Landeldisfyrirtækið Laxey í Vestmannaeyjum og Baader á Íslandi hafa gert með sér samning um afhendingu á vinnslubúnaði fyrir væntanlegt sláturhús Laxeyjar.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Laxey en þar segir m.a.: „Samningurinn markar tímamót fyrir bæði félög, sem sjá fram á að styrkja stöðu sína á ört vaxandi markaði landeldis á Íslandi. Fyrir LAXEY er samstarfið mikilvægt í að tryggja búnað og framleiðslutækni, sem mun styðja við áætlanir þess um hágæða afurðir fyrir alþjóðlegan markað.“
Baader er alþjóðlegt fyrirtæki í þróun og framleiðslu á tækjabúnaði fyrir vinnslu sjávarafurða. Í tilkynningunni segir að félagið bjóði þekktar lausnir sem hannaðar eru með gæði ig dýravelferð í huga. „Þessi nálgun gerir Baader að góðum samstarfsaðila fyrir Laxey, sem leggur áherslu á ábyrgðarfulla matvælaframleiðslu og uppfyllir um leið kröfur viðskiptavina um allan heim.“
Mikil uppbygging er í gangi í Vestmananeyjum og lauk Laxey 900 milljóna króna hlutafjárútoði síðastliðið sumar.
„Við erum spennt fyrir þessu samstarfi við Baader, sem er í fararbroddi þegar kemur að tæknilausnum fyrir sjávarútveg. Þessi samningur getur lagt grunninn að árangursríku samstarfi og við væntum þess að þetta verði upphafið að farsælu sambandi sem mun stuðla að því að efla íslenskan landeldisiðnað,“ er haft eftir Kristmanni Kristmannssyni, verkefnisstjóra vinnslu og innkaupa.
„Við erum stolt af því að taka þátt í þessu mikilvæga verkefni með LAXEY. Okkar búnaður mun tryggja að þeir geti staðið undir þeim ströngu kröfum sem gerðar eru til gæða í framleiðslu á alþjóðlegum markaði,“ segir Karl Ásgeirsson, sölustjóri Baader á Íslandi.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 5.11.24 | 539,30 kr/kg |
Þorskur, slægður | 5.11.24 | 584,83 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 5.11.24 | 312,80 kr/kg |
Ýsa, slægð | 5.11.24 | 309,75 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 5.11.24 | 259,80 kr/kg |
Ufsi, slægður | 5.11.24 | 307,39 kr/kg |
Djúpkarfi | 17.10.24 | 124,11 kr/kg |
Gullkarfi | 5.11.24 | 326,21 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 3.11.24 | 277,00 kr/kg |
5.11.24 Geir ÞH 150 Dragnót | |
---|---|
Skarkoli | 5.366 kg |
Ýsa | 486 kg |
Þorskur | 314 kg |
Steinbítur | 28 kg |
Samtals | 6.194 kg |
5.11.24 Ólafur Bjarnason SH 137 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 7.039 kg |
Skrápflúra | 601 kg |
Sandkoli | 587 kg |
Skarkoli | 423 kg |
Steinbítur | 110 kg |
Þorskur | 22 kg |
Samtals | 8.782 kg |
5.11.24 Óli Á Stað GK 99 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 71 kg |
Langa | 48 kg |
Hlýri | 27 kg |
Steinbítur | 22 kg |
Ýsa | 21 kg |
Keila | 6 kg |
Karfi | 3 kg |
Samtals | 198 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 5.11.24 | 539,30 kr/kg |
Þorskur, slægður | 5.11.24 | 584,83 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 5.11.24 | 312,80 kr/kg |
Ýsa, slægð | 5.11.24 | 309,75 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 5.11.24 | 259,80 kr/kg |
Ufsi, slægður | 5.11.24 | 307,39 kr/kg |
Djúpkarfi | 17.10.24 | 124,11 kr/kg |
Gullkarfi | 5.11.24 | 326,21 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 3.11.24 | 277,00 kr/kg |
5.11.24 Geir ÞH 150 Dragnót | |
---|---|
Skarkoli | 5.366 kg |
Ýsa | 486 kg |
Þorskur | 314 kg |
Steinbítur | 28 kg |
Samtals | 6.194 kg |
5.11.24 Ólafur Bjarnason SH 137 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 7.039 kg |
Skrápflúra | 601 kg |
Sandkoli | 587 kg |
Skarkoli | 423 kg |
Steinbítur | 110 kg |
Þorskur | 22 kg |
Samtals | 8.782 kg |
5.11.24 Óli Á Stað GK 99 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 71 kg |
Langa | 48 kg |
Hlýri | 27 kg |
Steinbítur | 22 kg |
Ýsa | 21 kg |
Keila | 6 kg |
Karfi | 3 kg |
Samtals | 198 kg |