Sjómannasamband Íslands skorar á Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, að útvega 20 milljónir króna til að fjármagna sjónvarpsútsendingar Ríkisútvarpsins (RÚV) fyrir sjómenn sem hætt var 1. júlí.
Í yfirlýsingu á Facebook-síðu sinni bendir Sjómannasambandið á að Áslaug Arna hafi á dögunum kynnt áætlun um ljósleiðaravæðingu allra þéttbýlissvæða landsins.
„Hún gleymir nú nokkrum þeirra. Nefnilega öllum skipum á Íslandi. [...] Eina efnið sem sjómenn ná ef þeir eru utan við 12 mílur er langbylgju sending á 189khz á Rás 1 á stöku stað,“ segir í yfirlýsingu Sjómannasambandsins.
Eins og 200 mílur greindu frá í byrjun júní ákvað RÚV fyrir ári að hætta dreifingu hljóðvarps- og sjónvarpsefnis um gervihnött og tók ákvörðunin gildi 1. júlí. Í tilkynningu benti RÚV á að útsending um gervihnött sé ekki hluti af verkefnum stofnunarinnar eða skyldum samkvæmt lögum eða þjónustusamningi við íslenska ríkið. Hafði íslenska ríkið fjármagnað þessar útsendingar með sérstakri fjárveitingu í samræmi við sérstakan þjónustusamning.
Fyrir þremur árum var hins vegar hætt að greiða RÚV fyrir þjónustuna í hagræðingarskyni. Samkvæmt ákvæðum samningsins við ríkið var RÚV fyrst heimilt að segja samningnum upp fyrra með árs uppsagnarfresti og var það gert, en á meðan bar RÚV kostnaðinn af útsendingunum.
„Að sögn RÚV kostar 40 millur á ári að halda úti sendingum til sjómanna gegnum hnött. Sjómenn greiða nefskattinn sem rennur til RÚV eins og aðrir landsmenn. Lágmark að sjómenn njóti RUV eins og aðrir. Áslaug Arna nú er tækifærið að rétta sjómönnum hjálparhönd og tryggja sendingar RÚV gegnum gervihnött út árið meðan unnið er að öðrum lausnum. 20 milljónir eru smáaurar til að tryggja mannréttindi 3.500 sjómanna. Koma svo Áslaug!“ segir í yfirlýsingu Sjómannasambandsins.
Umræddar útsendingar nýttust aðeins sjófarendum og hefur RÚV bent á að ný tækni geri sjófarendum kleift að sækja efnið í gegnum internettengingar sem ýmis félög bjóða uppá.