Snemma í morgun kom Vörður II, björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Patreksfirði, til hafnar með fiskiskipið Jóhönnu Gísla í togi.
Í tilkynningu frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu kemur fram að þá hafi verið liðnar 32 klukkustundir frá því Jóhanna Gísla hafi fengið pokann í skrúfuna um 70 sjómílur norðvestur af Látrabjargi og varð fyrir vikið óstjórnhæft.
Strax í fyrrakvöld hófst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar handa við að skipuleggja björgun Jóhönnu og drátt á skipinu til lands. Varðskipinu Þór, sem þá var statt austan við land, var stefnt í átt að Jóhönnu, ásamt því að áhöfnum björgunarskipa Landsbjargar á Rifi og Patreksfirði var gert viðvart.
Skipstjóri Guðmundar í Nesi, sem var á veiðum ekki langt frá Jóhönnu, ákvað að draga veiðarfæri sín og halda til aðstoðar skömmu fyrir miðnætti í fyrrinótt. Klukkan 4 um nóttina var áhöfn Guðmundar í Nesi búin að koma taug á milli skipanna. Hraði skipanna í drættinum var frekar lítill eða um tvær og hálf til þrjár og hálf sjómíla á klukkustund.
Það var svo rúmlega eitt í nótt sem áhöfn Varðar II var ræst út og haldið til móts við skipin, sem þá voru að nálgast mynni Patreksfjarðar. Vörður II tók við drætti Jóhönnu rétt upp úr 2 í nótt og hélt þá Guðmundur í Nesi aftur til veiða.
Vörður kom svo með Jóhönnu Gísla til hafnar á Patreksfirði snemma í morgun, rétt einum og hálfum sólarhring síðar.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 20.2.25 | 571,35 kr/kg |
Þorskur, slægður | 20.2.25 | 742,24 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 20.2.25 | 312,95 kr/kg |
Ýsa, slægð | 20.2.25 | 339,46 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 20.2.25 | 227,70 kr/kg |
Ufsi, slægður | 20.2.25 | 310,71 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 30.1.25 | 16,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 19.2.25 | 170,00 kr/kg |
Gullkarfi | 20.2.25 | 331,47 kr/kg |
20.2.25 Hafborg EA 152 Þorskfisknet | |
---|---|
Þorskur | 12.832 kg |
Ýsa | 119 kg |
Samtals | 12.951 kg |
20.2.25 Sóley ÞH 28 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 723 kg |
Þorskur | 68 kg |
Samtals | 791 kg |
20.2.25 Fengsæll HU 56 Landbeitt lína | |
---|---|
Þorskur | 614 kg |
Ýsa | 190 kg |
Steinbítur | 126 kg |
Samtals | 930 kg |
20.2.25 Haförn ÞH 26 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 1.028 kg |
Þorskur | 670 kg |
Steinbítur | 541 kg |
Skarkoli | 272 kg |
Ufsi | 240 kg |
Sandkoli | 135 kg |
Hlýri | 25 kg |
Samtals | 2.911 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 20.2.25 | 571,35 kr/kg |
Þorskur, slægður | 20.2.25 | 742,24 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 20.2.25 | 312,95 kr/kg |
Ýsa, slægð | 20.2.25 | 339,46 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 20.2.25 | 227,70 kr/kg |
Ufsi, slægður | 20.2.25 | 310,71 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 30.1.25 | 16,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 19.2.25 | 170,00 kr/kg |
Gullkarfi | 20.2.25 | 331,47 kr/kg |
20.2.25 Hafborg EA 152 Þorskfisknet | |
---|---|
Þorskur | 12.832 kg |
Ýsa | 119 kg |
Samtals | 12.951 kg |
20.2.25 Sóley ÞH 28 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 723 kg |
Þorskur | 68 kg |
Samtals | 791 kg |
20.2.25 Fengsæll HU 56 Landbeitt lína | |
---|---|
Þorskur | 614 kg |
Ýsa | 190 kg |
Steinbítur | 126 kg |
Samtals | 930 kg |
20.2.25 Haförn ÞH 26 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 1.028 kg |
Þorskur | 670 kg |
Steinbítur | 541 kg |
Skarkoli | 272 kg |
Ufsi | 240 kg |
Sandkoli | 135 kg |
Hlýri | 25 kg |
Samtals | 2.911 kg |