„Þetta er bara hræðsluáróður“

Kjartan Páll Sveinsson, formaður Strandveiðifélags Íslands, telur 16 þúsund tonn …
Kjartan Páll Sveinsson, formaður Strandveiðifélags Íslands, telur 16 þúsund tonn duga til að tryggja bátum 48 veiðidaga í sumar, tal um 20 til 25 þúsund tonn segir hann hræðsluáróður. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Við erum bara mjög glöð að fá þessa 48 daga, það er það sem við erum búin að berj­ast fyr­ir. Við erum bara bjart­sýn á að þetta gangi upp. Ég hef enga ástæðu til að halda annað en að rík­is­stjórn­in sé að vinna í þessu af full­um heil­ind­um,“ seg­ir Kjart­an Páll Sveins­son, formaður Strand­veiðifé­lags Íslands, í Morg­un­blaðinu í dag.

Hann kveðst ró­leg­ur yfir þeirri gagn­rýni sem áform rík­is­stjórn­ar­inn­ar um að tryggja öll­um strand­veiðibát­um 48 veiðidaga á kom­andi sumri hafa fengið. „Þetta verður verk­efni en ekk­ert óyf­ir­stíg­an­legt. Það verður hægt að finna lausn á þessu.“

Und­an­far­in ár hafa heim­ild­ir sem veiðunum er ráðstafað ekki dugað fyr­ir veiðitíma­bilið sem er tólf dag­ar á bát í hverj­um mánuði maí til og með ág­úst. 

Hræðslu­áróður

Áform rík­is­stjórn­ar­inn­ar hafa verið gagn­rýnd og hef­ur þótt ljóst að ein­hvers staðar þurfi að finna þær afla­heim­ild­ir sem á að veita strand­veiðunum til að rík­is­stjórn­in geti staðið við gef­in fyr­ir­heit.

Hafa gagn­rýn­isradd­ir nefnt að þurfi 20 til 25 þúsund tonna þorskkvóta til að all­ir bát­ar fái 48 veiðidaga.

„Þetta verða aldrei nein 25 þúsund tonn, þetta er bara hræðslu­áróður. Það er kannski bara gott fyr­ir okk­ur, því þegar þetta raun­ger­ist ekki er hægt að benda á það að þetta var ein­mitt bara það, hræðslu­áróður. Ég stór­efa að það verði meira en fjög­ur þúsund tonn til viðbót­ar við þau tólf þúsund tonn sem veiðunum var ráðstafað síðasta sum­ar,“ svar­ar Kjart­an Páll, innt­ur álits á gagn­rýn­inni.

Kjart­an Páll gef­ur lítið fyr­ir full­yrðing­ar um að verið sé að hafa störf af öðrum með færslu veiðiheim­ilda til strand­veiða. „Þetta kem­ur úr hörðustu átt. Það hurfu 30 störf á Seyðis­firði í fyrra, svo hef­ur ný­verið verið seld­ur kvóti frá Tálknafirði til Reykja­vík­ur og Sól­rún ehf. til Húsa­vík­ur. Það er ekki eins og það séu ekki til­færsl­ur í þessu.“

Nán­ar má lesa um málið í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 29.1.25 599,96 kr/kg
Þorskur, slægður 29.1.25 723,90 kr/kg
Ýsa, óslægð 29.1.25 412,21 kr/kg
Ýsa, slægð 29.1.25 369,32 kr/kg
Ufsi, óslægður 29.1.25 215,25 kr/kg
Ufsi, slægður 29.1.25 283,89 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.7.23 10,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 29.1.25 295,99 kr/kg

Fleiri tegundir »

29.1.25 Straumnes ÍS 240 Handfæri
Þorskur 1.053 kg
Samtals 1.053 kg
29.1.25 Sandfell SU 75 Lína
Ýsa 2.370 kg
Þorskur 1.151 kg
Langa 12 kg
Keila 5 kg
Steinbítur 4 kg
Karfi 2 kg
Samtals 3.544 kg
29.1.25 Hafrafell SU 65 Lína
Ýsa 5.114 kg
Þorskur 1.449 kg
Keila 212 kg
Steinbítur 16 kg
Karfi 15 kg
Samtals 6.806 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 29.1.25 599,96 kr/kg
Þorskur, slægður 29.1.25 723,90 kr/kg
Ýsa, óslægð 29.1.25 412,21 kr/kg
Ýsa, slægð 29.1.25 369,32 kr/kg
Ufsi, óslægður 29.1.25 215,25 kr/kg
Ufsi, slægður 29.1.25 283,89 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.7.23 10,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 29.1.25 295,99 kr/kg

Fleiri tegundir »

29.1.25 Straumnes ÍS 240 Handfæri
Þorskur 1.053 kg
Samtals 1.053 kg
29.1.25 Sandfell SU 75 Lína
Ýsa 2.370 kg
Þorskur 1.151 kg
Langa 12 kg
Keila 5 kg
Steinbítur 4 kg
Karfi 2 kg
Samtals 3.544 kg
29.1.25 Hafrafell SU 65 Lína
Ýsa 5.114 kg
Þorskur 1.449 kg
Keila 212 kg
Steinbítur 16 kg
Karfi 15 kg
Samtals 6.806 kg

Skoða allar landanir »