Keyrð í 200 þúsund klukkutíma

skip Loðnuvinnslunnar Fáskrúðsfirði - ljósafell
skip Loðnuvinnslunnar Fáskrúðsfirði - ljósafell Ljósmynd/Loðnuvinnslan

Aðalvélin í Ljósafelli SU-70 náði þeim merka áfanga á dögunum að hafa verið keyrð í 200.000 klukkustundir. Hefur hún verið í notkun frá því í nóvember 1988 þegar hún var sett í skipið í Gdynia í Póllandi.

Fram kemur í færslu á vef Loðnuvinnslunnar, sem gerir Ljósafellið út, að japanska vélin af gerðinni Niigata hafi náð áfanganum 12. desember klukkan 13:03. Bent er á að bíll sem væri ekinn á 60 kílómetrum á klukkustund í 200 þúsund klukkutíma myndi ná að keyra 12 milljónir kílómetra, en tíminn er ígildi þess að vélin gengi stanslaust í 22 ár.

Högni Páll Harðarson sem var vélstjóri á Ljósfelli þegar vélin var sett um borð segir grunnhönnun vélarinnar hafi verið mikilvægur þáttur í þessum langa endingartíma hennar. Einnig hafi góð umhirða, eftirlit og tímanleg útskipti á slithlutum mikið að segja.

Verið að taka vélina úr umbúðum áður en hún var …
Verið að taka vélina úr umbúðum áður en hún var hífð um borð Ljósafell í Gdynia í Póllandi 1988. Ljósmynd/Loðnuvinnslan: Högni Páll Harðarson

Allir íhlutir sverir og sterkir

„Það eru allir íhlutir í þessari vél sverir og sterkir sem þýðir að þeir þola meira álag,“ er haft eftir Kristjáni Birgi Gylfasyni yfirvélstjóra á Ljósafelli. Hann segir einnig vélina hannaða til þess að ganga 310 snúninga en hann, og hinir vélstjórarnir, létu hana aldrei ganga meira en 280 snúninga.

Kristján Birgir telur ljóst að vélin gæti gengið í mörg ár í viðbót enda hafi aldrei verið sparað í viðhaldinu og vel hugsað um hana. Það eru þó aðrir þættir sem gætu haft áhrif á það hve lengi verpur hægt að nýta hana. „Það gæti farið að verða svolítið erfitt að fá varahluti því að hún er jú komin til ára sinna þrátt fyrir að vera við hestaheilsu.“

Í færslunni segir að vélin stóð í 200.041,9 klukkustundum þegar Ljósafell lagðist við bryggju eftir síðasta túr fyrir jól. Hins vegar getur teljarinn ekki talið meira en upp í 99.999 og hafa vélstjórar á Ljósafelli því gripið til þess ráðs að bæta við tölum fyrir framan með límmiða.

Teljarinn telur bara upp í 99.999 og hefur því þurft …
Teljarinn telur bara upp í 99.999 og hefur því þurft að grípa í límmiða til að halda tölu yfir vinnustundum vélarinnar. Ljósmynd/Loðnuvinnslan: Kjartan Reynisson
Áfanganum var að venju fagnað með köku. F.v. Kristján Birgir …
Áfanganum var að venju fagnað með köku. F.v. Kristján Birgir Gylfason yfirvélstjóri, Pétur Kristinsson 1.vélstjóri og Þorvaldur Már Elíasson yfirvélstjóri á móti Kristjáni. Enginn þeirra var fæddur þegar vélin var sett niður árið 1988. Ljósmynd/Loðnuvinnslan: Kjartan Reynisson.



mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.12.24 710,33 kr/kg
Þorskur, slægður 22.12.24 707,99 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.12.24 401,74 kr/kg
Ýsa, slægð 22.12.24 174,32 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.12.24 211,11 kr/kg
Ufsi, slægður 22.12.24 62,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 18.12.24 42,00 kr/kg
Djúpkarfi 8.11.24 179,00 kr/kg
Gullkarfi 22.12.24 140,85 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.12.24 Kristrún RE 177 Grálúðunet
Grálúða 192.678 kg
Þorskur 6.879 kg
Samtals 199.557 kg
22.12.24 Júlíus Geirmundsson ÍS 270 Botnvarpa
Þorskur 186.991 kg
Ýsa 154.221 kg
Karfi 48.438 kg
Ufsi 9.809 kg
Steinbítur 1.935 kg
Skarkoli 206 kg
Þykkvalúra 151 kg
Langa 92 kg
Samtals 401.843 kg
22.12.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Skarkoli 108 kg
Ýsa 35 kg
Steinbítur 26 kg
Sandkoli 14 kg
Samtals 183 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.12.24 710,33 kr/kg
Þorskur, slægður 22.12.24 707,99 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.12.24 401,74 kr/kg
Ýsa, slægð 22.12.24 174,32 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.12.24 211,11 kr/kg
Ufsi, slægður 22.12.24 62,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 18.12.24 42,00 kr/kg
Djúpkarfi 8.11.24 179,00 kr/kg
Gullkarfi 22.12.24 140,85 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.12.24 Kristrún RE 177 Grálúðunet
Grálúða 192.678 kg
Þorskur 6.879 kg
Samtals 199.557 kg
22.12.24 Júlíus Geirmundsson ÍS 270 Botnvarpa
Þorskur 186.991 kg
Ýsa 154.221 kg
Karfi 48.438 kg
Ufsi 9.809 kg
Steinbítur 1.935 kg
Skarkoli 206 kg
Þykkvalúra 151 kg
Langa 92 kg
Samtals 401.843 kg
22.12.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Skarkoli 108 kg
Ýsa 35 kg
Steinbítur 26 kg
Sandkoli 14 kg
Samtals 183 kg

Skoða allar landanir »