721 þúsund seiði drápust

Óvenju mikill kuldi hefur leitt til töluverðs laxadauða í eldi …
Óvenju mikill kuldi hefur leitt til töluverðs laxadauða í eldi Kaldvíkur. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Kaldvík hefur lækkað magn sem félagið áætlar að verði framleidd á árinu um 14%, úr 25 þúsund tonnum af eldislaxi í 21.500 tonn. Ástæðan er óvenju mikill kuldi sem hefur haft veruleg áhrif á heislufar fiska í kvíum félagsins og drápust meðal annars 721 þúsund seiði sem áttu að fara í áframeldi í Fáskrúðsfirði, að því er fram kemur í tilkynningu Kaldvíkur til kauphallarinnar.

Framleiðsla næsta árs verður þó tluvert meiri en á síðasta ári, en þá nam hún 14.965 tonnum sem er í samræmi við áætlun félagsins um 15 þúsund tonn.

Í tilkynningunni segir að lægra hitastig var á síðasta ársfjórðungi 2024 en gert var ráð fyrir sem leiddi til dauða í 2023 árgangi vegna vetrarasára, auk þess sem kuldi hamlaði vexti laxana. Greint er frá því að 2023 árgangurinn er síðasti árgangurinn sem hefur ekki verið bæði bólusettur með sérstöku bóluefni gegn kuldasárum – sem þróað var fyrir Kaldvík – og bóluefni gegn ISA-veiru sem herjaði á eldi á Austfjörðum fyrir nokkrum árum.

Þá hefur einnig verið þó nokkuð há dauðatíðni í tengslum við útsetningu seiða á eldissvæðinu Einstiga í sunnanverðum Fáskrúðsfirði. Upplýsir félagið að lágt hitastig og ofmettun við flutning seiðanna hafi leitt til þess að fjöldi þeirra drapst. Talning var komin í 721 þúsund seiði í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.2.25 564,78 kr/kg
Þorskur, slægður 26.2.25 672,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.2.25 304,05 kr/kg
Ýsa, slægð 26.2.25 311,73 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.2.25 260,27 kr/kg
Ufsi, slægður 26.2.25 273,04 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 30.1.25 16,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 19.2.25 170,00 kr/kg
Gullkarfi 26.2.25 226,69 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.2.25 Emil NS 5 Landbeitt lína
Þorskur 1.551 kg
Ýsa 629 kg
Steinbítur 375 kg
Keila 32 kg
Hlýri 4 kg
Samtals 2.591 kg
26.2.25 Viktoria ÍS 150 Landbeitt lína
Ýsa 2.366 kg
Þorskur 2.324 kg
Steinbítur 1.804 kg
Skarkoli 23 kg
Samtals 6.517 kg
26.2.25 Vigur SF 80 Lína
Þorskur 355 kg
Steinbítur 190 kg
Ýsa 85 kg
Samtals 630 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.2.25 564,78 kr/kg
Þorskur, slægður 26.2.25 672,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.2.25 304,05 kr/kg
Ýsa, slægð 26.2.25 311,73 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.2.25 260,27 kr/kg
Ufsi, slægður 26.2.25 273,04 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 30.1.25 16,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 19.2.25 170,00 kr/kg
Gullkarfi 26.2.25 226,69 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.2.25 Emil NS 5 Landbeitt lína
Þorskur 1.551 kg
Ýsa 629 kg
Steinbítur 375 kg
Keila 32 kg
Hlýri 4 kg
Samtals 2.591 kg
26.2.25 Viktoria ÍS 150 Landbeitt lína
Ýsa 2.366 kg
Þorskur 2.324 kg
Steinbítur 1.804 kg
Skarkoli 23 kg
Samtals 6.517 kg
26.2.25 Vigur SF 80 Lína
Þorskur 355 kg
Steinbítur 190 kg
Ýsa 85 kg
Samtals 630 kg

Skoða allar landanir »