Vara við afleiðingum

Fiskvinnsla.
Fiskvinnsla. mbl.is/Kristinn Magnúsosn

Sú tillaga í frumvarpi fjármálaráðherra að felld verði úr gildi lög um greiðslur Atvinnuleysistryggingasjóðs til fiskvinnslufyrirtækja vegna kauptryggingar fiskvinnslufólks þegar um tímabundna vinnslustöðvun er að ræða vegna hráefnisskorts fellur í grýttan jarðveg bæði í verkalýðshreyfingunni og hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS).

SFS segjast vera andvíg þessum breytingum, „þar sem ljóst er að verði úrræðið afnumið gæti þurft að grípa til annarra ráðstafana sem koma til muna verr niður á starfsfólki fiskvinnsla. Til dæmis gæti orðið nauðsynlegt að fella starfsfólk af launaskrá samkvæmt 3. gr. laga 19/1979 um rétt verkafólks til uppsagnarfrests og launa vegna sjúkdóms- og slysaforfalla,“ segir í umsögn SFS við frumvarpið.

Starfsgreinasambandið (SGS) leggst gegn þessari einhliða niðurfellingu á lögunum og öðrum lagabreytingum sem boðaðar séu „án samtals eða samráðs við aðila vinnumarkaðarins. Slíkt mun valda fiskvinnslufólki vítt og breitt um landið óvissu, óþægindum og tekjumissi ef til vinnslustöðvunar kemur vegna tímabundins hráefnisskorts,“ segir í umsögn SGS.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 4.10.24 457,16 kr/kg
Þorskur, slægður 4.10.24 476,78 kr/kg
Ýsa, óslægð 4.10.24 230,48 kr/kg
Ýsa, slægð 4.10.24 187,15 kr/kg
Ufsi, óslægður 4.10.24 218,31 kr/kg
Ufsi, slægður 4.10.24 237,84 kr/kg
Djúpkarfi 3.10.24 196,31 kr/kg
Gullkarfi 4.10.24 173,68 kr/kg
Litli karfi 25.9.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 4.10.24 19,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

4.10.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Ufsi 919 kg
Þorskur 192 kg
Ýsa 95 kg
Samtals 1.206 kg
4.10.24 Björgúlfur EA 312 Botnvarpa
Þorskur 4.752 kg
Grálúða 1.875 kg
Samtals 6.627 kg
3.10.24 Kristinn HU 812 Línutrekt
Ýsa 2.675 kg
Langa 1.225 kg
Keila 90 kg
Þorskur 85 kg
Karfi 61 kg
Steinbítur 22 kg
Blálanga 15 kg
Ufsi 5 kg
Skarkoli 3 kg
Samtals 4.181 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 4.10.24 457,16 kr/kg
Þorskur, slægður 4.10.24 476,78 kr/kg
Ýsa, óslægð 4.10.24 230,48 kr/kg
Ýsa, slægð 4.10.24 187,15 kr/kg
Ufsi, óslægður 4.10.24 218,31 kr/kg
Ufsi, slægður 4.10.24 237,84 kr/kg
Djúpkarfi 3.10.24 196,31 kr/kg
Gullkarfi 4.10.24 173,68 kr/kg
Litli karfi 25.9.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 4.10.24 19,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

4.10.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Ufsi 919 kg
Þorskur 192 kg
Ýsa 95 kg
Samtals 1.206 kg
4.10.24 Björgúlfur EA 312 Botnvarpa
Þorskur 4.752 kg
Grálúða 1.875 kg
Samtals 6.627 kg
3.10.24 Kristinn HU 812 Línutrekt
Ýsa 2.675 kg
Langa 1.225 kg
Keila 90 kg
Þorskur 85 kg
Karfi 61 kg
Steinbítur 22 kg
Blálanga 15 kg
Ufsi 5 kg
Skarkoli 3 kg
Samtals 4.181 kg

Skoða allar landanir »