Þúsundir smáskilaboða fundust í tölvu

Þorsteinn Már og Jóhannes.
Þorsteinn Már og Jóhannes. Samsett mynd

Héraðssaksóknari komst nýverið yfir á annað þúsund smáskilaboð, sem fóru á milli Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra Samherja, og uppljóstrarans Jóhannesar Stefánssonar á þeim tíma sem hinn síðarnefndi var framkvæmdastjóri útgerðarfélags Samherja í Namibíu.

Heimildin greinir frá.

Tæknimenn á vegum héraðssaksóknara fundu þúsundir smáskilaboða, sem voru annað hvort send eða móttekin úr síma Jóhannesar á þeim tíma er hann starfaði í Namibíu.

Skilaboðin fundust á tölvu sem hann afhenti saksóknara árið 2019. Af þeim náðu tæknimennirnir að endurheimta ríflega 1.500 skilaboð sem fóru á milli Jóhannesar og Þorsteins Más.

Í umfjöllun Heimildarinnar segir að tölvan hafi tekið öryggisafrit af símanum um það leyti er Jóhannes lét af störfum hjá fyrirtækinu, en hann vann í Namibíu frá árinu 2011 til 2016.

„Takmörkuð“ samskipti

Í yfirheyrslu hjá embætti héraðssaksóknara fyrir fjórum árum vísaði Þorsteinn því á bug að hann hefði verið í miklum samskiptum við Jóhannes. Sagði hann samskiptin hafa verið „takmörkuð“.

Heimildin segir skilaboðin varpa ljósi á aðra mynd af samskiptum Jóhannesar við forstjóra og starfsmenn Samherja en forsvarsmenn Samherja hafa haldið fram opinberlega.

Samkvæmt upplýsingum miðilsins eru Jóhannes og Þorsteinn að skipuleggja myndsímtalafundi sín á milli í skilaboðunum.

Segir Þorstein hafa frekar viljað ræða saman í myndsímtölum

 Í umfjöllun Kveiks og Stundarinnar árið 2019 sagði Jóhannes að Þorsteinn hefði viljað ræða við sig í gegnum myndsímtöl frekar en með öðrum hætti en Jóhannes starfaði í Namibíu.

Sagði Jóhannes að Þorsteinn hefði í myndsímtölunum „gefið grænt ljós“ á mútugreiðslur til namibískra ráðamanna. 

Heimildin segir að smáskilaboðin hafi verið borin undir Þorstein Má í yfirheyrslu sem nýlega fór fram. Segir í umfjölluninni að yfirheyrslurnar verði með þeim síðustu áður en ákvörðun verði tekin um hvort og hverjir munu fara fyrir dóm í málinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.10.24 493,17 kr/kg
Þorskur, slægður 18.10.24 570,51 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.10.24 260,59 kr/kg
Ýsa, slægð 18.10.24 222,79 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.10.24 230,23 kr/kg
Ufsi, slægður 18.10.24 232,43 kr/kg
Djúpkarfi 17.10.24 124,11 kr/kg
Gullkarfi 18.10.24 160,20 kr/kg
Litli karfi 25.9.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 16.10.24 127,54 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.10.24 Særún EA 251 Þorskfisknet
Ýsa 788 kg
Þorskur 570 kg
Ufsi 462 kg
Karfi 25 kg
Samtals 1.845 kg
18.10.24 Geir ÞH 150 Dragnót
Ýsa 10.585 kg
Skarkoli 757 kg
Þorskur 706 kg
Ufsi 210 kg
Langlúra 30 kg
Þykkvalúra 4 kg
Samtals 12.292 kg
18.10.24 Sæþór EA 101 Þorskfisknet
Þorskur 916 kg
Ýsa 823 kg
Ufsi 262 kg
Skarkoli 22 kg
Karfi 3 kg
Samtals 2.026 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.10.24 493,17 kr/kg
Þorskur, slægður 18.10.24 570,51 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.10.24 260,59 kr/kg
Ýsa, slægð 18.10.24 222,79 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.10.24 230,23 kr/kg
Ufsi, slægður 18.10.24 232,43 kr/kg
Djúpkarfi 17.10.24 124,11 kr/kg
Gullkarfi 18.10.24 160,20 kr/kg
Litli karfi 25.9.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 16.10.24 127,54 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.10.24 Særún EA 251 Þorskfisknet
Ýsa 788 kg
Þorskur 570 kg
Ufsi 462 kg
Karfi 25 kg
Samtals 1.845 kg
18.10.24 Geir ÞH 150 Dragnót
Ýsa 10.585 kg
Skarkoli 757 kg
Þorskur 706 kg
Ufsi 210 kg
Langlúra 30 kg
Þykkvalúra 4 kg
Samtals 12.292 kg
18.10.24 Sæþór EA 101 Þorskfisknet
Þorskur 916 kg
Ýsa 823 kg
Ufsi 262 kg
Skarkoli 22 kg
Karfi 3 kg
Samtals 2.026 kg

Skoða allar landanir »