Laxey og Marel hafa skrifað undir samning um afhendingu á Marel vinnslu- og hugbúnaði fyrir væntanlegt sláturhús Laxey fyrir landeldislax. Lausnin veitir bæði nákvæma stærðarflokkun og tengingu við stafrænar lausnir Marel sem hámarka rekstrarhagkvæmni, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Laxey.
Um er að ræða Smartline-flokkara og AXIN hugbúnað Marel. Með hugbúnaðinum getur starfsfólk Laxeyjar stýrt vinnsluferlinu eftir upplýsingum sem kerfið aflar í rauntíma. Gerir hugbúnaðurinn starfsfólkinu þannig kleift að haga framleiðslunni á sem hagkvæmastan máta og jafnframt að bregðast skjótt við vandamálum sem kunna að koma upp. Þá er flokkarinn sagður auka nákvæmni í stærðarflokkun sem og styðja við rekjanleika, gæði og framleiðsluhagkvæmni
„Það skiptir okkur gríðarlega miklu máli að hafa skýra yfirsýn yfir vinnsluna, góðan rekjanleika og geta þannig tryggt hagkvæmni í gegnum öll stig vinnslunnar,” segir Kristmann Kristmannsson verkefnastjóri vinnslu og innkaupa hjá Laxey í tilkynningunni.
Laxey stefnir að framleiðslu á 32 þúsund tonnum af laxi á ári hverju í landeldisstöð þeirra í Vestmannaeyjum. Þegar hefur verið byggð seiðastöð sem er komin í fullan rekstur og senn verður fyrsta áfanga áframeldisins í Viðlagafjöru fullkláraður. Fyrsti seiðaskammtur var fluttur í áframeldið í lok síðasta árs og er fyrsta slátrun áætluð haustið 2025. J
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 26.2.25 | 564,62 kr/kg |
Þorskur, slægður | 26.2.25 | 672,89 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 26.2.25 | 304,10 kr/kg |
Ýsa, slægð | 26.2.25 | 311,73 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 26.2.25 | 260,27 kr/kg |
Ufsi, slægður | 26.2.25 | 273,04 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 30.1.25 | 16,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 19.2.25 | 170,00 kr/kg |
Gullkarfi | 26.2.25 | 226,69 kr/kg |
26.2.25 Emil NS 5 Landbeitt lína | |
---|---|
Þorskur | 1.551 kg |
Ýsa | 629 kg |
Steinbítur | 375 kg |
Keila | 32 kg |
Hlýri | 4 kg |
Samtals | 2.591 kg |
26.2.25 Viktoria ÍS 150 Landbeitt lína | |
---|---|
Ýsa | 2.366 kg |
Þorskur | 2.324 kg |
Steinbítur | 1.804 kg |
Skarkoli | 23 kg |
Samtals | 6.517 kg |
26.2.25 Vigur SF 80 Lína | |
---|---|
Þorskur | 355 kg |
Steinbítur | 190 kg |
Ýsa | 85 kg |
Samtals | 630 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 26.2.25 | 564,62 kr/kg |
Þorskur, slægður | 26.2.25 | 672,89 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 26.2.25 | 304,10 kr/kg |
Ýsa, slægð | 26.2.25 | 311,73 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 26.2.25 | 260,27 kr/kg |
Ufsi, slægður | 26.2.25 | 273,04 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 30.1.25 | 16,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 19.2.25 | 170,00 kr/kg |
Gullkarfi | 26.2.25 | 226,69 kr/kg |
26.2.25 Emil NS 5 Landbeitt lína | |
---|---|
Þorskur | 1.551 kg |
Ýsa | 629 kg |
Steinbítur | 375 kg |
Keila | 32 kg |
Hlýri | 4 kg |
Samtals | 2.591 kg |
26.2.25 Viktoria ÍS 150 Landbeitt lína | |
---|---|
Ýsa | 2.366 kg |
Þorskur | 2.324 kg |
Steinbítur | 1.804 kg |
Skarkoli | 23 kg |
Samtals | 6.517 kg |
26.2.25 Vigur SF 80 Lína | |
---|---|
Þorskur | 355 kg |
Steinbítur | 190 kg |
Ýsa | 85 kg |
Samtals | 630 kg |