Alls lönduðu 329 fiskiskip þorski á fyrstu fjórum mánuðum fiskveiðiársins 2024/2024, s.s. á tímabilinu 1. september til 31. desember, og nam samanlagður þorskafli þeirra rétt rúmlega 77.666 tonnum samkvæmt skráningu Fiskistofu.
Það er 1,2% minni þorskafli en á sama tímabili fiskveiðiárið 2023/2024 og 4,3% minni þorskafli en á fyrstu fjórum mánuðum fiskveiðiársins 2022/2023 þegar landað var 81.177 tonnum af þorski.
Sé litið til kvótastöðunnar hefur verið landað, það sem af er fiskveiðiári, 73.901 tonni af kvótabundnum þorski. Er það ríflega 43% af þorskkvóta ársins, en eftir eru rúm 97 þúsund tonn. Staðan miðar við eins og skráning Fiskistofu var síðdegis 27. janúar, en vert er að geta þess að það getur tekið nokkra daga fyrir tölur að uppfærast frá því að löndun átti sér stað.
Á þessum fyrsta þriðjungi fiskveiðiársins 2024/2025 lönduðu 149 aflamarksskip 64.194 tonnum af þorski og 180 krókaaflamarksbátar 13.468 tonnum, en rúmlega fjögur tonn af þorski eru skráð á rannsóknaskipið Bjarna Sæmundsson.
Tveir togarar Samherja eru aflamestir í þorski, þeir Kaldbakur EA-1 og Björgúlfur EA-312. Bar Kaldbakur 2.790 tonn af þorski að landi á tímabilinu en Björgúlfur 2.650 tonn. Á eftir fylgir Sólberg með 2.616 tonn.
Alls lönduðu 22 aflamarksskip yfir þúsund tonnum á þessum fjórum mánuðum.
Meðal krókaaflamarksbáta landaði Kristján HF-100 mestum þorski eða rúmum 635 tonnum. Á eftir fylgir Indriði Kristins BA-751 með 611 tonn og svo Hafrafell SU-65 með 608 tonn.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 29.1.25 | 599,96 kr/kg |
Þorskur, slægður | 29.1.25 | 723,90 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 29.1.25 | 412,21 kr/kg |
Ýsa, slægð | 29.1.25 | 369,32 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 29.1.25 | 215,25 kr/kg |
Ufsi, slægður | 29.1.25 | 283,89 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 26.7.23 | 10,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 6.1.25 | 90,00 kr/kg |
Gullkarfi | 29.1.25 | 295,99 kr/kg |
29.1.25 Eskey ÓF 80 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 11.223 kg |
Ýsa | 764 kg |
Langa | 174 kg |
Steinbítur | 89 kg |
Karfi | 62 kg |
Ufsi | 48 kg |
Samtals | 12.360 kg |
29.1.25 Skarphéðinn SU 3 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 318 kg |
Samtals | 318 kg |
29.1.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Þorskur | 12.965 kg |
Ýsa | 7.375 kg |
Steinbítur | 1.054 kg |
Langa | 23 kg |
Samtals | 21.417 kg |
29.1.25 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína | |
---|---|
Þorskur | 6.481 kg |
Ýsa | 2.560 kg |
Steinbítur | 651 kg |
Skarkoli | 14 kg |
Samtals | 9.706 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 29.1.25 | 599,96 kr/kg |
Þorskur, slægður | 29.1.25 | 723,90 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 29.1.25 | 412,21 kr/kg |
Ýsa, slægð | 29.1.25 | 369,32 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 29.1.25 | 215,25 kr/kg |
Ufsi, slægður | 29.1.25 | 283,89 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 26.7.23 | 10,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 6.1.25 | 90,00 kr/kg |
Gullkarfi | 29.1.25 | 295,99 kr/kg |
29.1.25 Eskey ÓF 80 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 11.223 kg |
Ýsa | 764 kg |
Langa | 174 kg |
Steinbítur | 89 kg |
Karfi | 62 kg |
Ufsi | 48 kg |
Samtals | 12.360 kg |
29.1.25 Skarphéðinn SU 3 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 318 kg |
Samtals | 318 kg |
29.1.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Þorskur | 12.965 kg |
Ýsa | 7.375 kg |
Steinbítur | 1.054 kg |
Langa | 23 kg |
Samtals | 21.417 kg |
29.1.25 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína | |
---|---|
Þorskur | 6.481 kg |
Ýsa | 2.560 kg |
Steinbítur | 651 kg |
Skarkoli | 14 kg |
Samtals | 9.706 kg |