Fáar skipasmíðastöðvar enn virkar

Margar skipasmíðastöðvar á landinu hafa farið í þrot vegna breyttra …
Margar skipasmíðastöðvar á landinu hafa farið í þrot vegna breyttra markaðsaðstæðna. Ómar Óskarsson

Skipasmíðaiðnaður á Íslandi má muna sinn fífil fegri enda eru örfá fyrirtæki eftir sem sinna reglulegu eftirliti og viðhaldi skipa og báta.

Þráinn Jónsson, framkvæmdastjóri Skipasmíðastöðvar Njarðvíkur, segir aðspurður að fáir séu eftir á markaðinum.

„Það eru örfáar skipasmíðastöðvar á Íslandi sem eru virkar. Það eru stórir aðilar eins og Slippurinn á Akureyri og Framtak sem Vélsmiðja Orms og Víglundar í Hafnarfirði keyptu. Það er svo bara einn slippur í Reykjavík, Stálorka, sem hefur aðstöðu til að taka skip en þeir eru ekki mjög virkir á markaðinum. Síðan erum það við – Skipasmíðastöð Njarðvíkur.“

Margar farið í þrot

Hann bendir á að skipasmíðastöðinni á Akranesi hafi verið lokað og starfsemin í Stykkishólmi og Vestmannaeyjum dregist mikið saman.

„Það er nánast búið að loka á Ísafirði og lítið að gera á Skagaströnd. Stöðin á Húsavík sinnir bara verkefnum fyrir Norðursiglingu, sem er eigandi stöðvarinnar,“ segir Þráinn.

Hann segir að margar stöðvar hafi einfaldlega farið í þrot vegna breyttra markaðsaðstæðna.

„Það var einfaldlega ekkert pláss á markaðinum fyrir svona mörg fyrirtæki enda hefur skipum og bátum fækkað mikið á Íslandi á undanförnum árum. Fækkun stöðva hefur hjálpað þeim fyrirtækjum sem eftir eru til að taka fleiri skip á ári hverju en þekktist hér áður fyrr,“ útskýrir Þráinn.

Aðspurður segir hann að fyrirtæki sitt taki um 90 skip og báta á ári hverju í reglulegar skoðanir og nauðsynlegt viðhald.

„Í langflestum tilfellum tökum við skip í reglubundið viðhald og skoðun. Skip þurfa að fara í slipp á tveggja til þriggja ára fresti, það er að segja í reglubundna skoðun. Þess á milli eru alltaf einhverjar uppákomur sem krefjast þess að farið sé með skipin í slipp,“ segir Þráinn.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 3.10.24 513,87 kr/kg
Þorskur, slægður 3.10.24 483,70 kr/kg
Ýsa, óslægð 3.10.24 255,91 kr/kg
Ýsa, slægð 3.10.24 230,35 kr/kg
Ufsi, óslægður 3.10.24 258,98 kr/kg
Ufsi, slægður 3.10.24 289,63 kr/kg
Djúpkarfi 3.10.24 196,31 kr/kg
Gullkarfi 3.10.24 261,25 kr/kg
Litli karfi 25.9.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 3.10.24 186,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

3.10.24 Gísli Súrsson GK 8 Lína
Þorskur 666 kg
Ýsa 119 kg
Keila 5 kg
Hlýri 4 kg
Steinbítur 4 kg
Samtals 798 kg
3.10.24 Þinganes SF 25 Botnvarpa
Þorskur 24.203 kg
Samtals 24.203 kg
3.10.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Ýsa 4.664 kg
Þorskur 2.924 kg
Steinbítur 268 kg
Keila 163 kg
Samtals 8.019 kg
3.10.24 Agnar BA 125 Línutrekt
Þorskur 516 kg
Ýsa 159 kg
Samtals 675 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 3.10.24 513,87 kr/kg
Þorskur, slægður 3.10.24 483,70 kr/kg
Ýsa, óslægð 3.10.24 255,91 kr/kg
Ýsa, slægð 3.10.24 230,35 kr/kg
Ufsi, óslægður 3.10.24 258,98 kr/kg
Ufsi, slægður 3.10.24 289,63 kr/kg
Djúpkarfi 3.10.24 196,31 kr/kg
Gullkarfi 3.10.24 261,25 kr/kg
Litli karfi 25.9.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 3.10.24 186,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

3.10.24 Gísli Súrsson GK 8 Lína
Þorskur 666 kg
Ýsa 119 kg
Keila 5 kg
Hlýri 4 kg
Steinbítur 4 kg
Samtals 798 kg
3.10.24 Þinganes SF 25 Botnvarpa
Þorskur 24.203 kg
Samtals 24.203 kg
3.10.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Ýsa 4.664 kg
Þorskur 2.924 kg
Steinbítur 268 kg
Keila 163 kg
Samtals 8.019 kg
3.10.24 Agnar BA 125 Línutrekt
Þorskur 516 kg
Ýsa 159 kg
Samtals 675 kg

Skoða allar landanir »