Bjarni veitir hvalveiðileyfi til fimm ára

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og matvælaráðherra hefur veitt leyfi til hvalveiða …
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og matvælaráðherra hefur veitt leyfi til hvalveiða næstu fimm ár. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra og matvælaráðherra, hefur gefið út leyfi til veiða á 201 langreyð til Hvals hf. auk leyfis til veiða á 217 hrefnum til tog- og hrefnuveiðibátsins Halldórs Sigurðssonar ÍS 14 sem er í eigu Tjaldtanga ehf., að því er segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Leyfin eru veitt til fimm ára eins og gert var árin 2009, 2014 og 2019. Leyfin framlengjast árlega um eitt ár og er heimilt að flytja allt að 20% af veiðiheimildum hvers árs yfir á næsta ár. Fiskistofa og Matvælastofnun munu sem fyrr hafa eftirlit með veiðunum.

Fram kemur að þrjár umsóknir bárust um leyfi til hrefnuveiða og ein umsókn til veiða á langreyðum. Sem fyrr segir voru aðeins tvö leyfi veitt og var að fengnum umsögnum Fiskistofu og Hafrannsóknastofnunar.

Hvalveiðar hafa verið í ákveðinni pattstöðu frá því á síðasta ári þegar Svandís Svavarsdóttir, þáverandi matvælaráðherra, stöðvaði hvalveiðar tímabundið vegn aálits fagráðs um velferð dýra.

Var einnig vísað til þess að eft­ir­lits­skýrsla Mat­væla­stofn­un­ar um vel­ferð hvala við veiðar á langreyðum, sem barst ráðuneyt­inu í maí 2023, sýndi skýra niður­stöðu um að af­líf­un dýr­anna hafi tekið of lang­an tíma út frá meg­in­mark­miðum laga um vel­ferð dýra.

Á dögunum skoruðu umhverfisverndunarsamtök á Bjarna að gefa ekki út leyfi til hvalveiða á ný fyrr en ný ríkisstjórn tekur til starfa sem hafi umboð á Alþingi.

„Vernd­un líf­rík­is sjáv­ar er brýn­asta hags­muna­mál lands­ins og veiðar á hrefn­um og langreyðum á grunni hæp­ins fyr­ir­vara við alþjóðlegu hval­veiðibanni mun ekki styrkja bar­áttu Íslend­inga fyr­ir vernd­un hafs­ins – lífs­hags­mun­um þjóðar­inn­ar,“ seg­ir í bréf­i sem samtökin sendu Bjarna.

Byggi á sjálfbærri nýtingu

Í tilkynningunni á vef stjórnarráðsins segir að „stjórnun á nýtingu lifandi auðlinda sjávar á Íslandi er í föstum skorðum og skal leyfilegur heildarafli á langreyði og hrefnu fylgja veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunar sem byggir á sjálfbærri nýtingu og varúðarnálgun. Ráðgjöfin er byggð á úttektum Norður-Atlantshafssjávarspendýraráðsins (NAMMCO) og mælir fyrir um að árlegar veiðar á langreyði á tímabilinu 2018-2025 nemi ekki meira en 161 dýrum á veiðisvæðinu Austur-Grænland/Vestur-Ísland og að hámarki 48 langreyðum á svæðinu Austur-Ísland/Færeyjar.“

Bent er á að ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um hvalveiðar fyrir árin 2018 til 2025 vísar til stofnmatsþróun frá 2017 þar sem greint var frá því að langreyði hafi fjölgað við Ísland allt frá upphafi hvalatalninga 1987.

„Fjöldinn í síðustu talningu (2015) var sá mesti síðan talningar hófust. Besta leiðrétta mat fyrir allt talningasvæði Íslands og Færeyja árið 2015 var 40.788 langreyðar, þar af 33.497 á Austur Grænlands-Íslands stofnsvæðinu.“

217 hrefnur

Einnig er vakin athygli á að Hafrannsóknastofnun ráðleggur að árlegar veiðar á hrefnu árin 2018 til 2025 verði ekki fleiri en 217 dýr.

Þá voru sex hrefnur veiddar árið 2018 og ein árið 2021. Engar langreyðar hafa verið veiddar á árinu 2024, árið 2022 voru 148 dýr veidd eftir þriggja ára veiðihlé og 24 dýr voru veidd árið 2023.

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 13.12.24 650,41 kr/kg
Þorskur, slægður 13.12.24 365,96 kr/kg
Ýsa, óslægð 13.12.24 433,43 kr/kg
Ýsa, slægð 13.12.24 268,19 kr/kg
Ufsi, óslægður 13.12.24 213,90 kr/kg
Ufsi, slægður 13.12.24 294,00 kr/kg
Djúpkarfi 8.11.24 179,00 kr/kg
Gullkarfi 13.12.24 237,42 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 12.12.24 394,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

14.12.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Ýsa 13.735 kg
Þorskur 6.073 kg
Steinbítur 280 kg
Langa 61 kg
Hlýri 6 kg
Samtals 20.155 kg
14.12.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Þorskur 635 kg
Ýsa 548 kg
Steinbítur 265 kg
Langa 34 kg
Ufsi 8 kg
Karfi 5 kg
Samtals 1.495 kg
13.12.24 Sæli BA 333 Lína
Þorskur 417 kg
Langa 219 kg
Steinbítur 116 kg
Ýsa 76 kg
Karfi 16 kg
Samtals 844 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 13.12.24 650,41 kr/kg
Þorskur, slægður 13.12.24 365,96 kr/kg
Ýsa, óslægð 13.12.24 433,43 kr/kg
Ýsa, slægð 13.12.24 268,19 kr/kg
Ufsi, óslægður 13.12.24 213,90 kr/kg
Ufsi, slægður 13.12.24 294,00 kr/kg
Djúpkarfi 8.11.24 179,00 kr/kg
Gullkarfi 13.12.24 237,42 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 12.12.24 394,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

14.12.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Ýsa 13.735 kg
Þorskur 6.073 kg
Steinbítur 280 kg
Langa 61 kg
Hlýri 6 kg
Samtals 20.155 kg
14.12.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Þorskur 635 kg
Ýsa 548 kg
Steinbítur 265 kg
Langa 34 kg
Ufsi 8 kg
Karfi 5 kg
Samtals 1.495 kg
13.12.24 Sæli BA 333 Lína
Þorskur 417 kg
Langa 219 kg
Steinbítur 116 kg
Ýsa 76 kg
Karfi 16 kg
Samtals 844 kg

Skoða allar landanir »