Hærra gjald gæti leitt til lokana

Friðbjörn Ásbjörnsson, framkvæmdastjóri FISK Seafood, telur mikla aukningu veiðigjalda verða …
Friðbjörn Ásbjörnsson, framkvæmdastjóri FISK Seafood, telur mikla aukningu veiðigjalda verða til þess að grípa þurfi til mikillar hagræðingar í rekstri. Samsett mynd

Verða hugmyndir um mikla hækkun veiðigjalds að veruleika kann það að leiða til þess að fækka þurfi skipum og loka fiskvinnslum, að sögn Friðbjörns Ásbjörnssonar framkvæmdastjóra FISK Seafood á Sauðárkróki.

Í pistli sem birtur var nýverið á vef útgerðarinnar segir hann: „Umtalsverð hækkun auðlindagjaldsins er yfirlýst markmið ríkisstjórnarinnar. Það kallar óhjákvæmilega á enn frekari hagræðingu í veiðum og vinnslu útgerðarinnar.“

Veiðigjöld hækkuðu um áramótin í samræmi við ákvæði laga, en þau taka mið af afkomu veiða aftur í tíma. Ný ríkisstjórn hefur hins vegar mælt fyrir „réttlátum aulindagjöldum“ sem flestir túlka sem að ríkissjóðir fái stærri hlutdeild í afkomu sjávarútvegsins.

Verð haldi ekki í við hækkanir

Friðbjörn vekur athygli á því að verðlag á Íslandi hafi hækkað mikið á síðustu árum og þar með einnig rekstrarkostnaður FISK Seafood. Hins vegar hafi verð sjávarafurða á mörkuðum í Evrópu ekki mætt þeim hækkunum.

„Í langan tíma hefur verðið sem við fáum á Evrópumarkaði fyrir frystan þorsk og aðrar afurðir okkar ekki einungis staðið í stað heldur lækkað talsvert síðustu misserin. Viðskiptavinir okkar á Evrópumarkaði, verslanir, veitingastaðir, mötuneyti o.s.frv. láta sér hækkun aðfanga á Íslandi í léttu rúmi liggja og sama gildir um heimsmarkaðinn.“

Þessir þættir hafa átt stóran þátt í að framlegð reksturs samstæðu FISK Seafood hafi á síðasta ári ekki verið meira en um rúmir tveir milljarðar króna, en hún var um þrír milljarðar árin tvö á undan.

„Miðað við óbreyttar veiðar á þessu ári verða auðlindagjöld FISK Seafood um 700 milljónir króna eða u.þ.b. tvær milljónir króna á dag,“ segir hann.

„Ef stjórnvöld seilast of langt í þessum fyrirhuguðu hækkunum gæti hagræðingin í einhverjum tilfellum snúist um að fækka skipum og loka fiskvinnslum. Slíkur samdráttur myndi snerta daglegt líf og afkomu fjölmargra sjávarþorpa og bæjarfélaga.“

Lýstu áhyggjum

Friðbjörn er ekki fyrsti stjórnandi útgerðar sem varar mið mikilli hækkun veiðigjalda og hafa meðal annars þeir Gunnþór Ingvason forstjóri Síldarvinnslunanr hf. og Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar sagt lítið svigrúm til hækkana.

„Þegar rætt er um réttlát auðlindagjöld þarf hins vegar að hafa í huga hvernig staðan er í dag bæði hér á landi og hjá samkeppnisaðilum okkar erlendis. Það liggur fyrir að kolefnisgjöld, sem ekki eru til staðar í sumum samkeppnislöndum okkar í sjávarútvegi, eru að hækka mikið um áramótin. Orkukostnaður hefur sömuleiðis rokið upp á árinu og umhverfisvæn raforka er af skornum skammti. Þá liggur fyrir að veiðigjöld á uppsjávarfisk munu margfaldast um áramótin,“ sagði Gunnþór í áramótakveðju sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 28.3.25 560,85 kr/kg
Þorskur, slægður 28.3.25 623,62 kr/kg
Ýsa, óslægð 28.3.25 348,93 kr/kg
Ýsa, slægð 28.3.25 304,76 kr/kg
Ufsi, óslægður 28.3.25 177,64 kr/kg
Ufsi, slægður 28.3.25 235,77 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 19.3.25 11,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 28.3.25 235,96 kr/kg

Fleiri tegundir »

28.3.25 Eskey ÓF 80 Línutrekt
Ýsa 3.137 kg
Þorskur 2.648 kg
Langa 1.247 kg
Ufsi 138 kg
Keila 115 kg
Steinbítur 54 kg
Karfi 47 kg
Samtals 7.386 kg
28.3.25 Herdís SH 173 Handfæri
Þorskur 844 kg
Ufsi 130 kg
Samtals 974 kg
28.3.25 Neisti HU 5 Þorskfisknet
Grásleppa 26 kg
Samtals 26 kg
28.3.25 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 293 kg
Keila 68 kg
Þorskur 33 kg
Ýsa 29 kg
Hlýri 24 kg
Samtals 447 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 28.3.25 560,85 kr/kg
Þorskur, slægður 28.3.25 623,62 kr/kg
Ýsa, óslægð 28.3.25 348,93 kr/kg
Ýsa, slægð 28.3.25 304,76 kr/kg
Ufsi, óslægður 28.3.25 177,64 kr/kg
Ufsi, slægður 28.3.25 235,77 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 19.3.25 11,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 28.3.25 235,96 kr/kg

Fleiri tegundir »

28.3.25 Eskey ÓF 80 Línutrekt
Ýsa 3.137 kg
Þorskur 2.648 kg
Langa 1.247 kg
Ufsi 138 kg
Keila 115 kg
Steinbítur 54 kg
Karfi 47 kg
Samtals 7.386 kg
28.3.25 Herdís SH 173 Handfæri
Þorskur 844 kg
Ufsi 130 kg
Samtals 974 kg
28.3.25 Neisti HU 5 Þorskfisknet
Grásleppa 26 kg
Samtals 26 kg
28.3.25 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 293 kg
Keila 68 kg
Þorskur 33 kg
Ýsa 29 kg
Hlýri 24 kg
Samtals 447 kg

Skoða allar landanir »

Loka