Seinni dagurinn á Sjávarútvegsráðstefnunni fer nú fram í Hörpu og segir Kristinn Hjármarsson formaður hennar að það hafi verið gríðarlega góður rómur á meðal ráðstefnugesta.
„Það var frábær opnunarmálstofa í gær svo er ráðstefnan með blöndu af fólki úr greinni og stjórnmálamönnum og dagurinn endaði með skemmtilegri veitingu hvatningarverðlaunanna," segir Kristinn í samtali við mbl.
Aðspurður segir hann að fólk hafi kvartað yfir tvennu það hafi verið alltof mörg áhugverð erindi og málstofur á ráðstefnunni og dagskráinn þurfi að vera sett fram með skýrari hætti.
„Fólk hafði orð af því það væru of mörg áhugverð erindi og málstofur svo það var nær ómögulegt að velja á milli," segir Kristinn léttur í bragði.
Fv. Áslaug Eir Olgeirsdóttir skrifstofustjóri í Matvælaráðuneytinu, Heiðrún Lind Marteinsdóttir framkvæmdastjóri SFS og Pétur Hafsteinn Pálsson framkvæmdastjóri Vísis í Grindavík.
Eggert Jóhannesson
Ánægja var á með ráðstefnugesta með fjölbreytt úrval af erindum og málstofum sem tengdust sjávarútveginum.
Eggert Jóhannesson
Ráðstefnugestir fylgdust grannt með erindi sem fjallaði um fiskveiðistjórnun í öðrum löndum.
Eggert Jóhannesson