Frambjóðendur átta framboða hafa staðfest þátttöku í pallborðsumræðum um sjókvíaeldi að lokinni sýningu myndarinnar „Árnar þagna“ eftir Óskar Pál Sveinsson í Háskólabíói í kvöld.
Viðburðurinn sem hefst klukkan 20 í kvöld er öllum opinn á meðan pláss er, en þetta er ekki í fyrsta sinn sem slíkur viðburður er haldinn vegna sýningu myndarinnar. Var þessi háttur á einig þegar myndin var frumsýnd á Akureyri 6. nóvember.
Þeir frambjóðendur sem hafa boðað þátttöku sína eru:
- Samfylkingin - Þórunn Sveinbjarnardóttir
- Píratar - Halldóra Mogensen
- Flokkur fólksins - Inga Sæland
- VG - Finnur Ricart Andrason
- Sjálfstæðisflokkurinn - Guðlaugur Þór Þórðarson
- Viðreisn - Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
- Lýðræðisflokkurinn - Arnar Þór Jónsson
- Sósíalistaflokkurinn - Guðmundur Hrafn Arngrímsson
Í kynningu myndarinnar segir: „Í júní á þessu ári fyrirskipaði Umhverfisstofnun Noregs lokun á 33 af þekktustu laxveiðiám Noregs vegna skaðans sem sjókvíaeldi á laxi og loftslagsbreytingar hafa valdið á villtum laxastofnum. Á einu augnabliki hvarf stór hluti lifibrauðs fjölskyldna sem hafa byggt afkomu sína á hlunnindum af stangveiði í marga ættliði. Í myndinni eru viðtöl við eigendur norskra laxveiðiáa, sem tekin voru nokkrum dögum eftir að fótunum var kippt undan tilveru þeirra, og fólk í sveitum Íslands um þá framtíð sem mögulega bíður þess og fjölskyldna þeirra.“