Viðar tekur við veiðieftirlitssviði

Ráðinn hefur verið nýr deildarstjóri veiðieftirlits hjá Fiskistofu.
Ráðinn hefur verið nýr deildarstjóri veiðieftirlits hjá Fiskistofu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Viðar Ólason hefur verið ráðinn nýr sviðsstjóri veiðieftirlitssviðs. Hann er með B.Sc. gráðu í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík og lokið námi frá Stýrimannaskólanum, II. stig auk þess að hafa sótt fjölmörg námskeið á sviði stjórnunar og stjórnsýsluréttar, að því er segir í tilkynningu á vef Fiskistofu.

Viðar tekur við af Elínu Björg Ragnarsdóttur, en greint var frá því í maí að hún hafi verið skipuð fiskistofustjóri í stað Ögmundar Knútssonar sem baðst undan störfum eftir að hafa boðist starf hjá Alþjóðabankanum.

Fram kemur í tilkynningunni að Viðar hafi 20 ára reynslu af sjávarútvegi og hafi hann starfað sem deildarstjóri sjóeftirlits hjá Fiskistofu frá árinu 2016 þar sem hann hefur stýrt sjóeftirliti og haft mannaforráð veiðieftirlitsmanna. Auk þess hefur hann leyst af sem deildarstjóri landeftirlits. Viðar starfaði áður í tíu ár sem forritari hjá Advania og þar á undan sem stýrimaður og skipstjóri í 15 ár.

„Í störfum sínum hjá Fiskistofu hefur Viðar gegnt ýmsum nefndarstörfum og verið í starfshópum skipuðum af fagráðuneyti sem og Fiskistofu auk þess sem hann hefur stýrt samráðsfundum með öðrum systurstofnunum. Þá hefur hann sinnt ýmsum erlendum verkefnum fyrir hönd Fiskistofu, verið í sendinefndum Íslands m.a. í tvíhliða samningum um sjávarútvegsmál við önnur ríki auk þess sem honum var falið að leiða alþjóðlega ráðstefnuröð sem tileinkuð er störfum eftirlitsmanna á sjó, 11th International Fisheries Observer and Monitoring Confrence, sem haldin verður í Hörpu í maí 2025,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 1.8.24 582,45 kr/kg
Þorskur, slægður 1.8.24 624,22 kr/kg
Ýsa, óslægð 1.8.24 516,46 kr/kg
Ýsa, slægð 1.8.24 361,81 kr/kg
Ufsi, óslægður 1.8.24 10,00 kr/kg
Ufsi, slægður 1.8.24 195,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 1.8.24 489,77 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

4.8.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 5.362 kg
Ýsa 2.493 kg
Steinbítur 1.170 kg
Langa 120 kg
Karfi 83 kg
Hlýri 42 kg
Keila 26 kg
Ufsi 14 kg
Samtals 9.310 kg
4.8.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 370 kg
Keila 141 kg
Þorskur 47 kg
Hlýri 20 kg
Karfi 6 kg
Samtals 584 kg
4.8.24 Þórshani BA 411 Sjóstöng
Þorskur 127 kg
Samtals 127 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 1.8.24 582,45 kr/kg
Þorskur, slægður 1.8.24 624,22 kr/kg
Ýsa, óslægð 1.8.24 516,46 kr/kg
Ýsa, slægð 1.8.24 361,81 kr/kg
Ufsi, óslægður 1.8.24 10,00 kr/kg
Ufsi, slægður 1.8.24 195,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 1.8.24 489,77 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

4.8.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 5.362 kg
Ýsa 2.493 kg
Steinbítur 1.170 kg
Langa 120 kg
Karfi 83 kg
Hlýri 42 kg
Keila 26 kg
Ufsi 14 kg
Samtals 9.310 kg
4.8.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 370 kg
Keila 141 kg
Þorskur 47 kg
Hlýri 20 kg
Karfi 6 kg
Samtals 584 kg
4.8.24 Þórshani BA 411 Sjóstöng
Þorskur 127 kg
Samtals 127 kg

Skoða allar landanir »