Náttúruverndarsamtök Íslands skora á Guðlaug Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsmálaráðherra, að innleiða tafarlaust, og framfylgja af staðfestu, skilyrðislausu banni við notkun svartolíu, að því er fram kemur í bréfi sem samtökin hafa sent ráðherranum.
Benda samtölin á að í dag, 1. júlí, tekur gildi bann við notkunsvartolíu á Norðurslóðum í samræmi við ákvörðun sem tekin var fyrir þremur árum á vettvangi Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar (IMO) um nýjan viðauka við MARPOL-samninginn.
„Aðildarríki IMO hafa haft nægan tíma til að innleiða reglurnar í landslög og banna skipum sem sigla undir fána þeirra að flytja eða nota svartolíu sem skipaeldsneyti á norðurslóðum. Útgerðir flutningaskipa sem sigla um norðurhöf hafa sömuleiðis haft nægan tíma til undirbúnings með því að skipta yfir í hreinna eldsneyti. Norðmenn hafa þegar innleitt bannið á hafsvæðinu í kringum Svalbarða,“ segir í bréfinu.
Bent er á að með banninu er hægt að draga stórlega úr hættu á alvarlegum olíuslysum þar sem svartolía dreifist um norðurhöf. Auk þess verði með þessu dregið úr sótmengun sem gegnir stóru hlutverki í loftslagsbreytingum af mannavöldum.
Þá skora Náttúrusamtökin á ráðherra að „ sjá til þess að öll skip á norðurslóðum fari eftir reglunum, í nánu samstarfi fánaríkisog hafnarríkis um eftirliti, þar með talið eftirlit með eldsneyti sem er um borð ískipum sem sigla um norðurslóðir.“
Einnig er ráðherra hvattur til að styðja stækkun á því svæði sem bannið nær til þannig að það gildi norðan 60. breiddagráðu, auk þess sem hann er beðinn um að „hvetja íslensk skipafélög til að starfa í anda reglugerðarinnar, og fela sig ekki á bakvið undanþágur.“
Bann við notkun svartolíu hér við land var bannað 2019 en hægt hefur verið að fá undanþágu frá banninu séu skip búin hreinsunarbúnaði. Búnaðurinn hefur þó verið gagnrýndur fyrir að auka hafmengun með því að sturta efnum sem síuð eru úr útblæstri í sjóinn.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 20.3.25 | 550,48 kr/kg |
Þorskur, slægður | 20.3.25 | 544,88 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 20.3.25 | 246,50 kr/kg |
Ýsa, slægð | 20.3.25 | 213,58 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 20.3.25 | 181,06 kr/kg |
Ufsi, slægður | 20.3.25 | 218,25 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 19.3.25 | 11,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 17.3.25 | 188,00 kr/kg |
Gullkarfi | 20.3.25 | 229,60 kr/kg |
20.3.25 Eskey ÓF 80 Línutrekt | |
---|---|
Ýsa | 2.894 kg |
Þorskur | 2.884 kg |
Langa | 657 kg |
Steinbítur | 196 kg |
Karfi | 31 kg |
Ufsi | 28 kg |
Keila | 7 kg |
Skarkoli | 7 kg |
Samtals | 6.704 kg |
20.3.25 Kristján HF 100 Lína | |
---|---|
Ýsa | 394 kg |
Steinbítur | 184 kg |
Þorskur | 162 kg |
Langa | 137 kg |
Karfi | 20 kg |
Keila | 18 kg |
Ufsi | 7 kg |
Samtals | 922 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 20.3.25 | 550,48 kr/kg |
Þorskur, slægður | 20.3.25 | 544,88 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 20.3.25 | 246,50 kr/kg |
Ýsa, slægð | 20.3.25 | 213,58 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 20.3.25 | 181,06 kr/kg |
Ufsi, slægður | 20.3.25 | 218,25 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 19.3.25 | 11,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 17.3.25 | 188,00 kr/kg |
Gullkarfi | 20.3.25 | 229,60 kr/kg |
20.3.25 Eskey ÓF 80 Línutrekt | |
---|---|
Ýsa | 2.894 kg |
Þorskur | 2.884 kg |
Langa | 657 kg |
Steinbítur | 196 kg |
Karfi | 31 kg |
Ufsi | 28 kg |
Keila | 7 kg |
Skarkoli | 7 kg |
Samtals | 6.704 kg |
20.3.25 Kristján HF 100 Lína | |
---|---|
Ýsa | 394 kg |
Steinbítur | 184 kg |
Þorskur | 162 kg |
Langa | 137 kg |
Karfi | 20 kg |
Keila | 18 kg |
Ufsi | 7 kg |
Samtals | 922 kg |