Leyfisveiting á ekki að byggja á pólitískum grunni

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra að loknum ríkisstjórnarfundi.
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra að loknum ríkisstjórnarfundi. mbl.is/Karítas

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segir pólitík liggja að baki tals um það að hann hefði átt að bíða með að veita hvalveiðileyfi þar til ný ríkisstjórn tæki við. Ákvörðun um veitingu leyfis til fimm ára sé eðlileg stjórnsýsla.

Arna Lára Jóns­dótt­ir, þingmaður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar í Norðvest­ur­kjör­dæmi, sagði í samtali við mbl.is að henni þætti eðlilegast ef Bjarni hefði beðið með að veita leyfi til hvalveiða þar til nýr matvælaráðherra tæki við.

„Mig grunar að baki þessu sé pólitík og það er komið nóg af því að þessi mál séu afgreidd á pólitískum forsendum finnst mér,“ segir Bjarni í samtali við mbl.is að ríkisstjórnarfundi loknum. 

Eðlileg stjórnsýsla 

Hann segir að í fyrra hafi komið fram umsókn um leyfi til hvalveiða í janúar sem hafi svo ekki verið afgreidd fyrr en í júní. Nú sé ráðuneytið að svara fyrir þá málsmeðferð.

„Umboðsmaður hefur kallað eftir upplýsingum um það hvað dró orminn langa og hefur spurt út í fleiri atriði. Hérna er einfaldlega um að ræða eðlilega stjórnsýslu sem þarf að ganga fyrir sig í starfsstjórn eins og öðrum ríkisstjórnum,“ segir Bjarni.

Verður að koma í ljós hvort að fleiri sæki um leyfi

Auk þess að veita Hvali hf. leyfi til veiða á langreyði þá veitti hann leyf­i til veiða á hrefnu til tog- og hrefnu­veiðibáts­ins Hall­dórs Sig­urðsson­ar ÍS 14, sem er í eigu fé­lags­ins Tjald­tanga.

Félagið hefur áður fengið leyfi til hrefnuveiða en ekki nýtt það. Spurður hvort að það hafi einhver áhrif segir Bjarni:

„Nei. Það sem ráðuneytið þarf sérstaklega að gá að er hver heildarfjöldi dýra sem má sækja er. Og ef það verða fleiri en einn sem stunda veiðar þá þarf að gæta að því hver staðan er á veiðiheimildum hverju sinni. Það hefur lítið verið veitt af hrefnu á undanförnum árum. Það verður bara að koma í ljós hvort að fleiri munu sækja um og uppfylla skilyrðin og hversu margir munu stunda veiðarnar. Eins líka hversu mörg dýr verða sótt á grundvelli þessa leyfis,“ segir hann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 21.2.25 591,58 kr/kg
Þorskur, slægður 21.2.25 590,29 kr/kg
Ýsa, óslægð 21.2.25 317,96 kr/kg
Ýsa, slægð 21.2.25 304,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 21.2.25 221,77 kr/kg
Ufsi, slægður 21.2.25 271,15 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 30.1.25 16,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 19.2.25 170,00 kr/kg
Gullkarfi 21.2.25 318,77 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.2.25 Máni II ÁR 7 Línutrekt
Ýsa 939 kg
Þorskur 210 kg
Samtals 1.149 kg
22.2.25 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Steinbítur 486 kg
Ýsa 407 kg
Þorskur 175 kg
Hlýri 60 kg
Keila 6 kg
Karfi 3 kg
Samtals 1.137 kg
22.2.25 Jónína Brynja ÍS 55 Lína
Þorskur 249 kg
Ýsa 56 kg
Hlýri 15 kg
Samtals 320 kg
22.2.25 Sólrún EA 151 Lína
Þorskur 4.590 kg
Ýsa 1.106 kg
Keila 68 kg
Steinbítur 51 kg
Hlýri 27 kg
Ufsi 8 kg
Samtals 5.850 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 21.2.25 591,58 kr/kg
Þorskur, slægður 21.2.25 590,29 kr/kg
Ýsa, óslægð 21.2.25 317,96 kr/kg
Ýsa, slægð 21.2.25 304,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 21.2.25 221,77 kr/kg
Ufsi, slægður 21.2.25 271,15 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 30.1.25 16,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 19.2.25 170,00 kr/kg
Gullkarfi 21.2.25 318,77 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.2.25 Máni II ÁR 7 Línutrekt
Ýsa 939 kg
Þorskur 210 kg
Samtals 1.149 kg
22.2.25 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Steinbítur 486 kg
Ýsa 407 kg
Þorskur 175 kg
Hlýri 60 kg
Keila 6 kg
Karfi 3 kg
Samtals 1.137 kg
22.2.25 Jónína Brynja ÍS 55 Lína
Þorskur 249 kg
Ýsa 56 kg
Hlýri 15 kg
Samtals 320 kg
22.2.25 Sólrún EA 151 Lína
Þorskur 4.590 kg
Ýsa 1.106 kg
Keila 68 kg
Steinbítur 51 kg
Hlýri 27 kg
Ufsi 8 kg
Samtals 5.850 kg

Skoða allar landanir »