Hagnaður sjávarútvegs minnkað milli ára

Hagnaður í sjávarútvegi minnkaði milli áranna 2022 og 2023.
Hagnaður í sjávarútvegi minnkaði milli áranna 2022 og 2023. Ljósmynd/Þröstur Njálsson

Hagnaður fyrirtækja í fiskveiðum og vinnslu fyrir afskriftir, fjármagnskostnað og tekjuskatt (EBITDA) sem hlutfall af heildartekjum sjávarútvegs minnkaði á milli áranna 2022 og 2023, að því er fram kemur í hagtíðindum Hagstofu Íslands.

Þar segir að „frá árinu 2022 lækkaði hlutfallið (án milliviðskipta) úr 37% í 36,5%, hækkaði í fiskveiðum úr 24,6% árið 2022 í 24,9% af tekjum árið 2023 og lækkaði í fiskvinnslu úr 21,1% í 18,3%.“

Hreinn hagnaður (EBT) fyrirtækjanna samkvæmt árgreiðsluaðferð er sagður hafa dregist saman milli ára og hafi verið 24% árið 2023 en var 26,3% árið á undan.

„Í fjárhæðum nam hagnaðurinn rúmum 72 milljörðum króna eftir að gjaldfærð hefur verið árgreiðsla að fjárhæð rúmum 38 milljörðum króna. Sé miðað við hefðbundna uppgjörsaðferð nam hagnaðurinn rúmum 70 milljörðum króna eða 23,2% af tekjum árið 2023 borið saman við 27,3% árið áður.“

Fram kemur einnig að heildareignir í sjávarútvegi voru í árslok 2023 tæpir 1.059 milljarðar króna, heildarskuldir rúmir 554 milljarðar króna og eigið fé rúmir 505 milljarðar króna samkvæmt efnahagsreikningi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 9.1.25 583,09 kr/kg
Þorskur, slægður 9.1.25 586,50 kr/kg
Ýsa, óslægð 9.1.25 339,18 kr/kg
Ýsa, slægð 9.1.25 319,88 kr/kg
Ufsi, óslægður 9.1.25 261,13 kr/kg
Ufsi, slægður 9.1.25 275,16 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 18.12.24 42,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 9.1.25 230,47 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

9.1.25 Fjølnir GK 757 Lína
Þorskur 4.806 kg
Ýsa 3.266 kg
Langa 918 kg
Samtals 8.990 kg
9.1.25 Skúli ST 35 Línutrekt
Þorskur 6.527 kg
Ýsa 183 kg
Steinbítur 117 kg
Samtals 6.827 kg
9.1.25 Benni ST 5 Landbeitt lína
Þorskur 9.213 kg
Ýsa 984 kg
Steinbítur 81 kg
Samtals 10.278 kg
9.1.25 Siggi Bessa SF 97 Línutrekt
Þorskur 8.919 kg
Ýsa 1.746 kg
Keila 102 kg
Steinbítur 38 kg
Samtals 10.805 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 9.1.25 583,09 kr/kg
Þorskur, slægður 9.1.25 586,50 kr/kg
Ýsa, óslægð 9.1.25 339,18 kr/kg
Ýsa, slægð 9.1.25 319,88 kr/kg
Ufsi, óslægður 9.1.25 261,13 kr/kg
Ufsi, slægður 9.1.25 275,16 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 18.12.24 42,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 9.1.25 230,47 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

9.1.25 Fjølnir GK 757 Lína
Þorskur 4.806 kg
Ýsa 3.266 kg
Langa 918 kg
Samtals 8.990 kg
9.1.25 Skúli ST 35 Línutrekt
Þorskur 6.527 kg
Ýsa 183 kg
Steinbítur 117 kg
Samtals 6.827 kg
9.1.25 Benni ST 5 Landbeitt lína
Þorskur 9.213 kg
Ýsa 984 kg
Steinbítur 81 kg
Samtals 10.278 kg
9.1.25 Siggi Bessa SF 97 Línutrekt
Þorskur 8.919 kg
Ýsa 1.746 kg
Keila 102 kg
Steinbítur 38 kg
Samtals 10.805 kg

Skoða allar landanir »