Meta stöðuna í kjölfar dóms Landsréttar

Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson (Binni) segir ekkert ákveðið um framhald málaferla …
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson (Binni) segir ekkert ákveðið um framhald málaferla vegna skaðabóta í makrílmálinu. mbl.is/Óskar Pétur Friðriksson.

Ekki hefur verið tekin ákvörðun um það hvort Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum láti reyna að áfrýja til Hæstaréttar vegna ákvörðunar Landsréttar um að lækka þær skaðabætur sem útgerðinni voru dæmdar í héraðsdómi vegna ólögmætrar úthlutunar á makrílkvóta árin 2011 til 2018.

„Málið er til skoðunar. Við eigum enn eftir að ljúka við að fara yfir niðurstöðuna og munum gefa okkur góðan tíma í það,“ segir Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson (Binni), framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, í samtali við 200 mílur.

Landsréttur staðfesti í síðustu viku niðurstöðu héraðsdóms um að íslenska ríkið skyldi greiða Vinnslustöðinni og Hugin (dótturfélag Vinnslustöðvarinnar) skaðabætur í ljósi þess að félögunum hafði verið úthlutað minni hlutdeild í heildaraflamarki í makríl en lög kváðu á um.

Var vinnslustöðinni dæmdar 269,5 milljónir króna í Landsrétti en héraðsdómur hafði í dómi sínum í fyrra talið 515 milljónir króna hæfilegar bætur. Skaðabætur Hugins héldust þó óbreyttar og námu 329 milljónum króna.

Aðspurður upplýsir Binni að engar ákvarðanir hafa verið teknar um það hvernig bótum sem félagið hlýtur verði ráðstafað.

Sjö félög kröfðust rúmlega 10 milljarða

Þegar málaferlin hófust umskaðabætur vegna ólögmætrar úthlutunar makrílkvóta voru sjö útgerðir aðildar að málinu. Auk Vinnslustöðvarinnar og Hugins voru það Eskja, Loðnuvinnslan, Ísfélag Vestmannaeyja (nú Ísfélag), Gjögur og Skinney-Þinganes. Var samanlögð skaðabótakrafa félaganna sjö 10,2 milljarðar króna.

Eskja, Loðnuvinnslan, Ísfélag Vestmannaeyja, Gjögur og Skinney-Þinganes féllu frá kröfum sínum 2020 og sögðust með þeirri ákvörðun leggja sitt á vogaskálarnar vegna víðtækra áhrifa kórónuveirufaraldursins á ríkissjóð og íslenskt samfélag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.3.25 551,13 kr/kg
Þorskur, slægður 19.3.25 612,55 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.3.25 256,15 kr/kg
Ýsa, slægð 19.3.25 212,83 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.3.25 177,49 kr/kg
Ufsi, slægður 19.3.25 216,61 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 19.3.25 11,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 19.3.25 153,75 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.3.25 Vestmannaey VE 54 Botnvarpa
Ýsa 8.000 kg
Skarkoli 5.502 kg
Þykkvalúra 745 kg
Langa 463 kg
Skötuselur 391 kg
Samtals 15.101 kg
19.3.25 Kristján HF 100 Lína
Ýsa 321 kg
Langa 291 kg
Þorskur 107 kg
Steinbítur 53 kg
Ufsi 28 kg
Karfi 20 kg
Keila 18 kg
Skarkoli 1 kg
Samtals 839 kg
19.3.25 Kristján HF 100 Lína
Ýsa 6.883 kg
Þorskur 3.382 kg
Samtals 10.265 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.3.25 551,13 kr/kg
Þorskur, slægður 19.3.25 612,55 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.3.25 256,15 kr/kg
Ýsa, slægð 19.3.25 212,83 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.3.25 177,49 kr/kg
Ufsi, slægður 19.3.25 216,61 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 19.3.25 11,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 19.3.25 153,75 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.3.25 Vestmannaey VE 54 Botnvarpa
Ýsa 8.000 kg
Skarkoli 5.502 kg
Þykkvalúra 745 kg
Langa 463 kg
Skötuselur 391 kg
Samtals 15.101 kg
19.3.25 Kristján HF 100 Lína
Ýsa 321 kg
Langa 291 kg
Þorskur 107 kg
Steinbítur 53 kg
Ufsi 28 kg
Karfi 20 kg
Keila 18 kg
Skarkoli 1 kg
Samtals 839 kg
19.3.25 Kristján HF 100 Lína
Ýsa 6.883 kg
Þorskur 3.382 kg
Samtals 10.265 kg

Skoða allar landanir »