Skipstjórar á skipum Vísis kvarta sáran undan leiðindaveðri síðustu daga, enda hefur það gert sjósókn erfiða. Aflinn hefur þó verið ágætur.
„Það var hundleiðinlegt veður megnið af túrnum og er það vægt til orða tekið,“ segir Benedikt Jónsson, skipstjóri á Páli Jónssyni GK, í færslu á vef Síldarvinnslunnar um síðasta túr línuskipsins. Páll Jónsson landaði 90 tonnum í Hafnarfirði síðastliðinn mánudag.
„Við byrjuðum úti á Fjöllum og þar var afli góður í fyrstu tveimur lögnunum, rúm 30 tonn í hvorri. Síðan gerði bókstaflega kolvitlaust veður og þá var farið inn í Faxaflóann og lagt upp í harða landi. Þar var lagt tvisvar og fengust um 10 tonn í hvorri lögn. Að þessu loknu var haldið til Hafnarfjarðar og landað þar enda ófært til Grindavíkur vegna veðursins. Aflinn var blandaður, 30 tonn langa, 25 tonn þorskur og 12 tonn keila ásamt öðru. Menn eru bara sáttir við túrinn en veðurlagið er ansi þreytandi,“ segir Benedikt.
Togarinn Jóhanna Gísladóttir GK landaði einnig afla á mánudag og kom til Skagastrandar með fullfermi. Leiðindaveður setti einnig svið á túr Jóhönnu að sögn skipstjórans Smára Rúnars Hjálmtýssonar.
„Við lönduðum á Grundarfirði sl. fimmtudag tæpum 60 tonnum sem fengust á Eldeyjarbanka og á Flugbrautinni út af Snæfellsnesi. Að lokinni löndun á Grundarfirði var haldið í Reykjarfjarðarálinn vegna leiðindaveðurs vestur af landinu. Fyrst var mjög góð veiði í álnum en veðurfarið var áfram þreytandi. Þarna fékkst ágæt blanda af þorski og ýsu. Síðan var landað á Skagaströnd á mánudag rúmlega 65 tonnum. Veðurfarið hefur verið heldur óhagstætt að undanförnu en vonandi fer þetta skánandi á næstunni,“ segir Smári Rúnar í færslunni.
Þá segir Óli Björn Björgvinsson skipstjóri á Sighvati GK „búin að vera bölvuð læti“ og síðastliðna daga hafa verið erfiða.
Sighvatur GK kom til Grindavíkur í morgun með 100 tonn og hefur verið unnið að löndun aflans í dag.
„Það fór nánast aldrei undir 20 metra og ölduhæðin var mikil. Aflinn var tiltölulega góður miðað við aðstæður. Við byrjuðum á að leggja á Skerjunum og þar fékkst þokkaleg blanda. Síðan var haldið norður í Breiðafjörð en þar reyndist vera dapur afli. Þá var farið á Vestfjarðamið og lagt í grunnkantinum og ofan í Nesdýpið. Þarna voru teknar þrjár lagnir og það fiskaðist bara vel en það var heldur mikill þorskur í aflanum. Við erum í reynd bara kátir með túrinn miðað við allar aðstæður,“ er haft eftir Óla Birni.
Veðurfarið hefur sett svip sinn á veiðar allra undanfarið.