa tvö ár í röð mótmælt því að veiðiheimildir …
Strandveiðisjómenn hafa tvö ár í röð mótmælt því að veiðiheimildir veiðanna duga ekki til að tryggja öllum bátum veiðar allt veiðitímabilið. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Strandveiðisjómenn kunni sér vart hóf

Í yfirlýsingunni segir að þrátt fyrir þessar fyrrnefndu staðreyndir sé látið undan græðgi strandveiðimanna sem SFS segir „kunna sér vart hóf í þeim ólympísku veiðum sem strandveiðar vissulega eru.“ Þá sé verulegur umframafli á veiðitímabili ársins sem er á við dagskammt vottur um þetta.

„Að þessu sinni er haft eftir matvælaráðherra að aukningin á heimild til strandveiða sé til þess fallin að „rétta af þann halla sem er afleiðing þess fyrirkomulags sem hefur verið á strandveiðum“ og ráðherra bætir síðan við að „þar hafa sum byggðarlög borið skarðan hlut frá borði.“ Rétt er að taka fram að hér er matvælaráðherra að vísa til gjörða sinna eigin flokksfélaga í Vinstri grænum sem höfðu forystu um að afnema svæðaskiptingu við stjórn strandveiða þannig að ákveðinn lágmarksafli kæmi í hlut hvers landshluta. Sú breyting átti sér stað fyrst 2018, til bráðabirgða, og síðan árið 2019 sem varanleg breyting. Samtökin vöruðu sterklega við breytingunni á sínum tíma og hafa varnaðarorð samtakanna raungerst.“

Mikil aukning afla á veiðisvæði A sem nær til Vesturlands og Vestfjarða er sagður koma á kostnað annarra svæða sem um sinn skili sífellt auknum þrýstingi á að strandveiðibátum verði ráðstafað frekari veiðiheimildum. Telur SFS slíkt skapa áhættu á lausatökum við stjórn fiskveiða.

„Enda er staðan sú, miðað við aflastöðu þann 28. júní síðastliðinn, að ríflega 53% af heildarafla strandveiða sem af er tímabilinu hefur komið að landi á svæði A, eða ríflega 5.100 tonn af ríflega 9.600 tonna heildarafla. Því hafa 355 strandveiðibátar áorkað á svæði A, en til samanburðar má nefna að á árinu 2017 voru 228 strandveiðibátar á svæði A og lönduðu þeir samtals 3.692 tonnum það árið. Augljóst er að hér er ekki rétt skipt og miður að sífellt er látið undan auknum þrýstingi strandveiðimanna um auknar heimildir.“



Ráðherra þurfi að spyrna fótum við

Vekur SFS athygli á því að um þorskinn og aðra nytjastofna á Íslandsmiðum gildir nýtingarstefna og aflaregla sem settar eru í samræmi við alþjóðleg viðmið.

„Þær eru afar mikilvægar, bæði út frá sjónarmiðum fiskveiðistjórnunar með sjálfbæra nýtingu að leiðarljósi og vegna samskipta við erlenda kaupendur sjávarafurða og vottunaraðila á því sviði. Allar stjórnunarráðstafanir sem eru til þess fallnar að auka líkur á afla umfram ákvörðun eða valda óvissu fela því í sér afturför. Það er því mikilvægt að ráðherra spyrni við fótum og auki ekki enn frekar við strandveiðiheimildir en orðið er.“

Varar SFS við því að missa sjónar á markmiðum fiskveiðistjórnunarkerfisins og þeim ábáta sem það hafi fært íslensku þjóðinni í gegnum hagkvæmum og arðbærum rekstri sjávarútvegsfyrirtækja.

„Augljóst er að hagkvæmara væri, og hagstæðara út frá sjónarmiðum byggðafestu, að nýta aflaheimildir sem mestar í atvinnuveiðar sem stundaðar eru á ársgrundvelli í stað þess að auka í sífellu við strandveiðar,“ segir að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 3.7.24 400,31 kr/kg
Þorskur, slægður 3.7.24 468,01 kr/kg
Ýsa, óslægð 3.7.24 376,83 kr/kg
Ýsa, slægð 3.7.24 340,65 kr/kg
Ufsi, óslægður 3.7.24 146,25 kr/kg
Ufsi, slægður 3.7.24 182,80 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 3.7.24 424,82 kr/kg
Litli karfi 1.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

3.7.24 Margrét GK 33 Lína
Þorskur 2.893 kg
Ýsa 264 kg
Steinbítur 234 kg
Hlýri 46 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 3.441 kg
3.7.24 Hulda GK 17 Línutrekt
Þorskur 2.531 kg
Ýsa 1.271 kg
Steinbítur 642 kg
Keila 11 kg
Skarkoli 9 kg
Hlýri 3 kg
Karfi 1 kg
Samtals 4.468 kg
3.7.24 Harðbakur EA 3 Botnvarpa
Ýsa 14.329 kg
Langa 5.435 kg
Ufsi 2.589 kg
Karfi 886 kg
Samtals 23.239 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 3.7.24 400,31 kr/kg
Þorskur, slægður 3.7.24 468,01 kr/kg
Ýsa, óslægð 3.7.24 376,83 kr/kg
Ýsa, slægð 3.7.24 340,65 kr/kg
Ufsi, óslægður 3.7.24 146,25 kr/kg
Ufsi, slægður 3.7.24 182,80 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 3.7.24 424,82 kr/kg
Litli karfi 1.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

3.7.24 Margrét GK 33 Lína
Þorskur 2.893 kg
Ýsa 264 kg
Steinbítur 234 kg
Hlýri 46 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 3.441 kg
3.7.24 Hulda GK 17 Línutrekt
Þorskur 2.531 kg
Ýsa 1.271 kg
Steinbítur 642 kg
Keila 11 kg
Skarkoli 9 kg
Hlýri 3 kg
Karfi 1 kg
Samtals 4.468 kg
3.7.24 Harðbakur EA 3 Botnvarpa
Ýsa 14.329 kg
Langa 5.435 kg
Ufsi 2.589 kg
Karfi 886 kg
Samtals 23.239 kg

Skoða allar landanir »