Fiskistofa býst við kærum

Ekki eru allir sáttir við framkvæmd kvótasetningarinnar grásleppu. Fiskistofa kveðst …
Ekki eru allir sáttir við framkvæmd kvótasetningarinnar grásleppu. Fiskistofa kveðst eiga von á kærum vegna úthlutunar hlutdeilda. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

Fiski­stofa ger­ir ráð fyr­ir að stofn­un­inni ber­ist kær­ur vegna út­reiknaðrar hlut­deild­ar út­gerða í tengsl­um við kvóta­setn­ingu grá­sleppu­veiða. Ekki ligg­ur fyr­ir hvers eðlis kær­urn­ar verða en lík­ur eru á að út­gerðir geri at­huga­semd­ir við viðmiðin að baki út­reikn­ing­un­um.

Kvóta­setn­ing teg­und­ar­inn­ar var samþykkt á Alþingi í júní á síðasta ári og til­kynnti Fiski­stofa 10. janú­ar síðastliðinn að stofn­un­in hefði lokið við út­reikn­inga á hlut­deild­um og út­hlutað þeim. Útreikn­ing­arn­ir byggja á veiðireynslu og taka mið af þrem­ur bestu veiðitíma­bil­um árin 2018, 2019, 2021 og 2022.

Alls hafa 235 út­gerðir og 260 bát­ar fengið út­hlutaða hlut­deild.

„Enn sem komið er hafa bara tvær at­huga­semd­ir [borist] varðandi flutn­ing á veiðireynslu og var brugðist við þeim. Við ger­um ráð fyr­ir að við mun­um fá ein­hverj­ar kær­ur á næstu tveim­ur vik­um,“ seg­ir í svari stofn­un­ar­inn­ar við fyr­ir­spurn Morg­un­blaðsins um fram komn­ar at­huga­semd­ir eða kær­ur vegna fram­kvæmd kvóta­setn­ing­ar­inn­ar.

Tvær út­gerðir um­fram

Í laga­frum­varp­inu sem Alþingi samþykkti er ákveðið að há­marks­hlut­deild út­gerðar tak­markist við 1,5% og að kvót­inn sé bund­inn við út­gerð á fimm veiðisvæðum.

Útgerðarfé­lagið Skúli ehf. er með mestu hlut­deild­ina, eða 1,56%, og Hróa­tildur ehf. er með þá næst­mestu, eða 1,54%. Í báðum til­fell­um er hlut­deild­in um­fram lög­bundið há­mark og hafa þær sex mánuði til að losa sig við heim­ild­irn­ar, en ekki er heim­ilt að selja fyrr en að lokn­um ág­úst­mánuði 2026 og verður heim­ild­um lík­lega dreift á aðrar út­gerðir þegar frest­ur renn­ur út.

Mestri hlut­deild er út­hlutað til báta á veiðisvæðinu Breiðafjörður-Vest­f­irðir, eða 31,6%. Á eft­ir fylg­ir Norður­land með tæp 30%, svo Húna­flói með 17%, Aust­ur­land með 11,2% og að lok­um Suður­land-Faxa­flói með 10,5%.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 30.5.25 481,29 kr/kg
Þorskur, slægður 30.5.25 644,09 kr/kg
Ýsa, óslægð 30.5.25 569,07 kr/kg
Ýsa, slægð 30.5.25 466,97 kr/kg
Ufsi, óslægður 30.5.25 172,36 kr/kg
Ufsi, slægður 30.5.25 270,32 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.5.25 99,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 30.5.25 200,25 kr/kg
Litli karfi 26.5.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

31.5.25 Hugrún DA 1 Grásleppunet
Grásleppa 792 kg
Rauðmagi 6 kg
Samtals 798 kg
31.5.25 Ás SH 130 Grásleppunet
Grásleppa 793 kg
Samtals 793 kg
31.5.25 Fjóla SH 7 Grásleppunet
Grásleppa 774 kg
Samtals 774 kg
31.5.25 Álka ÍS 409 Sjóstöng
Steinbítur 125 kg
Þorskur 52 kg
Ýsa 17 kg
Samtals 194 kg
31.5.25 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Keila 275 kg
Karfi 74 kg
Steinbítur 24 kg
Samtals 373 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 30.5.25 481,29 kr/kg
Þorskur, slægður 30.5.25 644,09 kr/kg
Ýsa, óslægð 30.5.25 569,07 kr/kg
Ýsa, slægð 30.5.25 466,97 kr/kg
Ufsi, óslægður 30.5.25 172,36 kr/kg
Ufsi, slægður 30.5.25 270,32 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.5.25 99,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 30.5.25 200,25 kr/kg
Litli karfi 26.5.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

31.5.25 Hugrún DA 1 Grásleppunet
Grásleppa 792 kg
Rauðmagi 6 kg
Samtals 798 kg
31.5.25 Ás SH 130 Grásleppunet
Grásleppa 793 kg
Samtals 793 kg
31.5.25 Fjóla SH 7 Grásleppunet
Grásleppa 774 kg
Samtals 774 kg
31.5.25 Álka ÍS 409 Sjóstöng
Steinbítur 125 kg
Þorskur 52 kg
Ýsa 17 kg
Samtals 194 kg
31.5.25 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Keila 275 kg
Karfi 74 kg
Steinbítur 24 kg
Samtals 373 kg

Skoða allar landanir »