Ákærur ólíklegar að mati dómara

Dómari í Namibíu segir fátt benda til þess að yfirmenn …
Dómari í Namibíu segir fátt benda til þess að yfirmenn Samherja verði ákærðir á næstunni. mbl.is

Dóm­ar­inn Or­ben Si­beya við lands­rétt Namib­íu (High Court) hafnaði á mánu­dag beiðni Martha Imalwa sak­sókn­ara um kyrr­setn­ingu eigna sex fé­laga í ís­lenskri eigu í tengsl­um við Namib­íu­málið svo­kallaða sem snú­ist hef­ur um meint­ar mútu­greiðslur Sam­herja í land­inu gegn því að fé­lagið fékk veiðiheim­ild­ir í hrossamakríl. Vísaði dóm­ar­inn til þess að sak­sókn­ari hafi ekki sýnt fram á næg­ar lík­ur á að þrír Íslend­ing­ar – sem tengj­ast fé­lög­un­um sex – verði ákærðir.

Til þess að kyrr­setn­ing eigna verði heim­iluð þarf ákæru­valdið að sýna fram á að hinir grunuðu verði ákærðir í Namib­íu og að lík­legt sé að eign­irn­ar verði með dómi gerðar upp­tæk­ar vegna sak­fell­ing­ar hinna ákærðu.

Fram kem­ur í um­fjöll­un The Nami­bi­an að Imalwa hafi á grund­velli lög­gjaf­ar um skipu­lagða glæp­a­starf­semi farið fram á kyrr­setn­ingu eigna fé­lag­anna Esja Hold­ing, Mermaria Sea­food, Saga Sea­food, Heina­ste In­vest­ments Nami­bia, Saga In­vest­ments og Esja In­vest­ment sem tengd­ust rekstri Sam­herja í Namib­íu, vegna vænt­an­legra ákæra á hend­ur yfrimanna Sam­herja – þeirra Aðal­steins Helga­son­ar, Eg­ils Helga Árna­son­ar og Ingvars Júlí­us­son­ar.

Ákæra ekki yf­ir­vof­andi

Árið 2021 beindi dóm­ari við dóm­stól­inn því til sak­sókn­ar­ans, Imalwa, að taka nöfn Íslend­ing­anna þriggja og fé­lag­anna sex af máls­gögn­um þar sem þeir voru ekki stadd­ir í Namib­íu og gætu því ekki mætt fyr­ir dóm.

Imalwa greindi þá dóm­ara frá því að hún myndi fara fram á að Íslend­ing­arn­ir yrðu fram­seld­ir til Namib­íu þannig að hægt yrði að ákæra þá í tengsl­um við málið, en í Namib­íu þarf sak­born­ing­ur að vera viðstadd­ur til að hægt sé að ákæra viðkom­andi.

Dóm­ar­inn Si­beya sagði síðastliðinn mánu­dag langt liðið síðan sak­sókn­ari hafi boðað framsal hinna þriggja Íslend­inga. „Þar sem er óljóst hvenær framsals­ferli myndi hefjast er ekki hægt að segja að Helga­son, Árna­son og Júlí­us­son séu að fara að verða ákærðir í Namib­íu og að ákæra þeirra sé yf­ir­vof­andi.“

Var það því mat Si­beya að Imalwa hafi ekki lagt fyr­ir dóm­inn full­nægj­andi upp­lýs­ing­ar til að rök­styðja kyrr­setn­ing­una.

Ekk­ert kem­ur fram hverj­ar eign­ir þess­ara fé­laga í dag kunna að vera ef ein­hverj­ar.

Íslensk yf­ir­völd til aðstoðar

Greint var frá því í janú­ar á síðasta ári að ís­lensk­ir rann­sak­end­ur og sak­sókn­ar­ar væru í Namib­íu til að aðstoða þarlend yf­ir­völd við að af­hjúpa meinta aðkomu Íslend­inga og ís­lenskra fyr­ir­tækja að mögu­leg­um brot­um.

Jafn­framt var greint frá því að aðstoðarfor­sæt­is­ráðherra Namib­íu hafi ferðast til Íslands til að leita samþykk­is fyr­ir framsali yf­ir­manna Sam­herja.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 29.5.25 472,83 kr/kg
Þorskur, slægður 29.5.25 567,80 kr/kg
Ýsa, óslægð 29.5.25 648,10 kr/kg
Ýsa, slægð 29.5.25 366,41 kr/kg
Ufsi, óslægður 29.5.25 165,44 kr/kg
Ufsi, slægður 29.5.25 260,92 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.5.25 99,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 29.5.25 195,98 kr/kg
Litli karfi 26.5.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

29.5.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 8.706 kg
Ýsa 415 kg
Steinbítur 355 kg
Hlýri 234 kg
Langa 201 kg
Keila 53 kg
Ufsi 46 kg
Skarkoli 32 kg
Karfi 16 kg
Samtals 10.058 kg
29.5.25 Öðlingur SU 19 Línutrekt
Þorskur 9.147 kg
Ýsa 1.811 kg
Steinbítur 144 kg
Ufsi 12 kg
Langa 10 kg
Keila 8 kg
Karfi 2 kg
Samtals 11.134 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 29.5.25 472,83 kr/kg
Þorskur, slægður 29.5.25 567,80 kr/kg
Ýsa, óslægð 29.5.25 648,10 kr/kg
Ýsa, slægð 29.5.25 366,41 kr/kg
Ufsi, óslægður 29.5.25 165,44 kr/kg
Ufsi, slægður 29.5.25 260,92 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.5.25 99,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 29.5.25 195,98 kr/kg
Litli karfi 26.5.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

29.5.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 8.706 kg
Ýsa 415 kg
Steinbítur 355 kg
Hlýri 234 kg
Langa 201 kg
Keila 53 kg
Ufsi 46 kg
Skarkoli 32 kg
Karfi 16 kg
Samtals 10.058 kg
29.5.25 Öðlingur SU 19 Línutrekt
Þorskur 9.147 kg
Ýsa 1.811 kg
Steinbítur 144 kg
Ufsi 12 kg
Langa 10 kg
Keila 8 kg
Karfi 2 kg
Samtals 11.134 kg

Skoða allar landanir »