Skipverjar á Brúarfossi náðu ekki að elda jólamat á jóladag og borðuðu pylsur í staðinn. Tafir vegna veðurs hafa gert það að verkum að þeir ná tæplega í land fyrir áramót.
Karl Guðmundsson er skipstjóri á Brúarfossi og eru þetta 30. jólin sem hann heldur upp á á hafi úti.
Skipið lagði í haf frá Reykjavík á Þorláksmessu og var leiðinlegt veður á aðfangadag, að sögn Karls. Gátu skipverjar þó glaðst yfir því að hamborgarhryggur var á boðstólum í tilefni jólanna.
„[...] en svo var svo mikill veltingur á jóladag að þá voru pulsur,“ segir Karl.
Pulsur eða pylsur eru dæmigerður brælumatur að hans sögn, þegar erfitt er að elda um borð þegar slæmt er í sjóinn.
„Þá er ómögulegt að vera með potta og pönnur úti um allt og halda sér,“ segir Karl. Best sé að hafa eldamennskuna sem einfaldasta.
Karl var við suðurodda Grænlands þegar blaðamaður hafði samband. Hann segir að vegna veðurs hafi túrnum seinkað um einn og hálfan sólahring.
Stefnt sé á að reyna að ná áramótunum í landi, en vegna tafa sé það afar knappt. „Við verðum aftur í Reykjavík á gamlársdag eða nýársdag.“ Karl er ekki mikið að stressa sig yfir því, enda ýmsu vanur.
„Það er ekkert alltaf gott veður á jólunum. Það getur alveg hist þannig á að vera veðurtepptur og það séu tafir þannig að menn missi af jólunum og alls konar. Það er allt til í því,“ segir Karl að lokum.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 14.1.25 | 576,36 kr/kg |
Þorskur, slægður | 14.1.25 | 659,33 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 14.1.25 | 378,96 kr/kg |
Ýsa, slægð | 14.1.25 | 233,35 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 14.1.25 | 182,76 kr/kg |
Ufsi, slægður | 14.1.25 | 218,63 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 14.1.25 | 21,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 6.1.25 | 90,00 kr/kg |
Gullkarfi | 14.1.25 | 220,16 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
14.1.25 Erling KE 140 Þorskfisknet | |
---|---|
Þorskur | 3.764 kg |
Samtals | 3.764 kg |
14.1.25 Dagrún HU 121 Þorskfisknet | |
---|---|
Þorskur | 511 kg |
Samtals | 511 kg |
14.1.25 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet | |
---|---|
Þorskur | 1.425 kg |
Ufsi | 241 kg |
Karfi | 14 kg |
Samtals | 1.680 kg |
14.1.25 Viðey RE 50 Botnvarpa | |
---|---|
Karfi | 54.692 kg |
Þorskur | 54.480 kg |
Ufsi | 21.582 kg |
Ýsa | 21.435 kg |
Samtals | 152.189 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 14.1.25 | 576,36 kr/kg |
Þorskur, slægður | 14.1.25 | 659,33 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 14.1.25 | 378,96 kr/kg |
Ýsa, slægð | 14.1.25 | 233,35 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 14.1.25 | 182,76 kr/kg |
Ufsi, slægður | 14.1.25 | 218,63 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 14.1.25 | 21,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 6.1.25 | 90,00 kr/kg |
Gullkarfi | 14.1.25 | 220,16 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
14.1.25 Erling KE 140 Þorskfisknet | |
---|---|
Þorskur | 3.764 kg |
Samtals | 3.764 kg |
14.1.25 Dagrún HU 121 Þorskfisknet | |
---|---|
Þorskur | 511 kg |
Samtals | 511 kg |
14.1.25 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet | |
---|---|
Þorskur | 1.425 kg |
Ufsi | 241 kg |
Karfi | 14 kg |
Samtals | 1.680 kg |
14.1.25 Viðey RE 50 Botnvarpa | |
---|---|
Karfi | 54.692 kg |
Þorskur | 54.480 kg |
Ufsi | 21.582 kg |
Ýsa | 21.435 kg |
Samtals | 152.189 kg |